Stjórn Landssambands ungmennafélaga boðar til sambandsþings 2025

Sambandsþing LUF er æðsta vald sambandsins og hefur úrskurðarvald í öllum málefnum þess. Þingið fer fram í Tjarnarsalnum í Ráðhúsi Reykjavíkur, laugardaginn 22. febrúar undir yfirskriftinni Völd óskast. Hverju aðildarfélagi LUF er heimilt að tilnefna tvo fulltrúa á sambandsþing, einn aðalfulltrúa – sem fer með atkvæðisrétt síns félags í tilfelli aðildarfélaga með fulla aðild – auk eins varafulltrúa. Athugið þó að sambandsþingið er opið öllum og gestir eru boðnir velkomnir.

Drög að dagskrá

(Birt með fyrirvara um breytingar)

Húsið opnar og innritun hefst kl. 11:30

Sambandsþing hefst kl. 12:00

  1. Ávarp forseta LUF
  2. Kosning þingforseta
  3. Kosning þingritara og kjörbréfanefndar
  4. Inntaka nýrra aðildarfélaga
  5. Skýrsla stjórnar lögð fram til umræðu
  6. Ársreikningar lagðir fram til umræðu og atkvæðagreiðslu
  7. Tillaga að framkvæmdaáætlun lögð fram til umræðu
  8. Árgjald til umræðu og atkvæðagreiðslu
  9. Kjör til Ungmennafulltrúa Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði mannréttinda
    1. Pallborð frambjóðenda
    2. Kosning
  10. Kaffihlé
  11. Tillögur og ályktanir teknar til umræðu og atkvæðagreiðslu
    1. Tilmæli til stjórnvalda til samþykktar
    2. Reglugerð um alþjóðamál til samþykktar
    3. Ályktanir frá aðildarfélögum til samþykktar
  12. Lagabreytingatillögur
  13. Tilkynning um að framboðsfrestur til forseta, varaforseta, ritara, gjaldkera, alþjóðafulltrúa, tveggja meðstjórnenda og tveggja varamanna rennur út.
  14. Kosning forseta, varaforseta, gjaldkera, ritara, alþjóðafulltrúa, tveggja meðstjórnenda og tveggja varamanna
  15. Kosning skoðunarmanna reikninga
  16. Önnur mál
  17. Nýr forseti slítur þingi
Skráning þingfulltrúa
Skráning gesta
Þinggögn