10. Auka framboð á húsnæði fyrir ungt fólk

„Hluti af ferli ungs fólks í átt að fullu sjálfstæði er að flytja að heiman og að hafa getu til að sjá fyrir og viðhalda heimili og stofna fjölskyldu. Ungt fólk býr lengur í foreldrahúsum en áður og jafnvel fram yfir fyrstu skrefin á vinnumarkaði. Skortur á litlum íbúðum og hátt leigu- og íbúðaverð valda þessu. Þetta ástand kemur í veg fyrir sjálfstæði ungs fólks til að sjá fyrir sér og taka ábyrgð á eigin lífi. Með tilliti til þarfa ungs fólks og þess að ungt fólk hefur minni ráðstöfunartekjur en aðrir aldurshópar er þörf á sérstökum úrræðum“ segir í stefnu LUF. Greinilegt er að stór hluti vandans eru dýrar og fágætar lóðir sem hægja á uppbyggingu. LUF hefur lengi kallað eftir aðgerðum sem miða að því að fjölga húsnæðisúrræðum á viðráðanlegu verði með tilliti til samgangna og nærþjónustu.

Aðgerð: Að samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra endurskoði skipulagslög nr. 123/2010 með það að markmiði að liðka fyrir húsnæðisuppbyggingu. Meðal annars má skylda sveitarfélög til að sýna hófsemi í sölu á byggingarréttum og rukkun tengdra gjalda ásamt þolinmæði gagnvart verktökum til þess að hámarka líkurnar á að verktakar telji byggingaverkefnin áhættunnar virði. Með þessu má tryggja hraðari uppbyggingu hagkvæms húsnæðis með hófsemi að leiðarljósi.

13. Menntasjóður námsmanna verði styrktarsjóður að norrænni fyrirmynd

Þörf er á raunverulegum og heildstæðum úrbótum á námslánakerfinu til að tryggja að Menntasjóður námsmanna uppfylli lögbundið hlutverk sitt sem félagslegur jöfnunarsjóður. Í Noregi er veitt 40% niðurfelling af höfuðstól láns við námslok óháð lengd námstíma, slíkt fyrirkomulag tekur mun betur tillit
til þeirra ólíku ástæðna sem geta leitt til þess að nemar ljúki ekki námi á tilsettum tíma. Hér skal tekið fram að engin ástæða er til að ætla að háskólanemar hafi ekki fullan vilja til þess að ljúka námi á áætluðum tíma enda er það tvímælalaust í hag stúdenta að fara sem fyrst á vinnumarkað. Að lokum leggja stúdentar áherslu á að menntun hefur ávallt í för með sér samfélagslegan ábata, óháð því hvort sem henni lýkur með gráðu eða ekki.

Aðgerð: Að Háskólamálaráðherra leggi fram frumvarp að breytingu á lögum nr. 60/2020 um Menntasjóð námsmanna fyrir lok árs 2026. Frumvarp þetta skal leggja til að veittur verði námsstyrkur fyrir hverja þreytta einingu, veitt verði 25% niðurfelling af láni fyrir hverja lokna einingu og að veitt verði 15% niðurfelling af höfuðstól námslána við námslok til viðbótar við þau 25% sem eru felld niður í lok hverrar annar. Heildarstyrkurinn verði þannig 40% af höfuðstól lánsins, óháð lengd námstíma. Þá verði vaxtaþakið lækkað og vaxtaálag afnumið til að auka fyrirsjáanleika og stöðugleika fyrir greiðendur. Einnig er farið fram á að vinna við frumvarpið fari fram í samráðshópi með fulltrúum námsmannasamtakanna.

1. Setja Landsstefnu um málefni ungs fólks í forgang

Aðildarríki Sameinuðu þjóðanna (SÞ) hafa flest sett sér svokallaða ungmennastefnu sem er í raun heildstæð landsstefna í málefnum ungs fólks (e. National Youth Policy). Þá er heimsdagskrá SÞ um aðgerðir fyrir ungt fólk (e. World Programme of Action for Youth) notuð sem leiðarvísir. Þar kemur fram að að aðildarríkin og ungmennafélög eiga að stuðla að virkri og sýnilegri ungmennastefnu. Ísland er eitt fárra ríkja í heiminum í dag sem ekki hefur sett sér slíka ungmennastefnu þrátt fyrir ítrekun um slíkt í ályktun SÞ (A/RES/50/81) frá árinu 1996 og ítrekað ákall LUF í langan tíma.

Aðgerð: Að forsætisráðherra geri tillögu að breytingu á forsetaúrskurði og bæti við nýju stjórnarmálefni sem heyra skal undir forsætisráðuneytið, þ.e. málefni ungs fólks. Jafnframt að útbúin verði tillaga til þingsályktunar um málefni ungs fólks þar sem að lagt verður til að undirbúa heildstæða landsstefnu í málefnum ungs fólks. Einkum og sér í lagi í ljósi þess að fram kemur í stefnuyfirlýsingu að ríkisstjórnin hyggst móta ungmennastefnu skal tryggja aðkomu ungs fólks að vinnunni sem skal unnin í náinni samvinnu við LUF og aðildarfélögin.

2. Lækka kosningaaldur í 16 ár

Skref í átt að framþróun lýðræðis er lækkun kosningaaldurs í 16 ár. Í því felst löngu tímabær innleiðing Barnasáttmálans og veitir yngra fólki mikilsverð borgaraleg réttindi. Þar með er ungu fólki sem til þess hefur þroska sýnd virðing í verki og treysti fyrir raunverulegu valdi til að hafa áhrif á samfélagið sitt. Engin haldbær rök eru til staðar sem réttlæta útilokun þessa þjóðfélagshóps frá grundvallarréttindum á borð við lýðræðisþátttöku.

Aðgerð: Að dómsmálaráðherra leggi fram frumvarp um breytingu á lögum um kosningar nr. 112/2021 sem leggur til að kosningaaldur skuli lækkaður í 16 ár í kosningum til sveitarstjórna. Tryggja skal að 16 og 17 ára ungmenni fái tækifæri til að kjósa í næstu sveitarstjórnarkosningum árið 2026. Fjármagna þarf átak í lýðræðisfræðslu samhliða þessum breytingum. Mælist LUF til þess að ríkisstjórnin leggi fram breytingu á 33. gr. Stjórnarskrárinnar og lækki þar með kosningaréttinn í 16 ár jafnframt í alþingis- og forsetakosningum eigi síðar en fyrir lok kjörtímabils núverandi ríkisstjórnar.

3. Miða Kosningaaldur við ár en ekki dag

Mikilvægasti réttur í lýðræðisríki er kosningaréttur og er það hagur allra lýðræðisríkja að kosningaþátttaka sé sem mest. Með því að láta heila árganga fá kosningarétt á sama tíma má auka kosningaþátttöku yngsta aldurshópsins. Þó að flest réttindi séu veitt við afmælisdag, frekar en aldursár, þá eru á því undantekningar og má þar nefna hvenær almenn skattinnheimta hefst. Horfa má til Noregs sem fyrirmynd, þar sem að kosningaréttur er veittur 1. janúar það ár sem aðili nær kjöraldri. Árgangar fara í gegnum grunnskólann samstíga, óháð fæðingardegi. Það skiptir ekki máli hvort að aðili sé fæddur í janúar, júní, eða desember, gerðar eru sömu kröfur til jafnaldra óháð fæðingardegi og gert er ráð fyrir að jafnaldrar hafi jafna getu til upplýstrar ákvarðanatöku enda hefur samfélagið ávallt veitt þeim jafna fræðslu. Er því eðlilegra að kosningaréttur þeirra sé veittur miðað við fæðingarár en ekki dag.

Aðgerð: Að dómsmálaráðherra leggi fram frumvarp um breytingu á lögum um kosningar nr. 112/2021 sem leggur til að kosningaaldur skuli miða við ár en ekki dag í kosningum til sveitarstjórna. Tryggja skal að heilir árgangar ungmenna fái tækifæri til að kjósa í næstu sveitarstjórnarkosningum árið 2026. Mælist LUF til þess að ríkisstjórnin leggi fram breytingu á 33. gr. Stjórnarskrárinnar og miði þar kosningarétt við aldursár en ekki afmælisdag jafnframt í alþingis- og forsetakosningum eigi síðar en fyrir lok kjörtímabils núverandi ríkisstjórnar.

