
Þann 6. maí fóru forseti og varaforseti Landssambands ungmennafélaga á fund Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Íslands. Á fundinum afhentu þau henni tilmæli ungs fólks til stjórnvalda og áttu samtal um þau. Stjórn LUF vonast til þess að fundur þessi hafi verið hvatning til ríkisstjórnarinnar að kynna sér tilmælin og innleiða þau á kjörtímabilinu. Tilmælin eru afrakstur stefnumótunar á vettvangi LUF þar sem félagsmenn LUF settu ákveðna málaflokka á dagskrá og voru tilmælin samþykkt á Sambandsþingi LUF í lok febrúar. Tilmælin eru 17 talsins og spanna ýmsa málaflokka. Hér má lesa nánar um tilmælin og Völd Óskast herferðina.
