Evrópuráðið óskar eftir umsóknum fyrir ungmennafulltrúa á Sveitarstjórnarþing Evrópuráðsins.

Auglýst er eftir umsóknum frá fólki á aldrinum 18-30 ára sem eru tilbúin að sækja og taka virkan þátt í tveimur þingfundum ráðsins: 31. mars – 2. apríl 2026 og 27.-29. október 2026.

Umsóknir þurfa að berast fyrir 15. desember 2025.

Umsóknarformið er að finna hér

Nánari upplýsingar á ensku má finna hér

Hvað er á Sveitastjórnarþing Evrópuráðsins?

Þingið er samevrópskt stjórnmálaþing, meðlimir þess eru kjörnir fulltrúar yfir 150.000 svæðis- og sveitastjórna í 47 Evrópuríkjum. Hlutverk þess er að efla byggða- og svæðisbundið lýðræði, bæta stjórn sveitarfélaga efla sjálfsstjórn sveitarfélaga. Það kemur saman til fundar tvisvar á ári.

Eins og önnur pólitísk þing, eins og þjóðþing eða sveitarstjórnir/svæðisráð, eru fundir formlegar samkomur þar sem þingmenn skoða skýrslur, halda þemaumræður og samþykkja tillögur.

Þingið og þátttaka ungmenna

Frá því í október 2014 hefur þingið boðið ungu fagfólki af ólíkum uppruna – ungum sjálfboðaliðum, starfsmönnum ungmennafélaga og nemendum að taka þátt í fundum þess.

Frá árinu 2016, sem óaðskiljanlegur hluti af þátttöku þeirra, hefur ungmennafulltrúum auk þess verið gert að þróa eigin verkefni á staðbundnum og svæðisbundnum vettvangi á milli fundanna.

Þátttaka á þinginu í eitt ár

Að vera ungmennafulltrúi í eitt ár er einstakt tækifæri til að öðlast alþjóðlega reynslu, verða hluti af fjölbreyttum hópi ungra aðgerðasinna, tengjast tengslanetinu og hafa áhrif með því að örva umræður út frá sjónarhóli ungmenna og þar með varpa ljósi á og styrkja skuldbindingu þingsins við ungmennamál og valdeflingu.

Stefna og markmið

Með því að bjóða fjölda ungmenna að taka virkan þátt í þingum þess miðar þingið að því að gefa ungu fólki tækifæri til að tjá skoðanir sínar á öllum þeim málum sem verið er að ræða beint við kjörna fulltrúa á staðnum.

Sérstök markmið eru að:

  • tryggja þátttöku ungs fólks í öllum þáttum þingsins;
  • gera ungt fólk meðvitað um starf þingsins og þau tæki sem það hefur þróað til að styðja við þátttöku ungs fólks;
  • ræða við ungt fólk um hvernig hægt er að efla þátttöku ungmenna í sveitastjórnum;
  • koma með sjónarhorn ungmenna í allar þemaumræður innan þingsins;
  • hvetja ungmennafulltrúana til að dreifa þeim upplýsingum og reynslu sem aflað er á fundunum við heimkomuna, einkum með þróun og framkvæmd eigin verkefna á vettvangi sveitarfélaga;
  • stuðla að samstarfi þingmanna ráðsins og ungmennafulltrúa.

Dagskrá

Skylduþátttaka er í allri dagskrá ungmennafulltrúa.

Skylduþátttakan felur í sér:

  • þátttaka í undirbúningi á netinu með þjálfurum fyrir hvern þingfund;
  • full mæting á báðum þingfundum;
  • þátttaka í nokkrum fundum í gegnum netið (apríl – september) með þjálfurum til að undirbúa ungmennaverkefni;
  • framkvæmd verkefnisins á tímabilinu apríl til miðjan september 2026.

Kröfur til þátttakenda

Allir ungmennafulltrúar ættu að:

  • vera opin, ábyrg og áhugasöm um að þróa og efla samtal milli ungs fólks og kjörinna fulltrúa á vettvangi sveitarfélaga;
  • vera á aldrinum 18 til 30 ára;
  • búa í og hafa vegabréf í einu af 47 aðildarríkjum Evrópuráðsins;
  • vera virkur í ungmennastarfi á staðbundnum og svæðisbundnum vettvangi;
  • vera til staðar til að taka þátt í allri starfseminni, þar með talið undirbúningi ungmennaverkefna;
  • hafa áhuga á að taka virkan þátt í stefnumótun á staðbundnum og/eða svæðisbundnum vettvangi en ekki vera kjörinn fulltrúi;
  • geta útdeilt þeim upplýsingum sem fengust á fundinum þegar þau koma heim;
  • hafa góða rit- og ræðukunnáttu;
  • geta unnið í fjölmenningarlegu teymi;
  • hafa ekki tekið þátt í framtakinu áður;
  • tala ensku reiprennandi.

Ferðalög, uppihald og gisting

  • ferða- og dvalarkostnaður ungmennafulltrúanna verður greiddur af sveitarstjórnarþinginu samkvæmt reglum Evrópuráðsins;
  • gisting verður útveguð og greidd af skipuleggjendum, í einstaklings- eða sameiginlegum herbergjum eftir framboði. Skipuleggjendur geta ekki staðið undir kostnaði við gistingu annars staðar en þeirri sem er útvegað.

Umsóknarferli og val á þátttakendum

Þau sem vilja sækja um að taka þátt í þingfundunum verða að gera það með umsóknareyðublaðinu hér að ofan. Þátttaka í einum þingfundi er ekki möguleg.

Ungmennafulltrúarnir verða valdir af valnefnd sem samanstendur af talsmanni þingsins um málefni ungmenna, ungmennaþjálfarar og tveir meðlimir í ráðgjafaráði Evrópuráðsins um ungt fólk. Nefndin mun sjá til þess að valdir umsækjendur séu fulltrúar fjölbreytts hóps með tilliti til kyns, menningarbakgrunns og reynslu.

Umsækjendum verður tilkynnt um ákvörðun valnefndarinnar fyrir 10. febrúar 2026.

Frekari fyrirspurnir sendist á Óttar F. Gísalson (ottarfreyr@samband.is), forstöðumann Evrópuskrifstofu Sambandins