Evrópski Ungmennavettvangurinn

LUF er aðili að Evrópska ungmennavettvangnum (YFJ), valdamestu alþjóðlegu regnhlífasamtökum ungs fólks í heiminum. YFJ er viðurkenndur lögmætur fulltrúi Evrópskra ungmennafélaga gagnvart alþjóðastofnunum á borð við Evrópuráðið, Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar. Þar er LUF virkur þátttakandi sem hagsmunaaðili ungra Íslendinga á alþjóðavettvangi. Á ensku heitir LUF „The National Youth Council of Iceland“ og innan þessarra alþjóðlegu heildarsamtaka koma saman öll „National Youth Councils“ (NYCs) í Evrópu, auk annarra evrópskra ungmennasamtaka. Þar hefur LUF áhrif á stefnumótun innan Evrópu og tekur þátt í alþjóðlegu samstarfi fyrir hönd Íslands. Uppbygging LUF er eins og annarra NYCs innan Evrópulandanna til að standast alþjóðlegar kröfur: Lýðræðisleg regnhlífarsamtök frjálsra félagasamtaka þar sem einungis ungt fólk fer með allt ákvarðanavald. Í YFJ vinnur LUF með almenn réttindi ungs fólks og þátttökurétt þeirra. Þetta felur meðal annars í sér lækkunar kosningaaldurs og þátttöku ungs fólks í ákvörðunarferli ESB og Evrópuráðsins.

Evrópusambandið (ESB) er mikilvægur aðili þegar kemur að stefnumörkun ungs fólks. Það er vegna þess að sambandið stendur fyrir aðgerðum og stefnum sem miðast að ungu fólki í Evrópu. Þar sem Ísland er ekki beinn þátttakandi í þeirri stefnumörkun sem ESB-aðildarríki eða í gegnum EES-samninginn erum við háð öflugri þátttöku í YFJ til að hafa áhrif á stefnur sem hafa áhrif á íslensk ungmenni og hagsmuni þeirra. Dæmi um aðgerðir ESB sem hafa áhrif á ungt fólk eru m.a. stuðningskerfi í gegnum ERASMUS+.

Það sama má segja um Evrópuráðið, þar sem Ísland er aðili og virkur þátttakandi, m.a. annars í stefnumótun er kemur að ungu fólki. YFJ skipar í Ráðgjafaráð ungmenna hjá Evrópuráðinu (e. Advisory Council on Youth) sem er ráðgefandi varðandi ákvarðanatöku og stefnumótun er viðkemur ungu fólki. Þar hefur LUF átt fulltrúa.

LUF vinnur náið með systurfélögum okkar á Norðurlöndunum og Eystrasalti sem sameinast um tilnefningar og kjör til stjórnar European Youth Forum (YFJ) og stjórnarmenn LUF taka þátt í aðal- og félagsfundum YFJ.