Landssamband ungmennafélaga (LUF) í samstarfi við Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir eftir framboðum ungmenna á aldrinum 18-25 ára til að gegna stöðu ungmennafulltrúa Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum á sviði loftslagsmála (e. United Nations Youth Delegate of Iceland on Climate Change) í umboði íslenskra ungmenna. Fulltrúinn kemur til með að sækja 28. loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP28, sem fer fram í Dubai í desember 2023.
Ungmennafulltrúar Sameinuðu þjóðanna
Sendinefnin er samstarfsverkefni LUF og Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi sem vinna að aukinni þátttöku Ungmennafulltrúa Íslands á viðburðum Sameinuðu þjóðanna (e. UN Youth Delegation Programme). Ungmennafulltrúar eru lýðræðislega kjörnir af aðildarfélögum LUF og sækja viðburði Sameinuðu þjóðanna í umboði íslenskra ungmenna í samstarfi eftirfarandi ráðuneyti: Félags- og vinnumálaráðuneytið, forsætisráðuneytið, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, utanríkisráðuneytið, mennta- og barnamálaráðuneytið og menningar- og viðskiptaráðuneytið.
Hvernig býð ég mig fram?
Öll aðildarfélög LUF (með fulla aðild og áheyrnaraðild) geta boðið fram einn fulltrúa. Áhugasamir félagsmenn aðildarfélaga LUF þurfa því að óska eftir umboði frá stjórn viðkomandi félags. Stjórnin tilkynnir framboð með því að fylla út skráningarform, sem öll aðildarfélög koma til með að fá sent í fundarboði. Með umboði staðfestir stjórn að frambjóðandinn uppfylli eftirfarandi hæfniskröfur.
Hæfniskröfur:
- Umboð frá aðildarfélagi LUF.
- Vera á aldrinum 18 – 25 ára.
- Hafa þekkingu á Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
- Hafa reynslu af hagsmunastarfi ungmennafélaga.
- Búa yfir leiðtogahæfni og frumkvæði.
- Hafa vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
- Viðeigandi menntun sem nýtist í embætti / þekking á Sameinuðu þjóðunum er kostur.
- Hafa tök á að skuldbinda sig hlutverkinu til tveggja ára.
Framboðsfrestur er til og með 19. apríl (viku fyrir 1. leiðtogaráðsfund LUF 2023, sem haldinn verður á Grand hótel, 26. apríl kl. 17:10.)
Sendinefnd LUF
Kjör ungmennafulltrúa Íslands hjá SÞ á sviði barna og ungmenna skipar sæti í sendinefnd LUF hjá Sameinuðu þjóðunum. Nefndin er hluti af alþjóðanefnd LUF og er jafnframt starfshópur LUF um málefni ungs fólks hjá Sameinuðu þjóðunum. Hún starfar sem vinnuhópur, ráðgjafaráð, upplýsingaveita og brú á milli LUF, Félags SÞ á Íslandi og sendandi ráðuneyta. Fulltrúinn mun gegna embættinu þar til nýr tekur við. Sendinefndin skipar nú sex fulltrúa; á sviði mannréttinda, loftslagsmála, sjálfbærar þróunar, kynjajafnréttis, barna og ungmenna og mennta, vísinda og menningar.
Embættið er sjálfboðastarf, að dagpeningum erlendis undanskildum.