Fyrsti leiðtogaráðsfundur starfsársins
Fyrsti leiðtogaráðsfundur LUF, starfsárið 2025-2026 fór fram 15. mars í Veröld, húsi Vigdísar.
Á fundinum var framkvæmdaáætlun og fjárhagsáætlun samþykkt. Ragnheiður Geirsdóttir, málefnafulltrúi LUF kynnti réttindaherferð sem stjórn hyggst standa fyrir á sumarmánuðum og miðar að því að kynna og fylgja eftir tilmælum til stjórnvalda. Snæfríður Blær Tindsdóttir, alþjóðafulltrúi LUF kynnti nýjar reglur um alþjóðastarf LUF sem lágu fyrir fundinum og hlutu samþykki. Með þeim er verið að samþætta regluverk um alþjóðamál, skýra efnisreglur sem varða sendinefnd LUF gagnvart Sameinuðu þjóðunum og efla umgjörð alþjóðastarfsins á innlendum og erlendum vettvangi.


Kjör fulltrúa leiðtogaráðs
Kjör tveggja nýrra ungmennafulltrúa fór fram á fundinum. Var Védís Drótt Cortez, fulltrúi ungmennaráðs UN WOMEN kjörin ungmennafulltrúi Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum á sviði kynjajafnréttis og Laura Sólveg Lefort Scheffer, fulltrúi Ungra umhverfissinna, kjörin á sviði loftslagsmála. Eru þær kjörnar til tveggja ára í samræmi við „junior/senior” kerfis sendinefndar LUF. Þá var Hrefna Ósk Maríudóttir, fulltrúi Q – félags hinsegin stúdenta kjörin fulltrúi leiðtogaráðs í stjórn Leiðtogaskóla Íslands.

Roði, ungir sósíalistar lögðu fram ályktun um að ríkisstjórnin skuli beita sér gegn meintu þjóðarmorði og virða alþjóðalög. Þrátt fyrir ágreining um efni tillögunnar, ríkti samstaða um að nauðsyn þess að hún yrði afgreidd og áttu sér stað fjörugar umræður um innihald hennar. Afraksturinn var nokkuð breytt tillaga sem hlaut brautargengi hjá leiðtogaráði. Hefur LUF því markað sér stefnu í þessu máli.
Síðasti leiðtogaráðsfundur Tinnu Isebarn
Tilkynnt var nýlega að Tinna Isebarn, framkvæmdastjóri LUF, mun láta af störfum í júnímánuði. Fundurinn var hennar síðasti á vettvangi LUF, tók hún til máls í lok hans og bókaði eftirfarandi:
“Það hefur verið heiður lífs míns að hafa fengið tækifæri og traust til að vinna fyrir ykkur. Ég ber ómælda virðingu fyrir þessum vettvangi og ykkar vinnu.“
