Eins og fram kemur í fyrri fréttatilkynningu mun Tinna Isebarn, framkvæmdastjóri félagsins láta af störfum í dag. 

Eva Brá Önnudóttir, verkefnastjóri innanlandsmála, lætur einnig af störfum í dag, 30. maí og Bjarki Fjalar Guðjónsson, verkefnastjóri alþjóðamála, kemur til með að ljúka störfum í lok júní.

Aðildarfélögum og öðrum þeim sem erindi eiga við LUF er bent á að hafa samband við Sylvíu Martinsdóttir forseta félagsins í gegnum sylvia@youth.is eða stjórn félagsins, youth@youth.is

Skrifstofa LUF þakkar öllum hagaðilum kærlega fyrir samstarfið.