Auglýst eftir þátttakendum! Norræn ungmennaráðstefna gegn hatursorðræðu fer fram í Utøya í Noregi dagana 5.- 9.september 2024. Ferðakostnaður og uppihald er að fullu greitt af skipuleggjendum og er opið fyrir umsóknir frá öllu ungu fólki á aldrinum 16 – 30 ára sem búsett eru á norðurlöndunum en fjögur ungmenni frá Íslandi verða valin til þáttöku. Markmið ráðstefnunnar er m.a.s. að skapa sjálfbæran norrænan samstarfsvettvang gegn hatursorðræðu og mynda sameiginlega aðgerðaráætlun og leiðbeiningar fyrir aðila innan samstarfsvettvangsins. Hvetjum við öll áhugasöm, sem vilja beita sér gegn ógninni sem hatursorðræða er að sækja um, en umsóknarfrestur er til 23.júní. Frekari upplýsingar og skráningarform má finna hér.