Síðast liðið haust samþykkti forseti Íslands, Halla Tómasdóttir að gerast verndari Leiðtogaskóla Íslands. Þetta er mikill heiður fyrir félagið og það starf sem hefur verið unnið undan farin ár í Leiðtogaskóla Íslands. Sem verndari skólans veitir forseti Íslands ungum Íslendingum verðskuldaða viðurkenningu fyrir óeigingjarnt framlag þeirra til hagsmuna- og félagsstarfs ungs fólks. Í kjölfarið bauð forseti okkur á fund sinn að Bessastöðum og fóru stjórn og skrifstofa á fund forseta þann 28. febrúar síðast liðinn. Stjórn Landssambands ungmennafélaga átti gott samtal við forseta og þökkum við henni fyrir hlýjar móttökur. Hún er sannarlega forseti ungs fólks á Íslandi.