Vegna breytinga á stjórn LUF er hér með óskað eftir framboðum til embættis meðstjórnanda félagsins í samræmi við b-lið 24. gr. samþykkta LUF. Kjör meðstjórnanda mun fara fram á 2. fundi Leiðtogaráðs LUF þann 29. september nk. og rennur framboðsfrestur út á fundinum.

Fyrir hverja?

  • Meðlimi aðildarfélaga LUF á aldrinum 16-35 ára.
  • Þá sem hafa brennandi áhuga á málefnum ungs fólks á Íslandi og erlendis og vilja láta gott af sér leiða.
  • Reynsla/þekking á félagastörfum/hagsmunabaráttu er æskileg.
  • Tilvalið er að búa yfir leiðtogahæfileikum. 

Hvernig býð ég mig fram?

  1. Hvert aðildarfélag má tilnefna einn einstakling í stjórn. 
  2. Sá sem hyggst bjóða sig fram þarf umboð frá sínu félagi.
  3. Formaður félagsins skal senda tilnefningu með tölvupósti á youth@youth.is sem inniheldur fullt nafn frambjóðanda og það embætti sem sóst er eftir.
  4. Framboðsfrestur rennur út á leiðtogaráðsfundi LUF þann 29. september 2022.

LUF er regnhlífasamtök frjálsra félagasamtaka ungs fólks á Íslandi og þeim tilheyra 40 aðildarfélög. LUF er þverpólitískur samstarfs- og samráðsvettvangur, málsvari ungs fólks gagnvart íslenskum stjórnvöldum og talar fyrir hagsmunum ungra Íslendinga á alþjóðavettvangi. Nú er leitað eftir metnaðarfullu fólki til að taka sæti meðstjórnanda í stjórn LUF og annast rekstur félagsins á kjörtímabilinu 2022-2023.