Landssamband ungmennafélaga (LUF) kallar hér með eftir tilnefningum frá aðildarfélögunum til „Félaga ársins 2022“. Þann 5. desember næstkomandi veitir LUF í fimmta sinn félagsmönnum viðurkenningar fyrir óeigingjarnt sjálfboðastarf innan aðildarfélaga LUF. Félagi ársins er hvatningarviðburður þar sem aðildarfélögin fá tækifæri til þess að velja framúrskarandi félaga sem þau vilja umbuna fyrir vel unnin störf. Valnefnd fer yfir tilnefningar og mun sá einstaklingur sem hefur á árinu 2022 tekið óeigingjarna forystu og sýnt alúð í starfi innan ungmennageirans hljóta nafnbótina „Félagi ársins 2022“. Allir sem hljóta tilnefningu taka við viðurkenningu þess efnis og fær Félagi ársins 2022 afhentan verðlaunagrip.
Hvert aðildarfélag getur tilnefnt einn einstakling til Félaga ársins 2022 og hvetur LUF öll aðildarfélög sín til þess að senda inn tilnefningu ásamt rökstuðningi hér. Frestur til þess að tilnefna Félaga ársins er eigi síðar en fimmtudaginn 1. desember 2022.
Í valnefnd sitja:
- Sigurður Sigurðsson, fyrrverandi forseti LUF
- Tinna Isebarn, framkvæmdastjóri LUF
- Viktor Ingi Lorange, oddviti Leiðtogaráðs LUF
„Félagi ársins“ fer fram á degi sjálfboðaliðans í Stúdentakjallaranum. Tilgangur viðburðarins er að vekja athygli á deginum og fyrir hvað hann stendur, en fyrst og fremst að hvetja ungt fólk í sjálfboðastarfi til dáða sem og varpa ljósi á vel unnin störf innan ungmennafélaga á Íslandi.