Tinna Isebarn lætur af störfum
Tinna Isebarn, framkvæmdastjóri Landssambands ungmennafélaga, sagði starfi sínu lausu á fyrsta stjórnarfundi starfsársins þann 12. mars og lætur hún af störfum í júnímánuði. Lýkur þar með merkum kafla í sögu félagsins, sem spannar heilan áratug og markast af miklum vexti og velgengni.
Tinna var ráðin til starfa í þágu félagsins árið 2015 af Ingu Auðbjörgu Straumland, þáverandi forseta, og hefur allar götur síðan veitt félaginu faglega forystu og markað djúp spor í starfi þess.
„Tinna kom með alla sína orku og ástríðu inn í lítil grasrótarsamtök — og stækkaði þau, blés í þau lífi, gerði þau málsmetandi og fagleg. Og allt þetta gerði hún með gleðinni, kraftinum og upphrópununum sem einkenna þessa kjarnakonu. Takk, Tinna.“
Samstarfsfólk Tinnu í áranna rás lætur einatt vel af henni, enda býr hún að þeim fágæta hæfileika að draga fram það besta í hverjum manni sem á vegi hennar verður, jafnt í leik og starfi. Með sanni má segja að Tinna hafi reynst mörgum betri en enginn, enda er hennar helsta mælistika á eigin árangur hvernig til hefur tekist við að efla ungt fólk og hvetja til góðra verka.
Vegur og virðing félagsins hefur statt og stöðugt aukist frá því að Tinna hóf störf. Metnaður, sterk framtíðarsýn, fórnfýsi og elja í garð ungmennastarfs á Íslandi í sinni víðustu mynd hefur einkennt allan hennar starfsferil. Hefur hún barist ötullega fyrir réttindum og hagsmunum umbjóðenda sinna, sem hafa notið góðs af í hvívetna.
„Tinna Isebarn er einstakur samstarfsmaður og hefur verið vakandi og sofin yfir réttindum ungs fólks undanfarinn áratug þar sem hún hefur sannarlega hreyft við málefnum og sett sitt mark á hagsmunabaráttu ungmenna. Í minni formannstíð stóð hún þétt við bakið á stjórn sambandsins og hvatti til dáða við að sækja réttindi og standa á sínum rétti. Má sem dæmi nefna baráttu félagsins fyrir rétti ungs fólks til stjórnarsetu og rétti ungs fólks til að skilgreina sig sjálf, en þar stóð opinber stofnun í vegi fyrir að réttmætar ákvarðanir félagsmanna um fulltrúa sína í stjórn sem og heiti félagsins væri fært í opinberar skrár. Það er alls ekki öllum gefið að átta sig á þeim hagsmunum sem þar búa að baki og hvað þá standa í áralangri baráttu fyrir réttlæti og gefast aldrei upp. Sambandið er einstaklega heppið að hafa notið starfskrafta, áræðni og elju Tinnu öll þessi ár og ómögulegt að segja hvar LUF væri statt í dag hefði hennar krafta ekki notið við.“
Störf Tinnu verða ekki einvörðungu metin að verðleikum eftir umsvifum félagsins og beinum áhrifum þess í réttindabaráttu og hagsmunagæslu. Með aðkomu hennar að framkvæmd verkefna á borð við #égkýs, sendinefnd ungmennafulltrúa Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum, Leiðtogaskóla Íslands og Völd óskast hefur Tinna lagt lóð sín á vogarskálarnar svo um munar þegar kemur að vitundarvakningu um lýðræðisleg gildi og mikilvægi borgaralegs samfélags. Er þá ótalinn sá mikli fjöldi skýrslna, handbóka og greina sem eftir hana liggja. Ekki er úr vegi að ætla, að áhrifa Tinnu á íslenskt samfélag muni gæta á margvíslegum vettvangi um langt árabil.
„Öllum markmiðum mínum í starfi hefur verið náð og tímabært er að rétta frá mér keflið. Undangengin næstum 10 ár eða hálfa tilvist félagsins hef ég lagt líf og sál í málstaðinn. Ég er þakklát fyrir það traust sem mér hefur verið sýnt og er stolt af mínum umbótastörfum fyrir félagið. Ég tel mig afar lánsama að hafa fengið tækifæri til að ná árangri með einstöku fólki sem myndað hefur órjúfanlega vináttu.
Með þökkum fyrir samstarfið, ósk um velfarnað og von um að LUF vaxi og dafni um ókomna tíð.“
Ungt fólk á Íslandi stendur í þakkarskuld við Tinnu Isebarn. Fyrir þeirra hönd þökkum við henni vel unnin störf og óskum henni alls velfarnaðar á þeirri vegferð sem framundan er.


