

Skrifstofa LUF býður upp á opna viðtalstíma í mars.
Viðtalstímarnir verða eftirtalda daga:
- Mánudaginn 10. mars kl. 11:00
- Miðvikudaginn 12. mars kl. 11:00
- Mánudaginn 17. mars kl. 11:00
- Miðvikudaginn 19. mars kl. 11:00
- Mánudaginn 24. mars kl. 11:00
- Miðvikudaginn 26. mars kl. 11:00
Viðtalstíma skal bóka hér. Ef ofangreindir tímar henta illa er bent á að hafa samband á skrifstofa@youth.is og óska eftir hentugri tíma, reynt verður eftir fremsta megni að verða við slíkum beiðnum.
Viðtalstímarnir fara fram í Mannréttindahúsinu að Sigtúni 42 en einnig er unnt að óska eftir símatíma.
Viðtal um hvað?
Landssamband ungmennafélaga (LUF) er þjónustuvettvangur aðildarfélaga sinna. Skrifstofan sinnir margvíslegri þjónustu við aðildarfélögin, t.d. aðstoð við fjármögnun, uppbyggingu innviða, góða stjórnarhætti, samskipti við hið opinbera, alþjóðleg tækifæri, réttindamál, lögfræðiráðgjöf ásamt almennu fræðslu- og kynningarstarfi um félags- og hagsmunastarf ungs fólks. Unnt er að óska eftir viðtali um hvað sem er sem tengist ungmennastarfi.
Viðtal fyrir hverja?
Alla félagsmenn LUF, þ.e. félagsmenn aðildarfélaganna. Viðtalstímarnir gætu verið sérstaklega gagnlegir fyrir stjórnarmenn aðildarfélaganna, fulltrúa leiðtogaráðs, ungmennafulltrúa hjá Sameinuðu þjóðunum, aðra sem gegna trúnaðarstörfum innan vettvangsins ásamt starfsfólki aðildarfélaganna og móðurfélaga þeirra. Viðtalstímarnir eru ekki síður fyrir þá sem vilja kynna sér starfsemi LUF og aðildarfélaganna, þau tækifæri sem sem standa ungu fólki til boða á Íslandi hvað félagsstörf varðar sem og þá sem áhugasamir eru um alþjóðastarf LUF. Þá getur hver sem er á aldrinum 16-35 ára sem telur sig hafa orðið fyrir broti á réttindum sínum fengið ráðgjöf þar að lútandi.
Fulltrúar LUF starfa eftir siðareglum félagsins þar sem kveðið er á um að trúnaðar og þagmælsku sé gætt ásamt því að vernda persónuupplýsingar í samræmi við gildandi lög um meðferð persónuupplýsinga og persónuverndarstefnu LUF.
Nánari upplýsingar um viðtalstímana veitir Tinna Isebarn, framkvæmdastjóri LUF í gegnum tinna.isebarn@youth.is eða í síma 561-1100.

