Landssamband ungmennafélaga (LUF), í samstarfi við Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, auglýsir eftir framboðum ungs fólks á aldrinum 18-25 ára til að gegna stöðu ungmennafulltrúa Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum. Kjörið verður í stöður tveggja ungmennafulltrúa: á sviði kynjajafnréttis og loftslagsmála. Fer kjörið fram á 1. leiðtogaráðsfundi LUF 2025, þann 15. maí, í Háskóla Íslands, HT-101.

Svið kynjajafnréttis 

Ungmennafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði kynjajafnréttis (e. United Nations Youth Delegate of Iceland on Gender Equality) kemur með til að sitja í stýrihóp forsætisráðuneytisins um kynslóð jafnréttis og sækja viðburð á vegum The Commission on the Status of Women (CSW). 

Svið loftslagsmála

Ungmennafulltrúi Íslands á sviði loftslagsmála (e. United Nations Youth Delegate of Iceland on Climate Change) er skipaður til tveggja ára og eru vonir bundnar við að fulltrúinn komi til með að sækja 30. loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP30, sem fer fram í Belém í nóvember 2025.

Þurfa frambjóðendur að geta skuldbundið sig til tveggja ára auk þess að sækja alla viðburði sem af þeim er krafist.

Ungmennafulltrúar Sameinuðu þjóðanna

Ungmennafulltrúar Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum eru lýðræðislega kjörnir af aðildarfélögum LUF, starfa í umboði þeirra og allra þeirra meðlima og vinna út frá þeirri stefnu sem þau móta á vettvangi LUF. Fulltrúar gegna embættinu í tvö ár, fyrra árið sem “junior” fulltrúi og seinna árið sem “senior” fulltrúi. Allir ungmennafulltrúar sitja í Sendinefnd LUF til Sameinuðu þjóðanna. Sendinefndin er samstarfsverkefni LUF og Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi sem vinna að aukinni þátttöku Ungmennafulltrúa Íslands á viðburðum Sameinuðu þjóðanna (e. UN Youth Delegation Programme). Verkefnið er unnið í samstarfi við Félags- og vinnumálaráðuneytið, forsætisráðuneytið, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, utanríkisráðuneytið, mennta- og barnamálaráðuneytið og menningar- og viðskiptaráðuneytið.

Hæfniskröfur:

  1. Umboð frá aðildarfélagi LUF.
  2. Vera á aldrinum 18 – 25 ára.
  3. Hafa þekkingu á Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
  4. Hafa reynslu af hagsmunastarfi ungmennafélaga.
  5. Búa yfir leiðtogahæfni og frumkvæði.
  6. Hafa vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
  7. Viðeigandi menntun sem nýtist í embætti / þekking á Sameinuðu þjóðunum er kostur.
  8. Hafa tök á að skuldbinda sig hlutverkinu til tveggja ára með virkri þátttöku í starfi LUF.
  9. Hafa íslenskt ríkisfang auk fastrar búsetu á Íslandi að jafnaði. 

Gerð er krafa um að ungmennafulltrúar taki virkan þátt í störfum LUF, sæki meðal annars leiðtogaráðsfundi og Leiðtogaskóla Íslands. 

Hvernig býð ég mig fram? 

Öll aðildarfélög LUF (jafnt með fulla aðild, sem og eingöngu með áheyrnaraðild) geta boðið fram einn fulltrúa á hverju sviði. Áhugasamir félagsmenn aðildarfélaga LUF þurfa því að óska eftir umboði frá stjórn viðkomandi félags. Stjórnin tilkynnir framboð með því að fylla út skráningarform viðeigandi reiti í skráningarformi Leiðtogaráðsfundar. Með umboði staðfestir stjórn að frambjóðandinn uppfylli ofangreindar hæfniskröfur.

Framboðsfrestur er til og með 8. maí, viku fyrir 1. leiðtogaráðsfund LUF 2025, sem haldið verður þann 15. maí n.k.

Fyrirvari:

Embætti ungmennafulltrúa er sjálfboðastarf, að undanskildum dagpeningum erlendis, sem og greiðslum til ungmennafulltrúa á sviði mennta, vísinda og menningar vegna fundarsetu.Gerð er krafa um að ungmennafulltrúar taki virkan þátt í störfum LUF og sæki meðal annars leiðtogaráðsfundi og Leiðtogaskóla Íslands.