Landssamband ungmennafélaga (LUF) í samstarfi við Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi auglýsir eftir framboðum ungs fólks á aldrinum 18-25 ára til að gegna stöðu ungmennafulltrúa Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum á sviði mannréttinda. Fer kjörið fram á sambandsþingi LUF 2025, þann 22. febrúar n.k. Ungmennafulltrúar á sviði mannréttinda sækja allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York, sem og aðra þá viðburði er varða málefnasviðið, innan landsteinanna sem utan. Þá gegna ungmennafulltrúar fræðsluhlutverki gagnvart ungu fólki, til að mynda hvað varðar starfsemi Sameinuðu þjóðanna á sviði mannréttinda.

Ungmennafulltrúar Sameinuðu þjóðanna

Ungmennafulltrúar Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum eru lýðræðislega kjörnir af aðildarfélögum LUF, starfa í umboði þeirra og vinna út frá þeirri stefnu sem mótuð er af þeim á vettvangi LUF. Fulltrúar gegna embættinu í tvö ár, fyrra árið sem “junior” fulltrúi og seinna árið sem “senior” fulltrúi. Allir ungmennafulltrúar sitja í Sendinefnd LUF til Sameinuðu þjóðanna. Sendinefndin er samstarfsverkefni LUF og Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi sem vinna að aukinni þátttöku Ungmennafulltrúa Íslands á viðburðum Sameinuðu þjóðanna (e. UN Youth Delegation Programme). Verkefnið er unnið í samstarfi við Félags- og vinnumálaráðuneytið, forsætisráðuneytið, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, utanríkisráðuneytið, mennta- og barnamálaráðuneytið og menningar- og viðskiptaráðuneytið.

Hæfniskröfur:

Frambjóðandi skal:

  1. Hafa umboð frá aðildarfélagi LUF.
  2. Vera á aldrinum 18 – 25 ára.
  3. Hafa þekkingu á Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
  4. Hafa reynslu af hagsmunastarfi ungmennafélaga.
  5. Búa yfir leiðtogahæfni og frumkvæði.
  6. Hafa vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
  7. Hafa tök á að gegna hlutverkinu í tvö ár með virkri þátttöku í starfi LUF.
  8. Hafa íslenskt ríkisfang auk fastrar búsetu á Íslandi að jafnaði. 

Viðeigandi menntun sem nýtist í embætti ásamt þekkingu á Sameinuðu þjóðunum, hlutverki þeirra og stofnunum er kostur.

Hvernig býð ég mig fram? 

Öll aðildarfélög LUF (jafnt með fulla aðild, sem og eingöngu með áheyrnaraðild) geta boðið fram einn fulltrúa á hverju sviði. Áhugasamir félagsmenn aðildarfélaga LUF þurfa því að óska eftir umboði frá stjórn viðkomandi félags. Stjórnin tilkynnir framboð með því að fylla út skráningarform sem finna má hér að neðan. Með umboði staðfestir stjórn að frambjóðandinn uppfylli ofangreindar hæfniskröfur.

Framboðsfrestur er til og með 15. febrúar, viku fyrir sambandsþing LUF 2025, sem haldið verður þann 22. febrúar n.k.

Fyrirvari:

Embætti ungmennafulltrúa er sjálfboðastarf, að undanskildum dagpeningum erlendis, sem og greiðslum til ungmennafulltrúa á sviði mennta, vísinda og menningar vegna fundarsetu.Gerð er krafa um að ungmennafulltrúar taki virkan þátt í störfum LUF og sæki meðal annars leiðtogaráðsfundi og Leiðtogaskóla Íslands.

Tilnefningarform