Gabríel Ingimarsson nýr framkvæmdastjóri LUF

Gabríel Ingimarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri LUF – Landssambands Ungmennafélaga og hefur þegar hafið störf. Sem framkvæmdastjóri landssambandsins mun Gabríel sinna daglegum rekstri LUF ásamt almennri verkefnastjórnun og hagsmunagæslu aðildarfélaga.

Gabríel starfaði áður sem rekstrarstjóri Hríseyjarbúðarinnar frá ágúst 2024 og þar á undan sem sérfræðingur í fjármáladeild Össurar í þrjú ár. Hann er með BS próf í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands með áherslu á fjármál. Þá hefur Gabríel víðtæka reynslu úr starfi ungliðahreyfinga og á vettvangi LUF en hann starfaði í tvö ár sem forseti Uppreisnar.

Gabríel kveðst einstaklega spenntur fyrir verkefnunum framundan hjá LUF og að vinna fyrir hagsmunum og í þágu ungs fólks.