Ný Norræn styrkjaáætlun: NUBF

Norræn ungmenni í sjálfbærum samfélögum, NUBF, er samstarfsverkefni milli Landssambanda ungmennafélaga á Norðurlöndunum og Mennta- og banramálaráðuneyti Danmerkur. 

Markmið NUBF er að efla tengslanet ungs fólks á Norðurlöndunum með styrkjum fyrir samstarfsverkefnum ungs fólks á svæðinu. Bæði ungmennafélög og óformlegir hópar ungs fólks geta sótt um styrk fyrir verkefni ef skipuleggjendur þess eru frá tveim Norðurlöndum eða fleirum. 

Auk þess mun NUBF styðja við starfið með árlegri þjálfun fyrir ungt fólks þar sem þátttakendur fá tækifæri til að kynnast nágrönnum sínum á Norðurlöndunum og geta fengið aðstoð við umsóknarferlið!

Áhugasamir geta sótt um styrki í Verkefnalaug NUBF (e. activity pool) sem er að finna á vefsíðu verkefnisins.

Frekari upplýsingar á vefsíðu áætlunarinnar: www.nordicyouth.org
Ertu með spurningu? Sendu fyrirspurn á Jonas Roelsgaard hjá jro@duf.dk

Norræn ungmenni í sjálfbærum samfélagögum (NUBF) er samstarfsverekfni milli Landssambanda ungmennafélaga á Norðurlöndunum og Mennta- og banramálaráðuneyti Danmerkur. NUBF er þáttur í formennsku Danmerkur í Norrænu ráðherranefndinni árið 2020 og verður starfandi til ársins 2022.

Deila færslu

Barne og