Ungmennafulltrúar Íslands hjá Sameinuðu Þjóðunum
Ungmennafulltrúar Íslands skipa sendinefnd íslenskra ungmenna hjá Sameinuðu þjóðunum. Ungmennafulltrúarnir eru lýðræðislega kjörnir af aðildarfélögum LUF og sækja viðburði Sameinuðu þjóðanna í umboði íslenskra ungmenna. Sendinefnin er samstarfsverkefni LUF og Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi sem vinna að aukinni þátttöku Ungmennafulltrúa Íslands á viðburðum Sameinuðu þjóðanna (e. UN Youth Delegation Programme).


Mannréttindi
Ungmennafulltrúar Íslands á sviði mannréttinda sækja allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York. Fulltrúar allra aðildarríkja eiga sæti á allsherjarþinginu og hefur hvert ríki eitt atkvæði en aðildarríkin eru nú 193 talsins.
Allsherjarþingið (e. United Nations General Assembly, UNGA) stendur yfir í eitt ár og kemur saman um miðjan september þegar þjóðarleiðtogar sækja sérstaka leiðtogaviku (e. High-level political week, HLPW). Þingið meðal annars samþykkir ný aðildarríki að fenginni tillögu öryggisráðsins. Ályktanir þingsins geta orðið grundvöllur nýs ferlis sem leiðir til skuldbindandi alþjóðasamninga og með þeim hætti orðið að þjóðarrétti.
Ísland var kjörið til setu í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna til þriggja ára, 2025 til 2027 og sérstök áhersla verður lögð á mannréttindi kvenna og stúlkna, réttindi barna, virðingu fyrir réttindum hinsegin fólks og áhrif áskorana í umhverfismálum á mannréttindi. Ungmennafulltrúarnir sækja viðburði á vegum mannréttindaráðsins á meðan að ísland á sæti þar.

ÞÓrhildur Davíðsdóttir Söebech

Kjartan Leifur Sigurðsson


human.rights(hjá)youth.is
Kynjajafnrétti
Ungmennafulltrúar Íslands á sviði kynjajafnréttis sækja árlegan kvennafund Sameinuðu þjóðanna (e. Commision on the Status of Women, CSW) í höfuðstöðvunum í New York. Fundurinn er vettvangur fyrir aðildarríki til þess að deila reynslu sinni og aðferðum í þeim tilgangi að styða við jafnrétti og styrkja stöðu kvenna og stúlkna um allan heim. Fundurinn er einn helsti vettvangur milliríkjasamstarfs í heiminum sem beinir sjónum að kynjajafnrétti og bættri stöðu kvenna og sitja 45 ríki í stjórn kvennanefndarinnar hverju sinni.
Fundurinn er frábrugðin mörgum öðrum í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna að því leiti að frjáls félagasamtök og grasrótarhreyfingar fá tækifæri til þess að sitja fundinn og fjölmörg félagasamtök á Íslandi mæta ár hvert.

Védís Drótt Cortez

Heiðrún Vala Hilmisdóttir


gender.equality(hjá)youth.is
Loftslagsmál
Ungmennafulltrúar Íslands á sviði loftslagsmála sækja árlega loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (e. Conference of the Parties, COP) en staðsetning ráðstefnunnar færist á milli ríkjahópa Sameinuðu þjóðanna. Tilgangur ráðstefnunnar er eftirfylgni og uppfærsla á Loftslagssamningi Sameinuðu Þjóðanna (e. United Nations Framework Convention on Climate Change, UNFCCC) og eru ákvarðanir hennar því lagalega bindandi fyrir aðildarríkin.
Markmið samningsins er „að koma í veg fyrir hættulega röskun á loftslagskerfinu af mannavöldum, og tryggja þannig að matvælaframleiðslu í heiminum verði ekki stefnt í hættu og að efnahagsþróun geti haldið áfram á sjálfbæran máta. Jafnframt er það markmið samningsins að stuðla að alþjóðlegri samvinnu um að auðvelda félagslega og efnahagslega aðlögun að loftslagsbreytingum.“ Tvær bókanir hafa verið gerðar við samninginn vegna losunar gróðurhúsalofttegunda. Bókanirnar eru kenndar við þær borgir sem loftslagsráðstefnan var haldin í það ár, Kýótóbókunin 1997 og Parísarsáttmálinn 2015.

vIKTOR pÉTUR fINNSSON

lAURA sÓLVEIG lEFORT sCHEEFER


climate.change(hjá)youth.is
Börn og ungmenni
Ungmennafulltrúar Íslands á sviði barna og ungmenna sækja ungmennavettvang efnahags- og félagsmálaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. The Economic and Social Council (ECOSOC) Youth forum) í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York. Á vettvangnum fá ungmenni tækifæri til þess að taka þátt í umræðum um stefnu Sameinuðu þjóðanna og vinna sameiginlega að tillögum sem teknar eru fyrir á ráðherrafundi Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun (e. High-Level Political Forum, HLPF). Markmið fundarins er að vinna að Heimsmarkmiðum sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun með virkri þátttöku ungmenna um allan heim.

