Annar leiðtogaráðsfundur starfsársins
Annar leiðtogaráðsfundur Landssambands ungmennafélaga (LUF) á starfsárinu 2025-2026 fór fram 15. nóvember í Háskólanum í Reykjavík.
Ragnheiður Geirsdóttir, málefnafulltrúi LUF kynnti fyrri hluta samfélagsmiðlaherferðar sem hleypt var af stað eftir fyrri leiðtogaráðsfund ársins. Staða framkvæmdaáætlunar LUF fyrir starfsárið var sömuleiðis kynnt af Sylvíu Martinsdóttur, forseta LUF og Geir Zoega, gjaldkera.
Lagabreytingartillögur sem stjórn LUF áformar að leggja fram á næsta sambandsþingi voru kynntar stuttlega af Starra Reynissyni, varaforseta LUF og jafnramt oddvita leiðtogaráðs. Í kjölfar kynningarinnar mynduðust líflegar og ríkar umræður sem verða nýttar til áframhaldandi mótun og þróunar sambandsins.



Kjör fulltrúa leiðtogaráðs
Kjör tveggja ungmennafulltrúa fór fram á fundinum. Ranghildur Elín Skúladóttir var kjörin ungmennafulltrúi Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum á sviði sjálfbærrar þróunar en hún var tilnefnd af Ungum umhverfissinnum. Gunnar Ásgrímsson var kjörinn ungmennafulltrúi Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum á sviði barna og ungmenna og var tilnefndur af Sambandi ungra framsóknarmanna (SUF). Þau voru bæði kjörin til tveggja ára í samræmi við junior-senior kerfi sendinefndar LUF.