4. Yfirfara aldursbundin hæfniviðmið

Aldur einn og sér er ekki hæfniviðmið og ekki er réttlætanlegt að skerða réttindi fólks án góðra og gildra raka. Í hinar ýmsu stöður er hægt að gera kröfu um ákveðna hæfni en aldur einn og sér er ekki hæfni. Má nefna framboð til forseta, þar sem samkvæmt stjórnarskrá verður frambjóðandi að vera orðin 35 ára. Eins eru gerðar aldurskröfur í hinum ýmsu lögum, þar á meðal lögum um dómstóla.

Aðgerð: Að stjórnvöld fari fyrir því að aldursviðmið séu yfirfarin í lagaákvæðum og stjórnarskrá og annað hvort felli þau á brott eða beri rök fyrir tilvist þeirra.

5. Tryggja félagafrelsi ungmenna undir 18 ára aldri

Ríkisskattstjóri hefur neitað að taka til greina tilkynningar um breytingar á stjórnum almennra félaga, sökum þess að ólögráða einstaklingar hafa verið kjörnir til stjórnarsetu, þvert á ákvæði 74. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/19445 um félagafrelsi, sem og almenna jafnræðisreglu sem
bundin er í 1. mgr. 65. gr. Er þar jafnframt brotið gegn réttindum barna til tjáningar og þátttöku í samfélaginu sem sérstaklega eru tryggð í 12. – 15. gr. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sbr. lög nr. 19/20136. Eiga börn því sjálfstæðan rétt til þess að stofna og taka þátt í félögum og þann rétt þarf að
tryggja að íslenskum rétti.

Aðgerð: Að mennta- og barnamálaráðherra leggi fram frumvarp um breytingu á Æskulýðslögum nr. 70/20077 með nýju ákvæði sem tryggir félagafrelsi ungmenna. Jafnframt er þörf á breytingu á lögum nr. 110/20218 um félög til almannaheilla þess efnis að ungmennafélög verði undanþegin ákvæði 19. gr. laganna um stjórnun félags, þar sem gerð er sú krafa að stjórnarmenn þurfi að vera lögráða.

17. Flýta fyrir úrbótum í samgöngumálum

Samgöngumál hafa verið í brennidepli í stefnumótun á vettvangi LUF svo árum skiptir. Brýnt er að stjórnvöld bregðist við ákalli ungs fólks um bættar samgöngur, enda eru þær forsenda fyrir þátttöku í námi, á vinnumarkaði, sem og í borgaralegu samfélagi. Þótt þarfir hópsins séu margvíslegar og kappkosta verði að koma jafnt til móts við þá sem kjósa almenningssamgöngur og annan fararmáta, er ljóst að mestra úrbóta er þörf í fyrrnefnda flokknum. Þá skilur nokkuð á milli áskorana á höfuðborgarsvæðinu annars vegar og á landsbyggðunum hins vegar. Á höfuðborgarsvæðinu liggur fyrir samgöngusáttmáli ríkisins og hlutaðeigandi sveitarfélaga sem gildir til ársins 2040.22 Mikilvægt er að framkvæmd samkomulags um samvinnu um rekstur og stjórnskipulag almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu verði sett á oddinn og framkvæmd sáttmálans flýtt. Á landsbyggðinni er aðgerða þörf, bæði hvað varðar rekstur landsamgangna milli byggða, sem og á vettvangi almenningssamgangna innan byggðalaga23. Þá er ekki úr vegi að nefna í þessu samhengi nauðsyn þess að tryggja almenningssamgöngur á milli höfuðborgarsvæðisins og nærliggjandi byggða, þar sem mikill fjöldi ungs fólks ferðast þar á milli hvern dag til að sækja skóla, vinnu og þjónustu.

Aðgerðir: Að ríkisstjórnin fylgi fast eftir og flýti framkvæmd og fjármögnun samkomulags um samvinnu um rekstur og stjórnskipulag almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Hvað landsbyggðirnar varða er því beint til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að beita sér fyrir stórbættri þjónustu almenningssamgangna, bæði í umfangi og gæðum, um land allt.

16. Forgangsraða ungu fólki í framkvæmd aðgerðaráætlunar í geðheilbrigðismálum

LUF telur að bregðast þurfi við vísbendingum um versnandi líðan ungs fólks. Embætti landlæknis benti á í umsögn sinni um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum að félagslegir þættir og lífsaðstæður fólks vegi þungt þegar kemur að geðheilbrigði og þau sem búi við slaka stöðu og jaðarsetningu séu mun líklegri til að þróa með sér geðræna erfiðleika. Af þeim sem leituðu til Stígamóta á árinu 2023 voru 92,2% brotaþola undir þrítugu þegar brotið var framið. Á árinu 2023 voru 52,3% lyfjatengdra andláta einstaklingar undir 44 ára aldri. Þá byrja meira ¾ alvarlegra geðsjúkdóma fyrir 25 ára aldur. Rétt meðhöndlun snemma á sjúkdómsferlinu skiptir sköpum og mikilvægt að þjónusta taka tillit til þess að ungt fólk hefur aðrar þarfir en eldra fólk. Ungt fólk er áhættuhópur þegar litið er til félagslegra þátta og lífsaðstæðna og því nauðsynlegt að ungu fólki og aðgerðum í þeirra þágu sé forgangsraðað í framkvæmd aðgerðaráætlunar í geðheilbrigðismálum og ungt fólk hafi aðkomu að stefnumótun í geðheilbrigðismálum.

Aðgerðir: Heilbrigðisráðherra veiti Landssambandi ungmennafélaga umboð til að skipa fulltrúa ungs fólks í geðráð. Aðgerð 1.A.3 í aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum verði breytt svo hún taki til allra skólastiga. Að bætt verði við aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum aðgerð um stofnun greiningarhóps með það hlutverk að rannsaka orsakir langra biðlista í geðheilbrigðisþjónustu, safna saman lýðfræðilegum gögnum um þá einstaklinga sem eru á ólíkum biðlistum og leggja í kjölfarið til úrbætur sem miða að því að útrýma biðlistum. Við árlega endurskoðun á aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum verði ungu fólki og þeirra þörfum forgangsraðað.

15. Umbætur í leikskólamálum

Brýnt er að börn komist fyrr á leikskóla, þar sem langir biðlistar valda því að foreldrar eiga erfitt með að snúa aftur til náms eftir fæðingarorlof, og tekur Menntasjóður námsmanna ekki tillit til sveigjanleika vegna barneigna eftir fyrsta ár barnsins. Að brúa umönnunarbilið milli fæðingarorlofs og leikskóla er
íþyngjandi og hefur neikvæð fjárhagsleg áhrif á ungt fólk og barnafjölskyldur. Þetta er stórt jafnréttismál í okkar samfélagi þar sem staðreyndin er sú að þetta bitnar iðulega mest á konum, sem veldur því að þetta hefur áhrif á ævitekjur kvenna, setur nám þeirra úr skorðum og eykur fjárhagslegar áhyggjur til muna að þurfa að brúa bilið á milli náms og atvinnu, og fæðingarorlofs og leikskóla.

Aðgerð: Að Mennta- og barnamálaráðherra leggi fram frumvarp þar sem leikskólastigið verður lögfest sem fyrsta skólastigið með því markmiði að lágmarka tekjutap barnafjölskyldna og tryggja börnum stöðugt og þroskandi umhverfi á vönduðum og vel mönnuðum leikskólum. Til að þetta sé raunhæft þarf að fjölga menntuðum kennurum við störf í leikskólum. Til þess er nauðsynlegt að bæta kjör og vinnuaðstæður kennara og því þarf að tryggja að verkefninu fylgi aukin fjárveitingu til sveitafélaganna.

