LUF óskar nú eftir umsóknum um stöður þjálfara til að leiða námskeið í Leiðtogaskóla Íslands 2019. Þjálfarateymi LUF samanstendur af þjálfurum sem hafa reynslu, getu og þekkingu til að miðla fræðslu og þjálfa færni ungs fólks í margvíslegu ungmennastarfi. Þjálfarateymi LUF (e. The Pool of Trainers of the National Youth Council of Iceland) er aðferð sem notuð er víða í Evrópu til þess að byggja upp getu ungmennafélaga í að miðla óformlegu námi. LUF sækir innblástur aðferðarinnar til Evrópuráðsins og Evrópska ungmennavettvangsins þar sem um er að ræða afurð af „þjálfun þjálfara“ (e. Train the Trainers).
Þjálfarateymi LUF er hluti af framþróun Leiðtogaskóla Íslands (LSÍ) sem var þróaður af aðildarfélögum LUF árið 2015 og stofnaður 2016. Hann var fjármagnaður af mennta- og menningarmálaráðuneytinu árið 2016 og af Evrópuráðinu árið 2017. Þá hefur Evrópuráðið viðurkennt LSÍ sem gott fordæmi (e. Best practice) í Evrópu í að stuðla að mannréttindafræðslu og lýðræðislegri borgaravitund með óformlegu námi.
Þjálfarateymi LUF er úrval hæfra þjálfara á heimasíðu LUF. Þá geta aðildarfélög LUF óskað eftir námskeiðum og valið þjálfara við hæfi af heimasíðu LUF. Þeir sem útskrifast úr LSÍ og aðrir sem uppfylla hæfnisskilyrðin geta sóst eftir að verða hluti af teyminu. Með þessu móti byggir LUF upp meiri getu með hverju árinu og getur boðið upp á margvísleg námskeið fyrir aðildarfélög LUF í framtíðinni. Þetta er gert til að mæta eftirspurn eftir óformlegu námi ungmennafélaga þannig að auðvelt verður fyrir ungmennafélög að finna þjálfara við hæfi. Hver og einn þjálfari sérhæfir sig í mismunandi greinum (svo sem í: hópefli, mannréttindafræðslu, stjórnarsetu, verkefnastjórnun, ræðumennsku, stefnumótun, fjármögnun o.s.frv.).
Markmiðið með Þjálfaraliði LUF er að:
- Efla leiðtogahæfni og valdefla ungt fólk í félagasamtökum;
- Styrkja innviði LUF, aðildarfélaganna og ungmennastarf í heild;
- Byggja upp getu ungmennafélaga og forystufólks með hæfni til að miðla þekkingu og reynslu;
- Innleiða hæfnislíkan (e. Competence mode for trainers) Evrópusambandsins sem þróað var samhliða Evrópsku þjálfarastefnunni (e. European training strategy) til að gæta að gæðastjórnun.
Þjálfarar þurfa að uppfylla eftirfarandi hæfniskröfur:
- Vera á aldrinum 16-35 ára. Því LUF leggur áherslu á jafningjafræðslu og miðar við aldurstakmarkið sem sett er félagsmönnum aðildarfélaganna í 21. gr. samþykkta LUF um kjörgengi til stjórnar.
- Vera félagsmaður aðildarfélags LUF.
- Hafa reynslu af ungmenna-, hagmuna- og/eða félagsstörfum innan aðildarfélags LUF.
- Hafa reynslu af því að leiða vinnustofur og/eða námskeið.
- Hafa getu til að flytja fyrirlestur og/eða halda vinnustofu á einhverju sviði sem nýtist félagsmönnum aðildarfélaga LUF.
- Að hafa áður komið að námskeiðshaldi í LSÍ eða að hafa útskrifast úr LSÍ verður metið sem kostur.
Stjórn leiðtogaskólans velur síðan meðlimi þjálfarateymisins sem munu fá greitt fyrir að leiða námskeiðshald. Áætlað er að námskeiðin fari fram 28. – 29. september og 19. – 20. október. Frekari upplýsingar veitir Sigurður Helgi Birgisson verkefnastjóri LUF í gegnum sigurdur.helgi@youth.is.
Núverandi meðlimir þjálfarateymis athugið! Lýsa þarf yfir áhuga á að leiða námskeið í skólanum í ár með því að senda tölvupóst á youth@youth.is með upplýsingum um hvaða námskeið er sóst eftir að leiða.
SÆKJA UM
Umsóknarfrestur er til og með 12. ágúst 2019.