
Landssamband ungmennafélaga (LUF) auglýsir eftir framboðum ungs fólks á aldrinum 18-35 ára til að gegna stöðu aðalfulltrúa íslenskra ungmenna í Norrænu barna- og ungmennanefndinni (NORDBUK). Fer kjörið fram á sambandsþingi LUF 2025, þann 22. febrúar n.k.
Ungmennafulltrúi Íslands hjá NORDBUK er lýðræðislega kjörinn af aðildarfélögum LUF til tveggja ára og starfar í umboði þeirra fyrir hönd íslenskra ungmenna, á grundvelli þeirrar stefnu sem mótuð er á vettvangi LUF. Þá er ungmennafulltrúi tengiliður LUF við NORDBUK og annast upplýsingagjöf til stjórnar félagsins.

Um NORDBUK
Norræna barna- og ungmennanefndin (NORDBUK) veitir Norrænu ráðherranefndinni ráðgjöf og samhæfir starf sem lýtur að málefnum barna og ungs fólks. Starfssvið NORDBUK nær yfir öll samstarfssvið innan Norrænu ráðherranefndarinnar. Nefndin hittist 2-3 á ári og er vinnutungumálið skandinavíska. Boðið er upp á túlkun á finnsku og íslensku. Ungmennafulltrúar fá greitt fyrir þátttöku sína og fyrir flug og gistingu
Fundaáætlun ársins 2025
- 11.–12. mars: Stokkhólmur
- 3.-5. júní: Helsinki
- 20. nóvember: Kaupmannahöfn
Hæfniskröfur:
- Reynsla af félagsstörfum.
- Reynsla af því að fara með lýðræðislegt umboð.
- Þekking á starfsemi Norrænu ráðherranefndarinnar og NORDBUK.
- Þekking á hagsmunabaráttu LUF.
- Færni á a.m.k. einu Skandinavísku tungumáli er kostur
- Menntun sem nýtist í starfi er jafnframt kostur
Að auki er gerður áskilnaður um að frambjóðandi hafi íslenskt ríkisfang auk fastrar búsetu á Íslandi að jafnaði, ásamt því að hafa tök á að gegna hlutverkinu í tvö ár. Þá er gerð krafa um að ungmennafulltrúi taki virkan þátt í störfum LUF og sæki meðal annars leiðtogaráðsfundi og Leiðtogaskóla Íslands.
Hvernig býð ég mig fram?
Öll aðildarfélög LUF (jafnt þau sem fara með fulla aðild, sem og þau sem eingöngu fara með áheyrnaraðild) geta boðið fram einn fulltrúa. Áhugasamir félagsmenn aðildarfélaga LUF þurfa samkvæmt framansögðu að óska eftir umboði frá stjórn viðkomandi félags. Stjórnin tilkynnir framboð með því að fylla út skráningarform, sem finna má hér að neðan. Með umboði staðfestir stjórn að frambjóðandinn uppfylli ofangreindar hæfniskröfur.
Framboðsfrestur er til og með 15. febrúar, viku fyrir sambandsþing LUF 2025, sem haldið verður þann 22. febrúar n.k.
Frekari upplýsingar veitir Bjarki F. Guðjónsson, verkefnastjóri alþjóðamála – netfang: bjarki@youth.is