12. Tryggja fjárhagslegt öryggi námsmanna

Námslánakerfið er undirstaða jafnréttis til náms á Íslandi. Námslán eiga að duga til að standa straum af almennum framfærslukostnaði, líkt og kveðið er á um í 2. mgr. 2. gr. laga nr. 60/2020 um Menntasjóð námsmanna. Of lág framfærsla skerðir aðgengi að menntun og er ein aðalástæða þess að íslenskir háskólanemar eiga Evrópumet í atvinnuþátttöku samkvæmt könnun Eurostudent. Framfærsla verður að taka tillit til verðlagsbreytinga, þróunar leiguverðs og gengisbreytinga, og duga til þess að stúdentar þurfi ekki að vinna jafn mikið með námi og raun ber vitni. Þar að auki eru kröfur um lágmarksnámsárangur mjög háar, eða 22 ECTS, og lítið þarf út af að bregða til að stúdentar missi rétt sinn til fjárhagslegs stuðnings. Lækka þarf kröfur um lágmarksnámsárangur í 15 ECTS í samræmi við norska námsstyrkjakerfið, sérstaklega í ljósi þess að íslenskir stúdentar vinna mest allra í Evrópu. Auka þarf möguleika á svigrúmi í námi, t.a.m. með undanþágum, því stúdentar eiga ekki að þurfa að vinna og það þarf lítið að fara úrskeiðis til að missa rétt á stuðningi.

Aðgerðir: Að háskólamálaráðherra sjái til þess að ráðist sé í allsherjar yfirhalningu á úthlutunarreglum Menntasjóðs námsmanna í því augnamiði að bundnar fjárhæðir og viðmið sem áhrif hafa á fjárhag námsmanna verði endurskoðuð og greint verði hvar glufur í reglunum má finna sem leiða til þess að kerfið uppfylli ekki hlutverk sitt sem jöfnunarsjóður þar sem ekki er tekið tillit til ólíkra aðstæðna námsmanna. Að háskólamálaráðherri sjái jafnframt til þess að fyrir skólaárið 2026-2027 verði kröfur um lágmarksnámsárangur í úthlutunarreglum Menntasjóðs námsmanna lækkaðar úr 22 ECTS í 15 ECTS, framfærsla nógu há til að tryggja fjárhagslegt öryggi stúdenta og tvískiptingu frítekjumarks námsmanna komið á.

9. Þátttaka í ungmennastarfi rannsökuð, viðurkennd og efld

Þátttaka í ungmenna- og félagsstarfi hefur víðtæk jákvæð áhrif á einstaklinga, í henni felst jafnan oft barátta fyrir bættu samfélagi og er sterkt borgarsamfélag með öflugri þátttöku ungs fólks því hagsmunamál fyrir samfélagið allt. Hafa ungmennafélög undir regnhlíf LUF fundið fyrir dræmari þátttöku eftir COVID 19 faraldurinn. Þá hefur áhersla stjórnvalda verið á íþróttastarf umfram ungmennastarf, merki um það er m.a. skortur á skýrum og mælanlegum spurningum sem taka til ungmennastarfs í Æskulýðsrannsókninni. Skortur er á upplýsingum um stöðu ungmennafélaga á Íslandi, þátttöku ungs fólks í lýðræðislegum félögum og aðgengi ungs fólks að lýðræðislegu starfi. Mikilvægt er að ungmennastarf sé viðurkennt til jafns við íþróttastarf, stjórnvöld viðhafi samráð við ungt fólk og greiði
fyrir sérfræðiþekkingu ungs fólks til jafns við aðra. Efla þarf ungmennastarf sérstaklega á landsbyggðunum þar sem framboð er í minna mæli en á höfuðborgarsvæðinu.

Aðgerð: Orðalag og spurningar í Æskulýðsrannsókninni verði endurskoðað og tryggt verði að rannsóknin mæli þátttöku ungmenna í lýðræðislegu starfi. Staða ungmennafélaga og þátttaka innan þeirra sem og aðgengi ungs fólks að lýðræðislegu starfi verði rannsakað og brugðist verði við niðurstöðum. Tryggt verði að ungt fólk sem taka sæti í nefndum eða starfshópum á vegum ríkis- eða sveitarfélaga fái greitt fyrir sitt framlag til jafns við aðra.

8. Útrýma skilgreiningarvanda málaflokksins

Í þeirri stefnu sem síðast var í gildi á árunum 2014-2018 kom eftirfarandi fram: Við gerð stefnumótunar í æskulýðsmálum kemur berlega í ljós ákveðinn skilgreiningar- og hugtakavandi sem fagsviðið býr við. Mikilvægt er að vekja athygli á því þar sem sameiginlegur skilningur á lykilhugtökum er nauðsynlegur í vinnu sem þessari. Fram kemur í stefnunni að brýnt sé að vinna markvisst í þeim málum og skýra betur lykilhugtök. Frá þeim tíma hefur LUF vakið athygli á því að með nýrri stefnu um tómstunda- og félagsstarf barna og ungmenna sem á að gilda til ársins 2030 varð ákveðin afturför í málaflokknum sökum þess að málaflokkurinn minnkaði með þrengri og útilokandi skilgreiningum. LUF hefur jafnframt ítrekað vakið athygli á því að ungt fólk á að fá að skilgreina sig sjálft og að ef Ísland ætli sér einhverntímann að standa jafnfætis þeim lýðræðisríkjum sem við berum okkur saman við er brýnt að íslensk stjórnvöld notist við skilgreiningar alþjóðlegra stofnanna. Þar ríkir ekki skilgreiningar- og hugtakavandi, heldur mótaðar hafa verið skýrar stefnur sem alþjóðasamfélagið hefur komið sér saman um. Hér er t.d. átt við um hugtök eins og: ungmennafélag, ungmennastarf, ungmennastefna o.s.frv.

Aðgerð: Að mennta- og barnamálaráðherra ráðist í endurskoðun á hugtakanotkun stjórnsýslunnar, bæði með lagabreytingum og uppfærslum á stefnum o.s.frv. í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar, sáttmála, tilmæli, ályktanir o.fl.

7. Breyta æskulýðsráði í samstjórnarkerfi

Meðal nauðsynlegra breytinga sem LUF hefur lengi talið brýnt að ráðast í er að gera hagsmunastarfi og réttindabaráttu ungs fólks hærra undir höfði í Æskulýðslögum nr. 70/2007. Til að þau geti staðið undir hlutverki sínu, ættu lögin með réttu að tryggja óskilyrta aðkomu ungs fólks að ákvarðanatöku, sem og
að auðvelda ungu fólki að taka þátt í ungmennastarfi sem miðar að því að efla og vernda réttindi hópsins. Brýnt er að endurskoða skipan í Æskulýðsráð sem hefur m.a. það hlutverk að vera stjórnvöldum til ráðgjafar um málaflokkinn.

Aðgerð: Að mennta- og barnamálaráðherra leggi fram frumvarp til breytingar á 5. og 6. gr. Æskulýðslaga nr. 70/2007 sem kveða á um Æskulýðsráð í útfæri heldur form lýðræðislegs samstjórnarkerfi (e. Co-Management Structure) með umgjörð ráðgjafaráðs Evrópuráðsins í málefnum ungs fólks sem fyrirmynd.12 Þar á ungt fólk með breytt lýðræðislegt umboð sæti ásamt sérfræðingum úr öllum þeim ráðuneytum sem koma að málefnum barna og ungmenna.

