„Þú veist eflaust um ungan Íslending sem á skilið viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur. Vilt þú tilnefna þennan einstakling til verðlauna?“ Segir í fréttatilkynningu JCI á Ísland.
JCI, sem er eitt aðildarfélaga LUF, óskar eftir tilnefningum til verðlaunanna: „Framúrskarandi ungur Íslendingur“ árið 2020. Verðlaunin eru veitt einstaklingum sem hafa tekist á við krefjandi og athyglisverð verkefni og hafa náð góðum árangri. Markmið verðlaunanna eru að veita ungu fólki hvatningu til frekari dáða og vekja athygli á verkum þeirra.
Tilnefnt í tíu flokkum
Skilyrði fyrir tilnefningu er að viðkomandi einstaklingar hafi með sýnilegum hætti skarað fram úr, verið góðar fyrirmyndir og gefið af sér til samfélagsins. Séu þessi skilyrði uppfyllt komast þau í lokaúrtak sem dómnefnd sker svo úr um. Verðlaunin eru veitt einstakling á aldrinum 18-40 ára.
Tilnefnt er í tíu mismunandi flokkum, þeir eru eftirfarandi:
- Störf á sviði viðskipta, frumkvöðla og/eða hagfræði.
- Störf á sviði stjórnmála, ríkismála og/eða lögfræði.
- Leiðtogar/afrek á sviði menntamála.
- Störf /afrek á sviði menningar.
- Störf á sviði siðferðis og/eða umhverfismála.
- Framlag til barna, heimsfriðar og/eða mannréttinda.
- Störf á sviði mannúðar og/eða sjálfboðaliðamála.
- Störf á sviði tækni og/eða vísinda.
- Einstaklingssigrar og/eða afrek.
- Störf /uppgötvanir á sviði læknisfræði.
Tilnefningar fara fram á heimasíðu verkefnisins; Framúrskarandi.is.
Úr tilnefningum er valinn topp 10 hópur af einstaklingum sem fær viðurkenningu fyrir framúrskarandi störf á sínu sviði. Úr þeim hóp fær einn einstaklingur verðlaun sem afhent eru af forseta Íslands, verndara verkefnisins. Verðlaunin verða veitt í október nk. og opið er fyrir tilnefningar til og með sunnudeginum 13. september.
Hvatning á heimsvísu
Verðlaunin eru hluti af alþjóðlegu verðlaununum „Ten Outstanding Young Persons awards“ og eru veitt árlega af Junior Chamber International.
JCI á Íslandi hefur veitt verðlaunin hérlendis óslitið frá árinu 2002 en á heimsvísu eiga þau sér sögu aftur til miðbiks síðustu aldar. Tveir Íslendingar hafa hlotið verðlaunin á heimsvísu, þau Kristín Rós Hákonardóttir íþróttakona og frumkvöðullinn Guðjón Már Guðjónsson í Oz. Þá með bættust þau í hóp verðlaunahafa á borð við John F. Kennedy, Elvis Presley og Jackie Chan.
Á Íslandi hafa einnig fjölmargir framúrskarandi einstaklingar verið verðlaunaðir, þar má nefna Pétur Halldórsson, formann Ungra Umhverfissinna, sem er einnig aðildarfélag LUF. Auk hans hafa þau Ingileif Friðriksdóttir, Ævar Þór Benediktsson, Sævar Helgi Bragason, Vilborg Arna Gissurardóttir, Emilíana Torrini til að mynda hlotið verðlaunin.

Pétur Halldórsson verðalunahafi ásamt, Fanneyju Þórsdóttur, landsforseta JCI 2019 og Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands.
LUF hvetur félagsmenn aðildarfélaga sinna til að tilnefna til verðlaunanna.
Frekari upplýsingar veita þau: Þorkell Pétursson, Verkefnastjóri JCI og Guðlaug Birna Björnsdóttir, landsforseti JCI.