Senda inn umsókn

Senda inn umsókn

Umsóknarfrestur er til og með 29. september

Opið er fyrir umsóknir í Leiðtogaskóla Íslands 2018

Leiðtogaskóli Íslands (LSÍ) hefur það að markmiði að efla leiðtogahæfni og valdefla ungt fólk í félagasamtökum. Skólinn er hugsaður fyrir ungt fólk á aldrinum 16-35 ára sem sitja í stjórnum félagasamtaka, sjálfboðaliða og aðra áhugasama félagsmenn. Skólinn fer fram helgarnar 6. – 7. & 27. – 28. október. Smelltu hér til að skoða stundatöfluna.

Þau námskeið sem skólinn mun bjóða upp á í ár eru m.a.: Leiðtogafræði, Hópeflisstjórnun, Stjórnarseta, Fundarstjórnun & fundarritun, Mannréttindi, Heimsmarkmiðin, Stefnumótun, Vinnustofustjórnun, Verkefnastjórnun, Viðburðastjórnun. Fjármögnun & styrkumsóknir, Samskiptahæfni, Ræðumennska, Framkoma & framsaga og Sjálfsstyrking. Smelltu hér til þess að lesa námskeiðslýsingar.

Færri komast að en vilja, því verða þátttakendur valdir þannig að þeir endurspegli sem flest aðildarfélög LUF sem og út frá aldri, kynjahlutfalli, áhuga, vilja til að læra og stöðu til að miðla þekkingunni áfram. Litið verður á leiðtogahlutverk og/eða reynslu af ungmenna- og hagsmunastarfi sem kost.

Þeir þátttakendur sem komast inn í skólann skuldbinda sig til þess að vinna að innleiðingu Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna í ungmennastarf, sem er þema skólans árið 2018, í samræmi við lið 2.3. um sjálfbæra þróun í stefnu LUF og markmið nr. 21 í framkvæmdaáætlun stjórnar kjörtímabilið 2018-2019.

Skólinn er meðlimum aðildarfélaga LUF að kostnaðarlausu.