6. Lögfesta LUF sem ungmennaráð Íslands

Nauðsynlegt er að LUF verði viðurkenndur samráðsvettvangur svo tryggja megi rödd ungs fólks að öllum málum sem hafa áhrif á yngri kynslóðir. Þar með yrði tryggt að sú rödd hafi lýðræðislegt umboð. LUF hefur starfað sem hagsmunafélag ungs fólks sem og fulltrúi ungs fólks gagnvart stjórnvöldum og á alþjóðavettvangi í 20 ár. Skipulag LUF byggist á sömu borgaralegu gildum og aðrar þær lýðræðislegu stofnanir sem fara með hagsmuni í landinu en samt hefur verið gengið fram hjá félaginu þegar kemur að virku og raunverulegu samráði við stjórnvöld. Því miður er staðreyndin sú að rödd ungs fólks hefur verið hundsuð. Lagaleg viðurkenning stjórnvalda mun gera LUF auðveldara um vik að halda á lofti sjónarmiðum ungs fólks á forsendum ungs fólks. Þó svo að LUF sé nefnt sem heildarsamtök ungs fólk í málaflokknum í greinargerð með lögunum, og þar einnig vakin athygli á alþjóðlegri stöðu félagsins sem „National Youth Council,“ má enn greina tregðu við að viðurkenna stöðu LUF hér á landi. LUF telur því nauðsynlegt að réttmæt staða félagsins verði tryggð í lögunum þar sem fyrra fyrirkomulag hefur ekki dugað sem skyldi. Með því geta íslensk stjórnvöld loks fylgt tilmælum ráðherranefndar Evrópuráðsins frá árinu 2006, sem kveða m.a. á um að „National Youth Councils“ verði falið lögformlegt hlutverk í samráðsferlum stjórnvalda. Samhliða þessu gefst tækifæri til endurskoðunar á Æskulýðssjóði (e. Icelandic Youth Fund) með grannríki Íslands á Norðurlöndunum sem komin eru lengra í að tryggja gæði í ungmennastarfi sem fyrirmynd. Helst fyrrgreind röksemdafærsla að auki í hendur við kröfu um lögfestingu LUF sem ungmennaráð Íslands þar sem óeðlilegt er að LUF keppist við eigin aðildarfélög um fjárveitingar. Með þessum framfaraskrefum mætti færa vettvang ungmennastarfs á Íslandi nær því sem gengur og gerist í þeim lýðræðisríkjum sem við berum okkur saman við.

Aðgerð: Að mennta- og barnamálaráðherra leggi til að bæta við lagagrein í endurskoðun Æskulýðslaga 70/2007 sem felur í sér viðurkenningu á að Landssamband ungmennafélaga sé ungmennaráð Íslands ásamt skýringu á hlutverki þess þegar kemur að t.a.m. stefnumótun, samráði og sjóðaúthlutunum. Kafli um Æskulýðssjóð yrði þ.a.l. endurskoðaður m.t.t. að færa sjóðinn nær grasrót ungs fólks.

11. Endurskoða viðmið viðbótarlána menntasjóðs námsmanna vegna húsnæðiskostnaðar

Viðbótarnámslán Menntasjóðs námsmanna vegna húsnæðiskostnaðar taka ekki mið af almennum markaði og bera stúdentar á Íslandi því þunga fjárhagslega byrði vegna húsnæðiskostnaðar. Til að sjóðurinn komist nær því að uppfylla hlutverk sitt sem félagslegur jöfnunarsjóður verður að tryggja fjárhagslegt öryggi námsmanna.

Aðgerð: Að ráðherra menningar-, nýsköpunar- og háskólamála leggi fram tillögu til breytinga á lögum nr. 60/2020 um menntasjóð námsmanna, þess efnis að viðbótarlán vegna húsnæðiskostnaðar hækki að lágmarki í beinu hlutfalli við leiguverð.

14. fæðingarstyrkur námsmanna efldur

Þriðjungur íslenskra stúdenta eru foreldrar, en hlutfall foreldra í námi er hvergi hærra í Evrópu eins og fram kemur í Eurostudent VIII16. Samkvæmt könnun SHÍ þykir meirihluta foreldra í námi fæðingarstyrkur námsmanna ekki sinna hlutverki sínu og reyna foreldrar jafnvel að komast hjá því að þiggja hann og í þeim tilfellum sem þau hafa nýtt sér hann er hann ekki nægur. Barnastyrkur Menntasjóðs námsmanna var einnig ófullnægjandi. Mikilvægt að stúdentar geti tekið leyfi frá námi og einbeitt sér alfarið að fyrstu mánuðum barnsins. Margir stúdentar vinna með námi. Einnig er ekki gert ráð fyrir því að stúdentar þurfi að brúa bilið milli fæðingarorlofs og dagvistunar hjá Menntasjóði námsmanna, það er í lagi að ílengjast í námi vegna orlofs og fá samt niðurfellingu, hins vegar er ekki gert ráð fyrir því að 1-3 annir eru undirlagðar í að “brúa bilið” og eiga foreldrar þá hættu á að missa styrkinn. Nám er ekki eins og vinna heldur er það skipulagt í önnum og jafnvel árum. Foreldrið getur þurft að missa heilt ár úr námi, eftir því hvenær barn fæðist og ekkert komið til móts við það. Þetta bitnar sérstaklega á því foreldri sem gengur með barnið og er því mikið jafnréttismál.
Koma verður betur til móts við íslenska námsmenn sem verða foreldrar í ljósi þess hve blönduð atvinnuþátttaka og ástundun náms er meðal íslenskra stúdenta 20% vinna og 80% nám ætti að teljast til 100% þátttöku á vinnumarkaði samkvæmt orlofssjóði. Inn á borð til okkar hafa ratað námsmenn sem eru í hlutastarfi, með börn og ekki í fullu námi og detta þá milli skips og bryggju eða þurfa að velja á milli þess að fara í fæðingarorlof samkvæmt réttum þeirra í hlutastarfi. Þá er mikilvægt að kerfið taki tillit til þess að nám er frábrugðið vinnu að því leyti að nám er skipulagt í önnum og jafnvel árum og getur því ekki gengið beint að námi eftir orlof. Foreldri getur þurft að missa tvær annir úr námi, eftir því hvenær árs barnið fæðist, en á þó aðeins rétt á 6 mánaða orlofi. Þetta eru þó einstaklingar sem eru 100% virkir ef hlutastarf og nám er lagt saman. Auka þarf sveigjanleika fæðingarorlofssjóðs í garð námsmanna sem koma erlendis frá. Nám er ekki skipulagt með sama hætti alls staðar í heiminum og eiga námsmenn erlendis sérstaklega hættu á að falla á milli kerfa. Taka þarf tillit til maka sem fara erlendis og/eða ílengjast erlendis vegna náms maka þeirra þegar kemur að almannatryggingum, t.d. að réttindi geymist.

Aðgerðir: Að félagsmálaráðherra sjái til þess að fæðingarstyrkur námsmanna sé jafnaður meðalupphæð greiðslna úr fæðingarorlofssjóði fyrir fullt starf eða jafnaður að lágmarks atvinnuleysisbótum. Þá verði þeim stúdentum sem hafa unnið meðfram námi gert kleift að nýta bæði tekjutengdar orlofsgreiðslur og fæðingarstyrk námsmanna. Þá sé tryggt að tímalengd fjárhagslegs stuðningur við foreldra í námi fyrsta ár barnsins taki tillit til skipulags náms. Sveigjanleiki fyrir námsmenn sem læra erlendis sem stunda nám sem skipulagt er á annan hátt t.d. ef prófatíð er á öðrum tíma en í íslensku kerfi eða horft sé til námsframvindu á skólaárinu í heild sinni en ekki önnum. Einnig að makar sem fylgja þeim erlendis til að nýta áunnin réttindi á vinnumarkaði frá því að áður en farið var erlendis m.t.t. Tekjutengingartímabilsins eða að ráðgefandi álit EFTA sé virt varðandi tekjutengingu þeirra sem starfa erlendis á því tímabili sem réttindi séu áunnin.

VÖLD ÓSKAST: TILMÆLI TIL STJÓRNVALDA

Með tilmælum þessum óskar Landssamband ungmennafélaga (LUF) eftir völdum til að vernda og auka réttindi ungs fólks og bregðast við þegar þau eru virt að vettugi. Sem samstarfs- og samráðsvettvangur frjálsra ungmennafélaga (e. youth organisations) og ungmennaráð Íslands, sem hefur m.a. það meginhlutverk að veita stjórnvöldum ráðgjöf og aðhald í málefnum ungs fólks, kunngjörir LUF eftirfarandi tilmæli til stjórnvalda. Sem málsvari sameiginlegra hagsmuna ungs fólks og frjálsra félagasamtaka þeirra krefst LUF þess að ríkisstjórnin bæti stöðu ungs fólks á Íslandi með því að hrinda þeim aðgerðum í framkvæmd sem útlistaðar eru í tilmælum þessum á 156. löggjafarþingi 2024-2025.

