Alþjóðaráðs LUF mun funda þann 12. september næstkomandi klukkan. 17:15. Fundurinn fer fram í Mannréttindahúsi ÖBÍ: Sigtúni 42, 105 Reykjavík. Er þetta annar fundur Alþjóðaráðs en markmið hans er að veita aðildarfélögum LUF innsýn inn í alþjóðastarf LUF og kynnast alþjóðlegum tækifærum fyrir ungt fólk á Íslandi. Hlutverk Alþjóðaráðs er að tryggja að LUF standi við allar skuldbindingar sínar í erlendu samstarfi og fullnýti þau tækifæri sem alþjóðastarf felst í eins og kostur er. Markmið alþjóðaráðs LUF er að starfa sem fræðslu-, samráðs- og samstarfsvettvangur fyrir alþjóðafulltrúa aðildarfélaga LUF. Stjórnir aðildar- og áheyrnarfélaga LUF skipa sinn fulltrúa í ráðið. Skal miða við að skipaður fulltrúi sé ábyrgðarmaður alþjóðamála síns félags. Hafa þeir rétt til að kalla til staðgengil úr sínu aðildarfélagi geti þeir ekki sótt fund alþjóðaráðs LUF.
Stefnt er að vinnustofu í lok fundar þar sem mótuð verða drög að tillögum til stjórnvalda um hvernig megi efla þátttöku ungs fólks í stefnumótun og ákvarðanatöku sem hefur áhrif á réttindi og lífskjör yngri kynslóða. Í Alþjóðaráði eiga sæti alþjóðafulltrúar/ábyrgðaraðilar alþjóðamála allra aðildarfélaga auk sendinefndar LUF hjá Sameinuðu þjóðunum. Aðildarfélögum er velkomið að senda tvo fulltrúa á fundinn. Skráning fer fram rafrænt en skráningarform má finna á hlekknum hér fyrir neðan. Viðburður þessi er styrktur af utanríkisráðuneytinu.
Drög að dagskrá
1. Setning
– Geir Zoëga, oddviti alþjóðaráðs / alþjóðafulltrúi LUF
2. Umgjörð alþjóðastarfs LUF
– Tinna Isebarn, framkvæmdastjóri LUF
3. Þátttaka ungs fólks á Alþjóðavísu
3.1. Heimsdagskrá SÞ og sáttmáli framtíðarinnar
– Vala Karen Viðarsdóttir, framkvæmdastjóri Félags SÞ
3.2. United Nations Youth Delegation Programme
– Tinna Isebarn, framkvæmdastjóri LUF
3.3. Þátttaka á ECOSOC Youth Forum
– Emma Ósk Ragnarsdóttir, ungmennafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði barna og ungmenna
4. Þátttaka ungs fólks í Evrópu
4.1. Evrópski ungmennavettvangurinn (YFJ)
– Sara Þöll Finnbogadóttir, fyrrv. alþjóðafulltrúi LUF og frambjóðandi LUF til stjórnar YFJ
4.2. Evrópuráðið og Evrópusambandið
– Jessý Jónsdóttir, fyrrv. alþjóðafulltrúi LUF og fulltrúi LUF í ráðgjafaráði Evrópuráðsins um málefni ungs fólks
4.4. Tækifæri í Evrópu
– Guðmundur Ari Sigurjónsson, sérfræðingur hjá Rannís
5. Þátttaka ungs fólks á Norðurlöndunum
– Viktor Ingi Lorange, fyrrv. varaforseti LUF / oddviti leiðtogaráðs og formaður Ung norræn
5.1. Norðurlandaráð ungs fólks
5.2. Norræn samstarfsverkefni
5.3. Tækifæri á Norðurlöndunum
6. Vinnustofa: Tillögur til stjórnvalda um hvernig má efla þátttöku ungs fólks í stefnumótun og ákvarðanatöku sem hefur áhrif á réttindi og lífskjör yngri kynslóða.
