Fæddur leiðtogi?
Eru einhverjir fæddir leiðtogar, og aðrir fylgjendur? Hvernig getum við aukið færni okkar í að leiða hópa, selja hugmyndir okkar og fá aðra í lið með okkur? Eiga allir leiðtogar ákveðin einkenni sameiginleg? Námskeiðið er á vegum JCI á Íslandi og er fyrir alla sem vilja verða betri leiðtogar og hafa áhuga á leiðtogafærni.
ÁVINNINGUR:
– Geta til að greina helstu einkenni leiðtoga
– Aukin skilningur á hugmyndum um „fædda leiðtoga“ og fylgjendur
– Aukin færni í að selja hugmyndir
– Aukin færni í að greina ólíkar hópasamsetningar og persónugerðir
– Aukna innsýn til að vaxa sem leiðtogar