LUF mælist til eftirfarandi aðgerða af stjórnvöldum í þágu ungs fólks á Íslandi:

1. Setja Landsstefnu um málefni ungs fólks í forgang

Aðildarríki Sameinuðu þjóðanna (SÞ) hafa flest sett sér svokallaða ungmennastefnu sem er í raun heildstæð landsstefna í málefnum ungs fólks (e. National Youth Policy). Þá er heimsdagskrá SÞ um aðgerðir fyrir ungt fólk (e. World Programme of Action for Youth) notuð sem leiðarvísir. Þar kemur fram að að aðildarríkin og ungmennafélög eiga að stuðla að virkri og sýnilegri ungmennastefnu. Ísland er eitt fárra ríkja í heiminum í dag sem ekki hefur sett sér slíka ungmennastefnu þrátt fyrir ítrekun um slíkt í ályktun SÞ (A/RES/50/81) frá árinu 1996 og ítrekað ákall LUF í langan tíma.

Aðgerð:

Að forsætisráðherra geri tillögu að breytingu á forsetaúrskurði og bæti við nýju stjórnarmálefni sem heyra skal undir forsætisráðuneytið, þ.e. málefni ungs fólks. Jafnframt að útbúin verði tillaga til þingsályktunar um málefni ungs fólks þar sem að lagt verður til að undirbúa heildstæða landsstefnu í málefnum ungs fólks. Einkum og sér í lagi í ljósi þess að fram kemur í stefnuyfirlýsingu að ríkisstjórnin hyggst móta ungmennastefnu skal tryggja aðkomu ungs fólks að vinnunni sem skal unnin í náinni samvinnu við LUF og aðildarfélögin.

2. Lækka kosningaaldur í 16 ár

Skref í átt að framþróun lýðræðis er lækkun kosningaaldurs í 16 ár. Í því felst löngu tímabær innleiðing Barnasáttmálans og veitir yngra fólki mikilsverð borgaraleg réttindi. Þar með er ungu fólki sem til þess hefur þroska sýnd virðing í verki og treysti fyrir raunverulegu valdi til að hafa áhrif á samfélagið sitt. Engin haldbær rök eru til staðar sem réttlæta útilokun þessa þjóðfélagshóps frá grundvallarréttindum á borð við lýðræðisþátttöku.

Aðgerð:

Að dómsmálaráðherra leggi fram frumvarp um breytingu á lögum um kosningar nr. 112/2021 sem leggur til að kosningaaldur skuli lækkaður í 16 ár í kosningum til sveitarstjórna. Tryggja skal að 16 og 17 ára ungmenni fái tækifæri til að kjósa í næstu sveitarstjórnarkosningum árið 2026. Fjármagna þarf átak í lýðræðisfræðslu samhliða þessum breytingum. Mælist LUF til þess að ríkisstjórnin leggi fram breytingu á 33. gr. Stjórnarskrárinnar og lækki þar með kosningaréttinn í 16 ár jafnframt í alþingis- og forsetakosningum eigi síðar en fyrir lok kjörtímabils núverandi ríkisstjórnar.

3. Miða Kosningaaldur við ár en ekki dag

Mikilvægasti réttur í lýðræðisríki er kosningaréttur og er það hagur allra lýðræðisríkja að kosningaþátttaka sé sem mest. Með því að láta heila árganga fá kosningarétt á sama tíma má auka kosningaþátttöku yngsta aldurshópsins. Þó að flest réttindi séu veitt við afmælisdag, frekar en aldursár, þá eru á því undantekningar og má þar nefna hvenær almenn skattinnheimta hefst. Horfa má til Noregs sem fyrirmynd, þar sem að kosningaréttur er veittur 1. janúar það ár sem aðili nær kjöraldri. Árgangar fara í gegnum grunnskólann samstíga, óháð fæðingardegi. Það skiptir ekki máli hvort að aðili sé fæddur í janúar, júní, eða desember, gerðar eru sömu kröfur til jafnaldra óháð fæðingardegi og gert er ráð fyrir að jafnaldrar hafi jafna getu til upplýstrar ákvarðanatöku enda hefur samfélagið ávallt veitt þeim jafna fræðslu. Er því eðlilegra að kosningaréttur þeirra sé veittur miðað við fæðingarár en ekki dag.

Aðgerð:

Að dómsmálaráðherra leggi fram frumvarp um breytingu á lögum um kosningar nr. 112/2021 sem leggur til að kosningaaldur skuli miða við ár en ekki dag í kosningum til sveitarstjórna. Tryggja skal að heilir árgangar ungmenna fái tækifæri til að kjósa í næstu sveitarstjórnarkosningum árið 2026. Mælist LUF til þess að ríkisstjórnin leggi fram breytingu á 33. gr. Stjórnarskrárinnar og miði þar kosningarétt við aldursár en ekki afmælisdag jafnframt í alþingis- og forsetakosningum eigi síðar en fyrir lok kjörtímabils núverandi ríkisstjórnar.

4. Yfirfara aldursbundin hæfniviðmið

Aldur einn og sér er ekki hæfniviðmið og ekki er réttlætanlegt að skerða réttindi fólks án góðra og gildra raka. Í hinar ýmsu stöður er hægt að gera kröfu um ákveðna hæfni en aldur einn og sér er ekki hæfni. Má nefna framboð til forseta, þar sem samkvæmt stjórnarskrá verður frambjóðandi að vera orðin 35 ára. Eins eru gerðar aldurskröfur í hinum ýmsu lögum, þar á meðal lögum um dómstóla.

Aðgerð:

Að stjórnvöld fari fyrir því að aldursviðmið séu yfirfarin í lagaákvæðum og stjórnarskrá og annað hvort felli þau á brott eða beri rök fyrir tilvist þeirra.

5. Tryggja félagafrelsi ungmenna undir 18 ára aldri

Ríkisskattstjóri hefur neitað að taka til greina tilkynningar um breytingar á stjórnum almennra félaga, sökum þess að ólögráða einstaklingar hafa verið kjörnir til stjórnarsetu, þvert á ákvæði 74. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/19445 um félagafrelsi, sem og almenna jafnræðisreglu sem bundin er í 1. mgr. 65. gr. Er þar jafnframt brotið gegn réttindum barna til tjáningar og þátttöku í samfélaginu sem sérstaklega eru tryggð í 12. – 15. gr. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sbr. lög nr. 19/20136. Eiga börn því sjálfstæðan rétt til þess að stofna og taka þátt í félögum og þann rétt þarf að tryggja að íslenskum rétti.

Aðgerð:

Að mennta- og barnamálaráðherra leggi fram frumvarp um breytingu á Æskulýðslögum nr. 70/2007 með nýju ákvæði sem tryggir félagafrelsi ungmenna. Jafnframt er þörf á breytingu á lögum nr. 110/2021 um félög til almannaheilla þess efnis að ungmennafélög verði undanþegin ákvæði 19. gr. laganna um stjórnun félags, þar sem gerð er sú krafa að stjórnarmenn þurfi að vera lögráða.