Hjördís Freyja Kjartansdóttir

Gunnar Ásgrímsson


children(hjá)youth.is
Sjálfbær þróun
Ungmennafulltrúar Íslands á sviði sjálfbærar þróunar sækja ráðherrafund Sameinuðu þjóðanna (e. High-Level Political Forum on Sustainable Development, HLPF) í höfuðstöðvum þess í New York. Ráðherrafundurinn er haldinn af Efnahags- og félagsmálaráði Sameinuðu þjóðanna (ECOSOC) en á hverju ári eru ákveðin markmið heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna tekin fyrir og rýnt sérstaklega í.

Ragnhildur Katla Jónsdóttir

Ragnhildur Elín Skúladóttir


sustainable.development(hjá)youth.is
Menntun, vísindi og menning
Ungmennafulltrúi Íslands á sviði menntunar vísinda og menningar sækir ýmsa viðburði á vegum mennta-, vísinda- og menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, (e. United Nations Educational, Scientific and Cultural Organization, UNESCO) en stofnunin heyrir undir efnahags- og félagsmálaráð Sameinuðu þjóðanna (ECOSOC). Ungmennafulltrúar frá Íslandi sækja aðalráðstefnu UNESCO í höfuðstöðvum þess í París sem haldin er annað hvert ár. Á ráðstefnunni er stefna UNESCO ákveðin og kosið í framkvæmdastjórn stofnunarinnar. Sömuleiðis sækir ungmennafulltrúinn ungmennaþing UNESCO (e. UNESCO Youth Forum).
Ungmennafulltrúi Íslands tekur sæti í íslensku UNESCO-nefndinni. Nefndin er ríkisstjórninni og sendinefnd Íslands á aðalráðstefnu UNESCO til ráðuneytis í málum er varða UNESCO og tengiliður á milli UNESCO og íslenskra mennta-, vísinda- og annara menningarstofnana.

Arna Dís Heiðarsdóttir
unesco(hjá)youth.is


Skipun fulltrúa
Öll aðildarfélög LUF (með fulla aðild og áheyrnaraðild) geta boðið fram einn fulltrúa í hvert embætti. Áhugasamir félagsmenn aðildarfélaga LUF þurfa því að óska eftir umboði frá stjórn viðkomandi félags fyrir settan framboðsfrest. Stjórnin tilkynnir framboð með því að fylla út skráningarform sem öll aðildarfélög fá í fundarboði. Skipun nýrra fulltrúa er iðulega auglýst á vefsíðu og Facebook-síðu LUF og kosningar fara fram ýmist á leiðtogaráðsfundum eða sambandsþingi LUF.
Með umboði staðfestir stjórn að frambjóðandinn uppfylli eftirfarandi hæfnikröfur:
Hæfnikröfur:
- Umboð frá aðildarfélagi LUF.
- Vera á aldrinum 18 (þegar viðburður hefst) – 25 ára.
- Hafa þekkingu á málefnasviðinu.
- Hafa reynslu af hagsmunastarfi ungmennafélaga.
- Búa yfir leiðtogahæfni og frumkvæði.
- Hafa vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
- Viðeigandi menntun sem nýtist í embætti / þekking á Sameinuðu þjóðunum er kostur.
Embættið er sjálfboðastarf, að dagpeningum erlendis undanskildum.
Ungmennafélög þurfa að falla undir regnhlíf LUF til að geta tilnefnt fulltrúa. Önnur félög sem falla undir kröfur LUF, eru lýðræðisleg, frjáls félagasamtök stýrð af ungi fólki, geta kynnt sér aðgangskröfur LUF og sótt um aðild hér. Meðferð umsókna fer fram á sambandsþingi LUF í upphafi hvers árs.
Kosningaferli
Frambjóðendur þurfa meirihluta atkvæða til að hljóta kjör. Á kosningafundinum, hvort sem á leiðtogaráðsfundi eða sambandsþingi LUF, fá fulltrúar tækifæri til að kynna stefnumál sín í framboðsræðu. Í kjölfarið er kosið í einni eða tveimur umferðum þar til hreinn meirihluti liggur fyrir. Aðildarfélög skrá þingfulltrúa fyrir fundi og hver fulltrúi ber eitt atkvæði á leiðtogaráðsfundum en atkvæði eru vigtuð eftir stærð félaga á sambandsþingjum.
