Þann 9. og 10. maí s.l. sóttu forseti LUF og verkefnastjóri alþjóðamála Allsherjarþing Evrópska ungmennavettvangsins (e. YFJ – European Youth Forum). Þingið fór fram í Brussel og fóru þar fram hefðbundin fundarstörf. Meðal annars var farið var yfir áfangaskýrslu stjórnar, fjármál og hinar ýmsu tillögur og ályktanir frá aðildarfélögum. Einnig var farið yfir aðildarumsóknir að vettvangnum.
Á þinginu var einnig verið að kjósa í stjórn AC sem er ráðgjafaráð ungs fólks gagnvart Evrópuráðinu. Jessý Jónsdóttir, fyrrverandi alþjóðafulltrúi LUF, á sæti í AC og lýkur sínum störfum fyrir ráðið í lok árs 2025, hún sóttist ekki eftir endurkjöri. Emma Wedner sem situr í ráðinu fyrir hönd LSU (sænska landssamband ungmennafélaga) sóttist eftir endurkjöri og hlaut flest atkvæði allra í kjörinu.
Afgreiðsla tillagna og ályktana fór að mestu leiti fram seinni daginn og bar mikið á öryggis- og varnarmálum en einnig var ályktað um aukna fjármögnun í Erasmus+ áætlunina t.a.m.
Heilt yfir þá fór þingið vel fram og hefur það reynst gott og gagnlegt fyrir LUF að senda út fulltrúa og styrkja tengsl sín við systurfélög sem og önnur frjáls félagasamtök sem starfa í þágu ungs fólks víðs vegar um Evrópu.