6. Lögfesta LUF sem ungmennaráð Íslands

Nauðsynlegt er að LUF verði viðurkenndur samráðsvettvangur svo tryggja megi rödd ungs fólks að öllum málum sem hafa áhrif á yngri kynslóðir. Þar með yrði tryggt að sú rödd hafi lýðræðislegt umboð. LUF hefur starfað sem hagsmunafélag ungs fólks sem og fulltrúi ungs fólks gagnvart stjórnvöldum og á alþjóðavettvangi í 20 ár. Skipulag LUF byggist á sömu borgaralegu gildum og aðrar þær lýðræðislegu stofnanir sem fara með hagsmuni í landinu en samt hefur verið gengið fram hjá félaginu þegar kemur að virku og raunverulegu samráði við stjórnvöld. Því miður er staðreyndin sú að rödd ungs fólks hefur verið hundsuð. Lagaleg viðurkenning stjórnvalda mun gera LUF auðveldara um vik að halda á lofti sjónarmiðum ungs fólks á forsendum ungs fólks. Þó svo að LUF sé nefnt sem heildarsamtök ungs fólk í málaflokknum í greinargerð með lögunum, og þar einnig vakin athygli á alþjóðlegri stöðu félagsins sem „National Youth Council,“ má enn greina tregðu við að viðurkenna stöðu LUF hér á landi. LUF telur því nauðsynlegt að réttmæt staða félagsins verði tryggð í lögunum þar sem fyrra fyrirkomulag hefur ekki dugað sem skyldi. Með því geta íslensk stjórnvöld loks fylgt tilmælum ráðherranefndar Evrópuráðsins frá árinu 2006, sem kveða m.a. á um að „National Youth Councils“ verði falið lögformlegt hlutverk í samráðsferlum stjórnvalda.

Samhliða þessu gefst tækifæri til endurskoðunar á Æskulýðssjóði (e. Icelandic Youth Fund) með grannríki Íslands á Norðurlöndunum sem komin eru lengra í að tryggja gæði í ungmennastarfi sem fyrirmynd. Helst fyrrgreind röksemdafærsla að auki í hendur við kröfu um lögfestingu LUF sem ungmennaráð Íslands þar sem óeðlilegt er að LUF keppist við eigin aðildarfélög um fjárveitingar. Með þessum framfaraskrefum mætti færa vettvang ungmennastarfs á Íslandi nær því sem gengur og gerist í þeim lýðræðisríkjum sem við berum okkur saman við.

Aðgerð:

Að mennta- og barnamálaráðherra leggi til að bæta við lagagrein í endurskoðun Æskulýðslaga 70/2007 sem felur í sér viðurkenningu á að Landssamband ungmennafélaga sé ungmennaráð Íslands ásamt skýringu á hlutverki þess þegar kemur að t.a.m. stefnumótun, samráði og sjóðaúthlutunum. Kafli um Æskulýðssjóð yrði þ.a.l. endurskoðaður m.t.t. að færa sjóðinn nær grasrót ungs fólks.

7. Breyta æskulýðsráði í samstjórnarkerfi

Meðal nauðsynlegra breytinga sem LUF hefur lengi talið brýnt að ráðast í er að gera hagsmunastarfi og réttindabaráttu ungs fólks hærra undir höfði í Æskulýðslögum nr. 70/2007. Til að þau geti staðið undir hlutverki sínu, ættu lögin með réttu að tryggja óskilyrta aðkomu ungs fólks að ákvarðanatöku, sem og að auðvelda ungu fólki að taka þátt í ungmennastarfi sem miðar að því að efla og vernda réttindi hópsins. Brýnt er að endurskoða skipan í Æskulýðsráð sem hefur m.a. það hlutverk að vera stjórnvöldum til ráðgjafar um málaflokkinn.

Aðgerð:

Að mennta- og barnamálaráðherra leggi fram frumvarp til breytingar á 5. og 6. gr. Æskulýðslaga nr. 70/2007 sem kveða á um Æskulýðsráð í útfæri heldur form lýðræðislegs samstjórnarkerfi (e. Co-Management Structure) með umgjörð ráðgjafaráðs Evrópuráðsins í málefnum ungs fólks sem fyrirmynd.12 Þar á ungt fólk með breytt lýðræðislegt umboð sæti ásamt sérfræðingum úr öllum þeim ráðuneytum sem koma að málefnum barna og ungmenna.

8. Útrýma skilgreiningarvanda málaflokksins

Í þeirri stefnu sem síðast var í gildi á árunum 2014-2018 kom eftirfarandi fram: Við gerð stefnumótunar í æskulýðsmálum kemur berlega í ljós ákveðinn skilgreiningar- og hugtakavandi sem fagsviðið býr við. Mikilvægt er að vekja athygli á því þar sem sameiginlegur skilningur á lykilhugtökum er nauðsynlegur í vinnu sem þessari. Fram kemur í stefnunni að brýnt sé að vinna markvisst í þeim málum og skýra betur lykilhugtök. Frá þeim tíma hefur LUF vakið athygli á því að með nýrri stefnu um tómstunda- og félagsstarf barna og ungmenna sem á að gilda til ársins 2030 varð ákveðin afturför í málaflokknum sökum þess að málaflokkurinn minnkaði með þrengri og útilokandi skilgreiningum. LUF hefur jafnframt ítrekað vakið athygli á því að ungt fólk á að fá að skilgreina sig sjálft og að ef Ísland ætli sér einhverntímann að standa jafnfætis þeim lýðræðisríkjum sem við berum okkur saman við er brýnt að íslensk stjórnvöld notist við skilgreiningar alþjóðlegra stofnanna. Þar ríkir ekki skilgreiningar- og hugtakavandi, heldur mótaðar hafa verið skýrar stefnur sem alþjóðasamfélagið hefur komið sér saman um. Hér er t.d. átt við um hugtök eins og: ungmennafélag, ungmennastarf, ungmennastefna o.s.frv.

Aðgerð:

Að mennta- og barnamálaráðherra ráðist í endurskoðun á hugtakanotkun stjórnsýslunnar, bæði með lagabreytingum og uppfærslum á stefnum o.s.frv. í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar, sáttmála, tilmæli, ályktanir o.fl.

9. Þátttaka í ungmennastarfi rannsökuð, viðurkennd og efld

Þátttaka í ungmenna- og félagsstarfi hefur víðtæk jákvæð áhrif á einstaklinga, í henni felst jafnan oft barátta fyrir bættu samfélagi og er sterkt borgarsamfélag með öflugri þátttöku ungs fólks því hagsmunamál fyrir samfélagið allt. Hafa ungmennafélög undir regnhlíf LUF fundið fyrir dræmari þátttöku eftir COVID 19 faraldurinn. Þá hefur áhersla stjórnvalda verið á íþróttastarf umfram ungmennastarf, merki um það er m.a. skortur á skýrum og mælanlegum spurningum sem taka til ungmennastarfs í Æskulýðsrannsókninni. Skortur er á upplýsingum um stöðu ungmennafélaga á Íslandi, þátttöku ungs fólks í lýðræðislegum félögum og aðgengi ungs fólks að lýðræðislegu starfi. Mikilvægt er að ungmennastarf sé viðurkennt til jafns við íþróttastarf, stjórnvöld viðhafi samráð við ungt fólk og greiði fyrir sérfræðiþekkingu ungs fólks til jafns við aðra. Efla þarf ungmennastarf sérstaklega á landsbyggðunum þar sem framboð er í minna mæli en á höfuðborgarsvæðinu.

Aðgerð:

Orðalag og spurningar í Æskulýðsrannsókninni verði endurskoðað og tryggt verði að rannsóknin mæli þátttöku ungmenna í lýðræðislegu starfi. Staða ungmennafélaga og þátttaka innan þeirra sem og aðgengi ungs fólks að lýðræðislegu starfi verði rannsakað og brugðist verði við niðurstöðum. Tryggt verði að ungt fólk sem taka sæti í nefndum eða starfshópum á vegum ríkis- eða sveitarfélaga fái greitt fyrir sitt framlag til jafns við aðra.

10. Auka framboð á húsnæði fyrir ungt fólk

„Hluti af ferli ungs fólks í átt að fullu sjálfstæði er að flytja að heiman og að hafa getu til að sjá fyrir og viðhalda heimili og stofna fjölskyldu. Ungt fólk býr lengur í foreldrahúsum en áður og jafnvel fram yfir fyrstu skrefin á vinnumarkaði. Skortur á litlum íbúðum og hátt leigu- og íbúðaverð valda þessu. Þetta ástand kemur í veg fyrir sjálfstæði ungs fólks til að sjá fyrir sér og taka ábyrgð á eigin lífi. Með tilliti til þarfa ungs fólks og þess að ungt fólk hefur minni ráðstöfunartekjur en aðrir aldurshópar er þörf á sérstökum úrræðum“ segir í stefnu LUF. Greinilegt er að stór hluti vandans eru dýrar og fágætar lóðir sem hægja á uppbyggingu. LUF hefur lengi kallað eftir aðgerðum sem miða að því að fjölga húsnæðisúrræðum á viðráðanlegu verði með tilliti til samgangna og nærþjónustu.

