Fimmtudaginn 12. september síðastliðinn fór fram annar fundur alþjóðaráðs LUF í Mannréttindahúsinu að Sigtúni 42, höfuðstöðvum LUF. Var fundurinn haldinn í þeim tilgangi að veita aðildarfélögum LUF innsýn í alþjóðastarf félagsins, ásamt því að kynna hin ýmsu tækifæri til samstarfs og sóknar sem ungu fólki á Íslandi standa til boða á alþjóðavísu. Fundurinn var fjárstyrktur af utanríkisráðuneytinu. Auk stjórnar og starfsfólks LUF sótti fundinn einvalalið gesta sem fluttu margvísleg erindi og sátu fyrir svörum. Fundarstjórn var í höndum Geirs Zöega, alþjóðafulltrúa LUF og oddvita alþjóðaráðs.
LUF Á ALÞJÓÐAVÍSU
Fundurinn hófst á erindi Tinnu Isebarn, sem fór yfir umgjörð alþjóðastarfs LUF. Undirstrikaði hún nauðsynlega þátttöku ungs fólks í alþjóðlegri stefnumótun og ákvarðanatöku og mikilvægi þess fyrir hagsmuna- og réttindabaráttu yngri kynslóða á heimsvísu. Þá vakti hún sérstaka athygli á á stefnuleysi íslenskra stjórnvalda í málaflokki ungs fólks, en Ísland er eitt af fáum ríkjum í heiminum sem ekki hefur sett sérstaka landsstefnu í málefnum ungs fólks (e. National Youth Policy). Er svo fyrir komið þrátt fyrir ályktun Sameinuðu þjóðanna frá árinu 1996 þar sem eftirbátar annarra ríkja hlutu harðorða áminningu þess efnis, ásamt eindreginni hvatningu til að gera bót á máli.


ÞÁTTTAKA UNGS FÓLKS Á ALÞJÓÐLEGUM VETTVANGI
EVRÓPA UNGA FÓLKSINS
Í kjölfarið var sjónum beint að þátttöku ungs fólks í Evrópu. Sara Þöll Finnbogadóttir, fyrrverandi alþjóðafulltrúi LUF og frambjóðandi LUF til stjórnar Evrópska ungmennavettvangins (YFJ) hóf dagskrárliðinn með kynningu á því margþætta hagsmunastarfi sem YFJ stendur fyrir. Þá flutti Jessý Jónsdóttir, fyrrverandi alþjóðafulltrúi LUF og fulltrúi LUF í ráðgjafaráði Evrópuráðsins um málefni ungs fólks, kynningu um alþjóðastarf í Evrópu á vegum Evrópuráðsins og Evrópusambandsins, sem og tækifæri þeim tengdum sem aðildarfélögum LUF bjóðast. Því næst stiklaði Guðmundur Ari Sigurjónsson, sérfræðingur hjá Rannís, á stóru yfir styrki og önnur tækifæri til fjármögnunar sem haldið er úti af hinum ýmsu alþjóðastofnunum og aðildarfélög LUF geta notið góðs af.
UNGMENNASTARF Á NORÐURLÖNDUM
Að lokum fjallaði Viktor Lorange, fyrrverandi samskiptastjóri LUF og formaður Ung norræn, um norrænt samstarf. Bar hann saman aðstöðum LUF og systurfélaga félagsins á Norðurlöndunum, flutti kynningu um starfsemi Norræna félagsins og kynnti vettvanga Norrænu ráðherranefndarinnar, Norðurlandaráðs og Norðurlandaráðs ungs fólks.
HORFT TIL FRAMTÍÐAR
Að loknum framsögum tók við málstofa og umræður um tillögur til stjórnvalda um hvernig efla megi þátttöku ungs fólks í stefnumótun og ákvarðanatöku sem hefur áhrif á réttindi og lífskjör yngri kynslóða.

Var málstofunni skipt eftir málaflokkum og sköpuðust líflegar umræður um þau mál sem helst voru í brennidepli. Tillögur málstofunnar verða meðal annars lagðar til grundvallar drögum að niðurstöðu herferðarinnar #Völd óskast sem lögð verður fyrir leiðtogaráð þann 16. nóvember næstkomandi.
UM ALÞJÓÐARÁÐ LUF
Í alþjóðaráði eiga sæti alþjóðafulltrúar eða ábyrgðarfólk alþjóðastarfs allra 43 aðildarfélaga LUF. Var ráðið stofnað í því augnamiði að efla alþjóðlega þátttöku og samvinnu á meðal aðildarfélaga LUF á sviði alþjóðamála, sem og að stuðla að betri nýtingu allra þeirra alþjóðlegu tækifæra sem standa ungu fólki á Íslandi til boða.
