Alþjóðaráð kom saman 18. september. Snæfríður Blær Tindsdóttir, oddviti alþjóðaráðs og alþjóðafulltrúi LUF setti fundinn og fór í kjölfarið yfir umgjörð alþjóðastarfs LUF.
Embla María Möller Atladóttir, lýðræðisfulltrúi LUF, fór svo yfir þátttöku ungs fólks og norrænt samstarf. En hún situr fyrir hönd LUF í NORD sem er samstarfsverkefni norrænu landssambandanna. Þar á eftir fór Þórdís Dröfn Andrésdóttir, fyrsti lýðræðislega kjörni fulltrúi Íslands í Nordbuk, yfir störf sín þar og hvaða tækifæri eru fyrir aðildarfélögin á þeim vettvangi.
Svo var sjónum beint að Sameinuðu þjóðunum og hlýddu fundargestir á Völu Karen Viðarsdóttur framkvæmdastjóra FSÞ sem fór yfir UN Youth Delegation Programme og ungt fólk og Sameinuðu þjóðirnar. Þar á eftir kynnti Sara Júlía Baldvinsdóttir, ungmennafulltrúi á sviði sjálfbærni, störf sendinefndar LUF gagnvart Sameinuðu þjóðunum og fór yfir störf hvers og eins fulltrúa. Stefanía Sigurdís Jóhönnudóttir, ungmennafullltrúi á sviði Mannréttinda, fór einnig yfir sín störf í sendinefndinni.
Jessý Jónsdóttir, stjórnarmaður í AC og fyrrverandi alþjóðafulltrúi LUF, tók svo við og fjallaði um tækifæri til þátttöku í Evrópu ásamt því að fara yfir sín störf í ráðgjafaráði ungs fólks gagnvart Evrópuráðinu (AC – Advisory Council on Youth). En hún situr þar fyrir hönd LUF. Fjallaði hún einnig um evrópska ungmennavettvanginn (e. YFJ – European Youth Forum).
Að lokum fjallaði Friðmey Jónsdóttir, sérfræðingur hjá Rannís, um tækifæri og styrki sem aðildarfélög LUF hafa aðgang að og ýmis tækifæri á vegum Erasmus sem ungt fólk gæti haft áhuga á.