Aðgerð:

Að samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra endurskoði skipulagslög nr. 123/2010 með það að markmiði að liðka fyrir húsnæðisuppbyggingu. Meðal annars má skylda sveitarfélög til að sýna hófsemi í sölu á byggingarréttum og rukkun tengdra gjalda ásamt þolinmæði gagnvart verktökum til þess að hámarka líkurnar á að verktakar telji byggingaverkefnin áhættunnar virði. Með þessu má tryggja hraðari uppbyggingu hagkvæms húsnæðis með hófsemi að leiðarljósi.

11. Endurskoða viðmið viðbótarlána menntasjóðs námsmanna vegna húsnæðiskostnaðar

Viðbótarnámslán Menntasjóðs námsmanna vegna húsnæðiskostnaðar taka ekki mið af almennum markaði og bera stúdentar á Íslandi því þunga fjárhagslega byrði vegna húsnæðiskostnaðar. Til að sjóðurinn komist nær því að uppfylla hlutverk sitt sem félagslegur jöfnunarsjóður verður að tryggja fjárhagslegt öryggi námsmanna.

Aðgerð:

Að ráðherra menningar-, nýsköpunar- og háskólamála leggi fram tillögu til breytinga á lögum nr. 60/2020 um menntasjóð námsmanna, þess efnis að viðbótarlán vegna húsnæðiskostnaðar hækki að lágmarki í beinu hlutfalli við leiguverð.

12. Tryggja fjárhagslegt öryggi námsmanna

Námslánakerfið er undirstaða jafnréttis til náms á Íslandi. Námslán eiga að duga til að standa straum af almennum framfærslukostnaði, líkt og kveðið er á um í 2. mgr. 2. gr. laga nr. 60/2020 um Menntasjóð námsmanna. Of lág framfærsla skerðir aðgengi að menntun og er ein aðalástæða þess að íslenskir háskólanemar eiga Evrópumet í atvinnuþátttöku samkvæmt könnun Eurostudent. Framfærsla verður að taka tillit til verðlagsbreytinga, þróunar leiguverðs og gengisbreytinga, og duga til þess að stúdentar þurfi ekki að vinna jafn mikið með námi og raun ber vitni. Þar að auki eru kröfur um lágmarksnámsárangur mjög háar, eða 22 ECTS, og lítið þarf út af að bregða til að stúdentar missi rétt sinn til fjárhagslegs stuðnings. Lækka þarf kröfur um lágmarksnámsárangur í 15 ECTS í samræmi við norska námsstyrkjakerfið, sérstaklega í ljósi þess að íslenskir stúdentar vinna mest allra í Evrópu. Auka þarf möguleika á svigrúmi í námi, t.a.m. með undanþágum, því stúdentar eiga ekki að þurfa að vinna og það þarf lítið að fara úrskeiðis til að missa rétt á stuðningi.

Aðgerð:

Að háskólamálaráðherra sjái til þess að ráðist sé í allsherjar yfirhalningu á úthlutunarreglum Menntasjóðs námsmanna í því augnamiði að bundnar fjárhæðir og viðmið sem áhrif hafa á fjárhag námsmanna verði endurskoðuð og greint verði hvar glufur í reglunum má finna sem leiða til þess að kerfið uppfylli ekki hlutverk sitt sem jöfnunarsjóður þar sem ekki er tekið tillit til ólíkra aðstæðna námsmanna. Að háskólamálaráðherri sjái jafnframt til þess að fyrir skólaárið 2026-2027 verði kröfur um lágmarksnámsárangur í úthlutunarreglum Menntasjóðs námsmanna lækkaðar úr 22 ECTS í 15 ECTS, framfærsla nógu há til að tryggja fjárhagslegt öryggi stúdenta og tvískiptingu frítekjumarks námsmanna komið á.

13. Menntasjóður námsmanna verði styrktarsjóður að norrænni fyrirmynd

Þörf er á raunverulegum og heildstæðum úrbótum á námslánakerfinu til að tryggja að Menntasjóður námsmanna uppfylli lögbundið hlutverk sitt sem félagslegur jöfnunarsjóður. Í Noregi er veitt 40% niðurfelling af höfuðstól láns við námslok óháð lengd námstíma, slíkt fyrirkomulag tekur mun betur tillit
til þeirra ólíku ástæðna sem geta leitt til þess að nemar ljúki ekki námi á tilsettum tíma. Hér skal tekið fram að engin ástæða er til að ætla að háskólanemar hafi ekki fullan vilja til þess að ljúka námi á áætluðum tíma enda er það tvímælalaust í hag stúdenta að fara sem fyrst á vinnumarkað. Að lokum leggja stúdentar áherslu á að menntun hefur ávallt í för með sér samfélagslegan ábata, óháð því hvort sem henni lýkur með gráðu eða ekki.

Aðgerð:

Að Háskólamálaráðherra leggi fram frumvarp að breytingu á lögum nr. 60/2020 um Menntasjóð námsmanna fyrir lok árs 2026. Frumvarp þetta skal leggja til að veittur verði námsstyrkur fyrir hverja þreytta einingu, veitt verði 25% niðurfelling af láni fyrir hverja lokna einingu og að veitt verði 15% niðurfelling af höfuðstól námslána við námslok til viðbótar við þau 25% sem eru felld niður í lok hverrar annar. Heildarstyrkurinn verði þannig 40% af höfuðstól lánsins, óháð lengd námstíma. Þá verði vaxtaþakið lækkað og vaxtaálag afnumið til að auka fyrirsjáanleika og stöðugleika fyrir greiðendur. Einnig er farið fram á að vinna við frumvarpið fari fram í samráðshópi með fulltrúum námsmannasamtakanna.

14. Fæðingarstyrkur námsmanna efldur

Þriðjungur íslenskra stúdenta eru foreldrar, en hlutfall foreldra í námi er hvergi hærra í Evrópu eins og fram kemur í Eurostudent VIII16. Samkvæmt könnun SHÍ þykir meirihluta foreldra í námi fæðingarstyrkur námsmanna ekki sinna hlutverki sínu og reyna foreldrar jafnvel að komast hjá því að þiggja hann og í þeim tilfellum sem þau hafa nýtt sér hann er hann ekki nægur. Barnastyrkur Menntasjóðs námsmanna var einnig ófullnægjandi.

Mikilvægt að stúdentar geti tekið leyfi frá námi og einbeitt sér alfarið að fyrstu mánuðum barnsins. Margir stúdentar vinna með námi. Einnig er ekki gert ráð fyrir því að stúdentar þurfi að brúa bilið milli fæðingarorlofs og dagvistunar hjá Menntasjóði námsmanna, það er í lagi að ílengjast í námi vegna orlofs og fá samt niðurfellingu, hins vegar er ekki gert ráð fyrir því að 1-3 annir eru undirlagðar í að “brúa bilið” og eiga foreldrar þá hættu á að missa styrkinn. Nám er ekki eins og vinna heldur er það skipulagt í önnum og jafnvel árum. Foreldrið getur þurft að missa heilt ár úr námi, eftir því hvenær barn fæðist og ekkert komið til móts við það. Þetta bitnar sérstaklega á því foreldri sem gengur með barnið og er því mikið jafnréttismál.

