Landssamband ungmennafélaga (LUF) auglýsir eftir framboðum í stjórn Leiðtogaskóla Íslands (LSÍ). Skólinn er sameiginlegur fræðsluvettvangur aðildarfélaga LUF til að þjálfa persónulega hæfni, efla tengslanet, deila reynslu, auka getu og valdefla ungt fólk á Íslandi. Grunnþættir fræðslunnar á vegum LSÍ er lýðræði og mannréttindi í verki – þar sem áætlun Evrópuráðsins um lýðræðislega borgaravitund og mannréttindafræðslu (Kompás) er notaður sem leiðarvísir. LSÍ hefur meðal annars hlotið viðurkenningu Evrópuráðsins (e. Council of Europe) sem „gott fordæmi“ (e. best practice) í Evrópu. Verndari Leiðtogaskóla Íslands er Halla Tómasdóttir, forseti Íslands.
Markmið Leiðtogaskóla Íslands er að efla leiðtogahæfni og valdefla ungt fólk í félagasamtökum með því að:
- Veita ungu fólki nauðsynleg verkfæri og hagnýta fræðslu til að þekkja, æfa, vernda og efla eigin réttindi.
- Virkja mannauðinn innan aðildarfélögum LUF og veita þeim stuðning í hagsmunastarfi, nýsköpun og láta hugmyndir verða að veruleika.
- Auka starfshæfni og atvinnumöguleika ungs fólks með því að skapa tækifæri til þess að meta/viðurkenna óformlegt nám og stuðla að því að félagsstarf verið metið að verðleikum í námi og starfi.
- Hvetja til samstarfs aðildarfélaga, koma í veg fyrir tvíverknað og tryggja virkni smærri félaga sem stríða við auðlindaskort.
Stjórn LSÍ samanstendur af fimm einstaklingum; Rektori LSÍ (fyrrverandi formanni LUF), framkvæmdastjóra LUF, Yfirþjálfara þjálfarateymis LUF, fulltrúa úr stjórn LUF og fulltrúa leiðtogaráðs LUF. Starfstímabil stjórnar LSÍ er eitt ár sem hefst frá 1. leiðtogaráðsfundi LUF.
Hlutverk stjórnar LSÍ er að:
- Tryggja að skólinn starfi í samræmi við lög, stefnu, framkvæmdaáætlun og siðareglur LUF.
- Tryggja að reglulegt gæðamat fari fram, einkum innleiðing á hæfnislíkani (e. Competence model for trainers) Evrópusambandsins sem þróað var samhliða Evrópsku þjálfarastefnunni (e. European training strategy) til að gæta að gæðastjórnun.
- Fara yfir umsóknir og velja í Þjálfarateymi LUF og leiðtogaskólann.
- Tryggja að skólinn sé fjármagnaður á hverju ári.
- Gerir tillögur að eftirfarandi og leggur fyrir stjórn LUF eigi síðar en fyrir lok maí ár hvert:
- Skipulagi náms: uppstillingu á þjálfurum fyrir hvert námskeið og nákvæmri stundatöflu með dagsetningum.
- Fjárhagsáætlun skólans.
- Tímakaupi þjálfara sem taka að sér námskeið í LSÍ og setur upp verðskrá einstakra námskeiða sem fulltrúar úr þjálfarateymi LUF taka að sér utan leiðtogaskólans. Aðildarfélögin greiða ávallt minna en aðilar utan LUF.
- Vakta alþjóðleg tækifæri fyrir fulltrúa þjálfarateymisins til að stuðla að endurmenntun þjálfarateymis og framþróun skólans.
Hvernig býð ég mig fram?
Öll aðildarfélög LUF (með fulla aðild og áheyrnaraðild) geta boðið fram einn fulltrúa. Áhugasamir félagsmenn aðildarfélaga LUF þurfa því að óska eftir umboði frá stjórn viðkomandi félags. Stjórnin tilkynnir framboð með því að fylla út skráningarform, sem öll aðildarfélög koma til með að fá sent í fundarboði. Með umboði staðfestir stjórn að frambjóðandinn uppfylli eftirfarandi hæfniskröfur. Umsóknarfrestur er til og með 8.maí.
Hvetjum við verðandi frambjóðendur til að kynna sér reglugerð um Leiðtogaskóla Íslands.

