Landssamband ungmennafélaga (LUF), í samstarfi við Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, auglýsir eftir framboðum ungs fólks á aldrinum 18-25 ára til að gegna stöðu ungmennafulltrúa Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum. Kjörið verður í stöður þriggja ungmennafulltrúa: á sviði sjálfbærrar þróunar, barna og ungmenna og mennta, vísinda og menningar. Fer kjörið fram á 2. leiðtogaráðsfundi LUF 2024, þann 16. nóvember, í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll.

Svið sjálfbærrar þróunar

Ungmennafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði sjálfbærrar þróunar (e. United Nations Youth Delegate of Iceland on Sustainable Development) kemur með til að sækja og taka þátt í störfum ráðherrafundar Sameinuðu þjóðanna (e. United Nations High-Level Political Forum (HLPF 2025)) sem fer fram dagana 14. – 24. júlí í New York. Kemur fulltrúinn með að tilheyra sendinefnd íslenskra stjórnvalda á viðburðinum, í umboði ungs fólks á Íslandi og tekur þátt í undirbúningsvinnu við viðburðinn auk þess að sitja í nefndum og ráðum á vegum stjórnvalda. Samstarfsráðuneyti sviðsins er forsætisráðuneytið.

Svið barna og ungmenna

Kjörinn ungmennafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði barna og ungmenna (e. United Nations Youth Delegate of Iceland for Children and Youth) kemur til með að taka þátt í störfum og sækja fund ungmennavettvangs efnahags- og félagsmálaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. The Economic and Social Council (ECOSOC) Youth Forum)) 15.-17. apríl í New York. Samstarfsráðuneyti sviðsins er mennta- og barnamálaráðuneytið.

Svið mennta, vísinda og menningar

Ungmennafulltrúi Íslands á sviði mennta, vísinda og menningar er skipaður til tveggja ára og mun þurfa sækja aðalráðstefnu UNESCO ásamt norrænum samstarfsfundum. Sömuleiðis situr ungmennafulltrúinn í Íslensku UNESCO nefndinni, sem fundar 4-6 sinnum á ári og er nefndarseta launuð. Þurfa frambjóðendur að geta skuldbundið sig til tveggja ára auk þess að sækja alla viðburði sem af þeim er krafist.

Ungmennafulltrúar Sameinuðu þjóðanna

Ungmennafulltrúar Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum eru lýðræðislega kjörnir af aðildarfélögum LUF, starfa í umboði þeirra og allra þeirra meðlima og vinna út frá þeirri stefnu sem þau móta á vettvangi LUF. Fulltrúar gegna embættinu í tvö ár, fyrra árið sem “junior” fulltrúi og seinna árið sem “senior” fulltrúi. Allir ungmennafulltrúar sitja í Sendinefnd LUF til Sameinuðu þjóðanna. Sendinefndin er samstarfsverkefni LUF og Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi sem vinna að aukinni þátttöku Ungmennafulltrúa Íslands á viðburðum Sameinuðu þjóðanna (e. UN Youth Delegation Programme). Verkefnið er unnið í samstarfi við Félags- og vinnumálaráðuneytið, forsætisráðuneytið, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, utanríkisráðuneytið, mennta- og barnamálaráðuneytið og menningar- og viðskiptaráðuneytið.

Hæfniskröfur:

  1. Umboð frá aðildarfélagi LUF.
  2. Vera á aldrinum 18 – 25 ára.
  3. Hafa þekkingu á Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
  4. Hafa reynslu af hagsmunastarfi ungmennafélaga.
  5. Búa yfir leiðtogahæfni og frumkvæði.
  6. Hafa vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
  7. Viðeigandi menntun sem nýtist í embætti / þekking á Sameinuðu þjóðunum er kostur.
  8. Hafa tök á að skuldbinda sig hlutverkinu til tveggja ára með virkri þátttöku í starfi LUF.
  9. Hafa íslenskt ríkisfang auk fastrar búsetu á Íslandi að jafnaði. 

Gerð er krafa um að ungmennafulltrúar taki virkan þátt í störfum LUF, sæki meðal annars leiðtogaráðsfundi og Leiðtogaskóla Íslands. 

Framboðsfrestur er til og með 9. nóvember (viku fyrir 2. leiðtogaráðsfund LUF 2024, sem haldinn verður í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll, 16. nóvember kl. 11:00.)

Hvernig býð ég mig fram? 

Öll aðildarfélög LUF (með fulla aðild og áheyrnaraðild) geta boðið fram einn fulltrúa á hverju sviði. Áhugasamir félagsmenn aðildarfélaga LUF þurfa því að óska eftir umboði frá stjórn viðkomandi félags. Stjórnin tilkynnir framboð með því að fylla út skráningarform, sem öll aðildarfélög koma til með að fá sent í fundarboði. Með umboði staðfestir stjórn að frambjóðandinn uppfylli ofangreindar hæfniskröfur.

Embætti ungmennafulltrúa er sjálfboðastarf, að undanskildum dagpeningum erlendis, sem og greiðslum til ungmennafulltrúa á sviði mennta, vísinda og menningar vegna fundarsetu.