Koma verður betur til móts við íslenska námsmenn sem verða foreldrar í ljósi þess hve blönduð atvinnuþátttaka og ástundun náms er meðal íslenskra stúdenta 20% vinna og 80% nám ætti að teljast til 100% þátttöku á vinnumarkaði samkvæmt orlofssjóði. Inn á borð til okkar hafa ratað námsmenn sem eru í hlutastarfi, með börn og ekki í fullu námi og detta þá milli skips og bryggju eða þurfa að velja á milli þess að fara í fæðingarorlof samkvæmt réttum þeirra í hlutastarfi. Þá er mikilvægt að kerfið taki tillit til þess að nám er frábrugðið vinnu að því leyti að nám er skipulagt í önnum og jafnvel árum og getur því ekki gengið beint að námi eftir orlof. Foreldri getur þurft að missa tvær annir úr námi, eftir því hvenær árs barnið fæðist, en á þó aðeins rétt á 6 mánaða orlofi. Þetta eru þó einstaklingar sem eru 100% virkir ef hlutastarf og nám er lagt saman. Auka þarf sveigjanleika fæðingarorlofssjóðs í garð námsmanna sem koma erlendis frá. Nám er ekki skipulagt með sama hætti alls staðar í heiminum og eiga námsmenn erlendis sérstaklega hættu á að falla á milli kerfa. Taka þarf tillit til maka sem fara erlendis og/eða
ílengjast erlendis vegna náms maka þeirra þegar kemur að almannatryggingum, t.d. að réttindi geymist.

Aðgerð:

Að félagsmálaráðherra sjái til þess að fæðingarstyrkur námsmanna sé jafnaður meðalupphæð greiðslna úr fæðingarorlofssjóði fyrir fullt starf eða jafnaður að lágmarks atvinnuleysisbótum. Þá verði þeim stúdentum sem hafa unnið meðfram námi gert kleift að nýta bæði tekjutengdar orlofsgreiðslur og fæðingarstyrk námsmanna. Þá sé tryggt að tímalengd fjárhagslegs stuðningur við foreldra í námi fyrsta ár barnsins taki tillit til skipulags náms. Sveigjanleiki fyrir námsmenn
sem læra erlendis sem stunda nám sem skipulagt er á annan hátt t.d. ef prófatíð er á öðrum tíma en í íslensku kerfi eða horft sé til námsframvindu á skólaárinu í heild sinni en ekki önnum. Einnig að makar sem fylgja þeim erlendis til að nýta áunnin réttindi á vinnumarkaði frá því að áður en farið var erlendis m.t.t. tekjutengingartímabilsins eða að ráðgefandi álit EFTA sé virt varðandi tekjutengingu þeirra sem starfa erlendis á því tímabili sem réttindi séu áunnin.

15. Umbætur í leikskólamálum

Brýnt er að börn komist fyrr á leikskóla, þar sem langir biðlistar valda því að foreldrar eiga erfitt með að snúa aftur til náms eftir fæðingarorlof, og tekur Menntasjóður námsmanna ekki tillit til sveigjanleika vegna barneigna eftir fyrsta ár barnsins. Að brúa umönnunarbilið milli fæðingarorlofs og leikskóla er íþyngjandi og hefur neikvæð fjárhagsleg áhrif á ungt fólk og barnafjölskyldur. Þetta er stórt jafnréttismál í okkar samfélagi þar sem staðreyndin er sú að þetta bitnar iðulega mest á konum, sem veldur því að þetta hefur áhrif á ævitekjur kvenna, setur nám þeirra úr skorðum og eykur fjárhagslegar áhyggjur til muna að þurfa að brúa bilið á milli náms og atvinnu, og fæðingarorlofs og leikskóla.

Aðgerð:

Að Mennta- og barnamálaráðherra leggi fram frumvarp þar sem leikskólastigið verður lögfest sem fyrsta skólastigið með því markmiði að lágmarka tekjutap barnafjölskyldna og tryggja börnum stöðugt og þroskandi umhverfi á vönduðum og vel mönnuðum leikskólum. Til að þetta sé raunhæft þarf að fjölga menntuðum kennurum við störf í leikskólum. Til þess er nauðsynlegt að bæta kjör og vinnuaðstæður kennara og því þarf að tryggja að verkefninu fylgi aukin fjárveitingu til sveitafélaganna.

16. Forgangsraða ungu fólki í framkvæmd aðgerðaráætlunar í geðheilbrigðismálum

LUF telur að bregðast þurfi við vísbendingum um versnandi líðan ungs fólks. Embætti landlæknis benti á í umsögn sinni um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum að félagslegir þættir og lífsaðstæður fólks vegi þungt þegar kemur að geðheilbrigði og þau sem búi við slaka stöðu og jaðarsetningu séu mun líklegri til að þróa með sér geðræna erfiðleika. Af þeim sem leituðu til Stígamóta á árinu 2023 voru 92,2% brotaþola undir þrítugu þegar brotið var framið19. Á árinu 2023 voru 52,3% lyfjatengdra andláta einstaklingar undir 44 ára aldri. Þá byrja meira ¾ alvarlegra geðsjúkdóma fyrir 25 ára aldur. Rétt meðhöndlun snemma á sjúkdómsferlinu skiptir sköpum og mikilvægt að þjónusta taka tillit til þess að ungt fólk hefur aðrar þarfir en eldra fólk. Ungt fólk er áhættuhópur þegar litið er til félagslegra þátta og lífsaðstæðna og því nauðsynlegt að ungu fólki og aðgerðum í þeirra þágu sé forgangsraðað í framkvæmd aðgerðaráætlunar í geðheilbrigðismálum og ungt fólk hafi aðkomu að stefnumótun í geðheilbrigðismálum.

Aðgerð:

Heilbrigðisráðherra veiti Landssambandi ungmennafélaga umboð til að skipa fulltrúa ungs fólks í geðráð. Aðgerð 1.A.3 í aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum verði breytt svo hún taki til allra skólastiga. Að bætt verði við aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum aðgerð um stofnun greiningarhóps með það hlutverk að rannsaka orsakir langra biðlista í geðheilbrigðisþjónustu, safna saman lýðfræðilegum gögnum um þá einstaklinga sem eru á ólíkum biðlistum og leggja í kjölfarið til úrbætur sem miða að því að útrýma biðlistum. Við árlega endurskoðun á aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum verði ungu fólki og þeirra þörfum forgangsraðað.

17. Flýta fyrir Úrbótum í samgöngumálum

Samgöngumál hafa verið í brennidepli í stefnumótun á vettvangi LUF svo árum skiptir. Brýnt er að stjórnvöld bregðist við ákalli ungs fólks um bættar samgöngur, enda eru þær forsenda fyrir þátttöku í námi, á vinnumarkaði, sem og í borgaralegu samfélagi. Þótt þarfir hópsins séu margvíslegar og kappkosta verði að koma jafnt til móts við þá sem kjósa almenningssamgöngur og annan fararmáta, er ljóst að mestra úrbóta er þörf í fyrrnefnda flokknum. Þá skilur nokkuð á milli áskorana á höfuðborgarsvæðinu annars vegar og á landsbyggðunum hins vegar. Á höfuðborgarsvæðinu liggur fyrir samgöngusáttmáli ríkisins og hlutaðeigandi sveitarfélaga sem gildir til ársins 2040.22 Mikilvægt er að framkvæmd samkomulags um samvinnu um rekstur og stjórnskipulag almenningssamgangna á
höfuðborgarsvæðinu verði sett á oddinn og framkvæmd sáttmálans flýtt. Á landsbyggðinni er aðgerða þörf, bæði hvað varðar rekstur landsamgangna milli byggða, sem og á vettvangi almenningssamgangna innan byggðalaga23. Þá er ekki úr vegi að nefna í þessu samhengi nauðsyn þess að tryggja almenningssamgöngur á milli höfuðborgarsvæðisins og nærliggjandi byggða, þar sem mikill fjöldi ungs fólks ferðast þar á milli hvern dag til að sækja skóla, vinnu og þjónustu.

Aðgerð:

Að ríkisstjórnin fylgi fast eftir og flýti framkvæmd og fjármögnun samkomulags um samvinnu um rekstur og stjórnskipulag almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Hvað landsbyggðirnar varða er því beint til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að beita sér fyrir stórbættri þjónustu almenningssamgangna, bæði í umfangi og gæðum, um land allt.