Starfsauglýsing: Framkvæmdastjóri
Starfið
Stjórn Landssambands ungmennafélaga auglýsir eftir framkvæmdastjóra í 70-100% starfshlutfall. LUF er þverpólitískur samráðsvettvangur og gætir hagsmuna ungs fólks. Umsækjendur þurfa því að geta verið hlutlausir og starfað í þágu félagsins og allra þeirra aðildarfélaga sem eru innan LUF. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í janúar 2026.
Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri félagsins og framþróun vettvangsins. Á könnu framkvæmdastjóra er einnig almenn verkefnastjórnun, fjáröflun/fjármál félagsins og almenn hagsmunagæsla. Framkvæmdastjóri starfar fyrir stjórn Landssambands ungmennafélaga og þjónustar einnig aðildarfélögin. Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á því að lögbundnum verkefnum félagsins sé sinnt og að vettvangurinn sé raunverulegt hagsmunaafl ungs fólks.
Skrifstofa félagsins er í Mannréttindahúsinu að Sigtúni 42.
Helstu verkefni og ábyrgðir
- Skipulagning og framkvæmd lögbundinna verkefna ásamt öðrum verkefnum sem stjórn ákvarðar.
- Umsjón og verkefnastjórn viðburða og verkefna.
- Umsjón með alþjóðastarfi félagsins.
- Samskipti við innlenda og erlenda samstarfsaðila, ráðuneyti og aðra aðila.
- Umsjón með umsókn styrkja og fjáröflunar fyrir félagið.
- Umsjón með skilum á skýrslum, umsögnum og öðru.
- Umsjón með skjölun gagna.
- Umsjón með gerð fjármálaáætlana, ársreiknings og uppgjörs í samstarfi við gjaldkera og bókara.
- Sjá um styrki og skil á skýrslum vegna styrkja m.a. gagnvart opinberum aðilum og alþjóðlegum sjóðum.
- Yfirumsjón með fjármögnun og fjáröflun fyrir félagið.
- Vinna náið með stjórn LUF til að framfylgja framkvæmdaáætlun félagsins og stefnu þess í hvívetna.
- Undirbúningur gagna fyrir stjórnarfundi og lögbundna fundi.
- Styðja við og þjónusta aðildarfélög LUF.
- Aðstoða við skipulagningu funda og ráðgjöf fyrir aðildarfélög sem og stjórnarmeðlimi.
- Umsjón með samfélagsmiðlum LUF, vefsíðu félagsins og samskipti við fjölmiðla.
Hæfni
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Góð skipulagshæfni og reynsla af verkefnastjórnun.
- Reynsla af félagsstörfum og þekking á borgarasamfélagi ungs fólks.
- Þekking á íslenskri stjórnsýslu og áhugi á þjóðmálum/samfélagslegri umræðu.
- Framúrskarandi hæfni í íslensku og ensku í rituðu og töluðu máli.
- Viðkomandi þarf að sýna frumkvæði í starfi og hafa hæfni til að vinna sjálfstætt.
- Þekking/reynsla af því að sækja um í sjóði t.d. hjá Rannís.
- Þekking á hagsmunagæslu.
- Reynsla af ungmennastarfi.
- Reynsla af því að vinna með canva, wordpress og önnur sambærileg forrit.
- Brennandi áhugi á hagsmunum ungs fólks og alþjóðlegu samstarfi.
Um Landssamband ungmennafélaga
Landssamband ungmennafélaga (LUF) eru regnhlífarsamtök fyrir félagasamtök ungs fólks á Íslandi og samanstendur af 46 aðildarfélögum. LUF er sameign aðildarfélaganna, veitir þeim ekki samkeppni í starfi, heldur vinnur samkvæmt þeim. Aðildarfélög LUF eiga það sameiginlegt að vera lýðræðisleg, frjáls félagasamtök, sem starfa á landsvísu, leidd af ungu fólki og starfa með hagsmuni ungs fólks að leiðarljósi.
LUF er þverpólitískur samstarfs- og samráðsvettvangur, málsvari ungs fólks gagnvart íslenskum stjórnvöldum, talar fyrir hagsmunum ungra Íslendinga á alþjóðavettvangi og hefur upplýsingaskyldu að gegna gagnvart aðildarfélögunum sínum auk þess að þjónusta þau á margvíslegan hátt. LUF hefur það að markmiði að vernda og efla réttindi ungs fólks, valdefla ungt fólk í samfélaginu og hvetja til virkrar samfélagsþátttöku þeirra, efla samstarf ungmennafélaga og stuðla að umræðu og þekkingarsköpun um málaflokkinn. LUF er aðili að Evrópska ungmennavettvangnum (e. European Youth Forum – YFJ).
LUF er með samning við mennta- og barnamálaráðuneytið sem tryggir rekstur skrifstofu.
Áhugasamir sendi ferilskrá og kynningarbréf á youth@youth.is, nánari upplýsingar um starfið veitir forseti LUF.
