Gabríel ráðinn framkvæmdastjóri
Gabríel Ingimarsson nýr framkvæmdastjóri LUF Gabríel Ingimarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri LUF – Landssambands Ungmennafélaga og hefur þegar hafið störf. Sem framkvæmdastjóri landssambandsins mun Gabríel sinna daglegum rekstri LUF ásamt almennri verkefnastjórnun og hagsmunagæslu aðildarfélaga. Gabríel starfaði áður sem rekstrarstjóri Hríseyjarbúðarinnar frá ágúst 2024 og [...]
Skörungurinn 2025
Skörungur – íslensku ungmennaverðlaunin fóru fram í þriðja sinn föstudaginn 5. desember á alþjóðlegum degi sjálfboðaliðans. Um er að ræða þakkar- og hvatningarviðburð ungs fólks þar sem sjálfboðaliðastörf og framtök í þágu hagsmuna og réttinda ungs fólks eru heiðruð. Verðlaunin tóku við af viðburðnum Félagi ársins sem [...]
Annar leiðtogaráðsfundur LUF 2025
Annar leiðtogaráðsfundur starfsársins Annar leiðtogaráðsfundur Landssambands ungmennafélaga (LUF) á starfsárinu 2025-2026 fór fram 15. nóvember í Háskólanum í Reykjavík. Ragnheiður Geirsdóttir, málefnafulltrúi LUF kynnti fyrri hluta samfélagsmiðlaherferðar sem hleypt var af stað eftir fyrri leiðtogaráðsfund ársins. Staða framkvæmdaáætlunar LUF fyrir starfsárið var sömuleiðis kynnt af Sylvíu [...]
Evrópuráðið óskar eftir umsóknum fyrir ungmennafulltrúa á Sveitarstjórnarþing Evrópuráðsins
Evrópuráðið óskar eftir umsóknum fyrir ungmennafulltrúa á Sveitarstjórnarþing Evrópuráðsins. Auglýst er eftir umsóknum frá fólki á aldrinum 18-30 ára sem eru tilbúin að sækja og taka virkan þátt í tveimur þingfundum ráðsins: 31. mars – 2. apríl 2026 og 27.-29. október 2026. Umsóknir þurfa að berast fyrir [...]
Skörungurinn – íslensku ungmennaverðlaunin 2025
Skörungur | LUF auglýsir eftir tilnefningum til íslensku ungmennaverðlaunanna 2025 Skörungur - íslensku ungmennaverðlaunin verða veitt á degi sjálfboðaliðans þann 5. desember, kl. 17:00 í Mannréttindahúsinu að Sigtúni 42. Um er að ræða þakkar- og hvatningarviðburð ungs fólks sem haldinn er í þriðja [...]
LUF auglýsir eftir framkvæmdastjóra
Starfsauglýsing: Framkvæmdastjóri Starfið Stjórn Landssambands ungmennafélaga auglýsir eftir framkvæmdastjóra í 70-100% starfshlutfall. LUF er þverpólitískur samráðsvettvangur og gætir hagsmuna ungs fólks. Umsækjendur þurfa því að geta verið hlutlausir og starfað í þágu félagsins og allra þeirra aðildarfélaga sem eru innan LUF. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið [...]
Vinnustofa um öryggis- og varnarmál – seinni partur
Þann 15. október fóru félagsmenn LUF í heimsókn í utanríkisráðuneytið til þess að fræðast um öryggis- og varnarmál. Þar tóku á móti okkur Andri Júlíusson og Steingrímur Sigurgeirsson af varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins. Andri byrjaði á að fara yfir helstu verkefni varnarmálaskrifstofu og svo fór Steingrímur yfir inntak og [...]
AUGLÝSING EFTIR FRAMBOÐUM UNGMENNAFULLTRÚA ÍSLANDS HJÁ SAMEINUÐU ÞJÓÐUNUM
Landssamband ungmennafélaga (LUF), í samstarfi við Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, auglýsir eftir framboðum ungs fólks á aldrinum 18-25 ára til að gegna stöðu ungmennafulltrúa Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum. Kjörið verður í stöður tveggja ungmennafulltrúa: á sviði sjálfbærrar þróunar, og barna og ungmenna. Fer kjörið fram á [...]
LUF auglýsir eftir þjálfurum fyrir Leiðtogaskóla Íslands 2025-26
Landssamband ungmennafélaga (LUF) kallar eftir umsóknum um stöður þjálfara til þess að leiða námskeið í Leiðtogaskóla Íslands 2026. LUF vinnur nú að áframhaldandi uppbyggingu Þjálfarateymis LUF (e. Pool of Trainers – PoT) – sem er aðferð sem notuð er víða í Evrópu til þess að byggja upp getu [...]
Alþjóðaráðsfundur
Alþjóðaráð kom saman 18. september. Snæfríður Blær Tindsdóttir, oddviti alþjóðaráðs og alþjóðafulltrúi LUF setti fundinn og fór í kjölfarið yfir umgjörð alþjóðastarfs LUF. Embla María Möller Atladóttir, lýðræðisfulltrúi LUF, fór svo yfir þátttöku ungs fólks og norrænt samstarf. En hún situr fyrir hönd LUF í NORD sem [...]
Vinnustofa um öryggis- og varnarmál – fyrri partur
Þann 14. ágúst fór fram vinnustofa um öryggis- og varnarmál í Mannréttindahúsinu. Ragnheiður Geirsdóttir, málefnafulltrúi LUF, opnaði fundinn og hélt tölu um Youth, Peace and Security ályktun Sameinuðu þjóðanna. í kjölfarið kynnti Stefanía Reynisdóttir, formaður Skjaldar - YATA Iceland, félagið og fór yfir hvernig ungt fólk [...]
Vísindaferð í Mennta- og barnamálaráðuneytið og heimsókn til SUS
Um miðjan júní fóru félagsmenn LUF í heimsókn í Mennta- og barnamálaráðuneytið. Þar tóku á móti okkur sérfræðingar ráðuneytisins í æskulýðsmálum. Dagskráin hófst á stuttri tölu frá mennta- og barnamálaráðherra, Guðmundi Inga Kristinssyni þar sem hann sagði okkur frá sínum störfum og spurði félagsmenn LUF út í [...]











