Völd Óskast er lýðræðisherferð sem ætlað er að varpa ljósi á aldursbundinn lýðræðishalla, efla ungt fólk til þátttöku og greina hvaða málefni það eru sem ungt fólk vill sjá á dagskrá hjá stjórnvöldum.

Lýðræðisráðstefna í Hörpu
Herferðinni Völd óskast var formlega ýtt úr vör laugardaginn 24. febrúar 2024 í Hörpu. Geir Finnsson, forseti LUF flutti opnunarávarp.
“Í dag erum við saman komin til að fagna tuttugu ára afmæli LUF undir yfirskriftinni “Völd óskast”. Skýrt ákall um að ungt fólk eigi skilið að hafa eitthvað um eigin mál að segja. Við óskum eftir völdum því það er ekki óeðlileg krafa að ungt fólk fái að koma að borðinu í þeim ákvarðanatökum sem varða þeirra hagi. Það felst eingöngu ávinningur í því fyrir samfélagið að valdefla, fræða og tryggja réttindi þess hóps sem hefur mest í húfi er kemur að farsæld samfélagsins og þarf trekk í trekk að bera þungann af áskorunum þess.“
Dr. Jan Eichhorn, dósent við Háskólann í Edinborg, flutti erindið “Votes-at-16 around the world: What we can learn from campaigners and researchers” Í erindinu fjallaði Dr. Eichhorn um rannsóknir sínar varðandi lækkun kosningaaldurs.

Um pallborðið og stefnumótunar vinnuna

Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd
Á morgun 1. júní verður kosið til embættis forseta Íslands, þar sem við munum kjósa sjöunda forseta lýðveldisins. Í þessu samhengi skiptir máli að við unga fólkið skilum okkur á kjörstað og nýtum lýðræðislegan kosningarétt okkar. Við sem erum að kjósa í fyrsta skiptið fáum loksins að nýta kosningaréttinn, sem er mikið meira en bara réttur. Hann er tækifæri okkar til að láta rödd okkar heyrast og hafa áhrif á samfélagið.
Minni kosningaþátttaka ungs fólks
Kosningaþátttaka okkar unga fólksins hefur því miður verið almennt minni en hjá öðrum aldurshópum sem skapar lýðræðishalla á milli kynslóða. Við höfum síður verið að skila okkur á kjörstað en ég á bágt með að trúa að við viljum vera sú kynslóð sem kýs ekki eða tekur ekki lýðræðislegan þátt til að hafa áhrif á okkar dýrmæta samfélag. Það er því áhyggjuefni að ungt fólk sé ólíklegra til þess að skila sér ekki á kjörstað sem gerir það að verkum að bæði samfélagsstöðu þeirra og lýðræði er ógnað. Landssamband ungmennafélaga (LUF) hefur lengi, í samstarfi við Samband íslenskra framhaldsskólanema (SÍF) staðið fyrir verkefninu og átakinu #ÉgKýs en í því felst að efla lýðræðisvitund hjá ungu fólki, hvetja þau til að taka upplýsta ákvörðun, mæta á kjörstað og kjósa til þess að koma í veg fyrir að alvarlegur lýðræðishalli myndist á milli kynslóða.
Rödd okkar unga fólksins verður að heyrast
LUF óskar hér með formlega eftir forseta sem færir ungu fólki völd. Ungt fólk leitar eftir forseta sem horfir til samstarfs og samtals við ungt fólk. Það er ungu fólki nauðsynlegt að raddir þeirra fái að heyrast og að sá sem mun taka við embætti forseta Íslands láti sig hagsmuni komandi kynslóða varða og sé sameiningartákn allra. Lýðræði krefst raunverulegs samráðs við ungt fólk og það er eðlileg krafa að hagsmunir ungs fólks endurspeglist í lýðræðislegum kosningum.
Kynnum okkur frambjóðendur og mætum á kjörstað
Það er gríðarlega mikilvægt að ungt fólk taki upplýsta ákvörðun og mæti á kjörstað. Það skiptir máli að við nýtum þá rödd sem við höfum, okkar kosningarétt og kjósum. Við þurfum að mæta og kjósa til að hafa áhrif. Látum tækifærið ekki framhjá okkur fara, hvert atkvæði skiptir máli.
Ekki sitja heima á morgun, skellum okkur frekar í fínu fötin, tökum þátt í lýðræðinu og höfum áhrif!
Höfundur er lýðræðisfulltrúi Landssambands ungmennafélaga og lýðræðis- og samskiptafulltrúi Sambands íslenskra framhaldsskólanema.
Greinin birtist fyrst á Vísi.
Í janúar var haldin vinnustofa um tilmælin þar sem aðildarfélögum gafst færi á að vinna að tillögum saman eða koma málum á dagskrá fyrir áður en að lokaafurð yrði kynnt á Sambandsþingi í lok febrúar.
Sambandsþing LUF bar heitið Völd Óskast og fór fram laugardaginn 23. febrúar 2025 í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Ásamt hefðbundnum dagskrárliðum Sambandsþings þá voru Völd Óskast: Tilmæli til stjórnvalda einnig borin upp og samþykkt á Sambandsþingi eftir líflegar og skemmtilegar umræður.
Þann 6. maí bauð forsætisráðherra forseta og varaforseta LUF á sinn fund í Forsætisráðuneytinu.
Fulltrúar LUF afhentu forsætisráðherra afrakstur Völd Óskast herferðarinnar en þar voru 17.tilmæli ásamt aðgerðum sem samþykkt voru á Sambandsþingi LUF.









