Þann 20. nóvember síðast heimsótti stjórn og starfsfólk LUF Alþingi. Birgir Ármannsson þáverandi forseti þingsins og verndari Landssambands Ungmennafélaga tók vel á móti okkur. Heimsóknin var skemmtileg og fróðleg enda fáir sem kunna sögu þingsins betur en Birgir Ármannsson og kunnum við honum bestu þakkir fyrir góðar móttökur og leiðsögn um þessa merku stofnun.