Landssamband ungmennafélaga (LUF), í samstarfi við Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og forsætisráðuneytið, óskar hér með eftir framboðum til Ungmennafulltrúa Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði sjálfbærrar þróunar (e. United Nations Youth Delegate of Iceland on Sustainable Development) sem verður lýðræðislega kjörinn á leiðtogaráðsfundi LUF þann 24. nóvember næstkomandi. Ungmennafulltrúinn kemur til með að taka þátt í störfum ráðherrafundar Sameiðuðu þjóðanna (e. United Nations High-Level Political Forum (HLPF 2022), sem fram fer í New York 5. – 15. júlí, í umboði ungs fólks á Íslandi.
Ungmennafulltrúar Sameinuðu þjóðanna
Sendinefndin er samstarfsverkefni LUF og Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi sem vinna að aukinni þátttöku Ungmennafulltrúa Íslands á viðburðum Sameinuðu þjóðanna (e. UN Youth Delegation Programme). Ungmennafulltrúar eru lýðræðislega kjörnir af aðildarfélögum LUF og sækja viðburði Sameinuðu þjóðanna í umboði íslenskra ungmenna í samstarfi eftirfarandi ráðuneyti: Félagsmálaráðuneytið, forsætisráðuneytið, umhverfis- og auðlindaráðuneytið, utanríkisráðuneytið og mennta- og menningarmálaráðuneytið.
Hvernig býð ég mig fram?
Öll aðildarfélög LUF (með fulla aðild og áheyrnaraðild) geta tilnefnt einn fulltrúa til framboðs. Áhugasamir félagsmenn aðildarfélaga LUF þurfa því að óska eftir umboði frá stjórn viðkomandi félags. Stjórnin tilkynnir framboð með því að fylla út skráningarform, sem öll aðildarfélög koma til með að fá sent í fundarboði. Með umboði staðfestir stjórn að frambjóðandinn uppfylli eftirfarandi hæfniskröfur.
Hæfniskröfur:
- Umboð frá aðildarfélagi LUF.
- Vera á aldrinum 18 – 25 ára.
- Hafa þekkingu á Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
- Hafa reynslu af hagsmunastarfi ungmennafélaga.
- Búa yfir leiðtogahæfni og frumkvæði.
- Hafa vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
- Viðeigandi menntun sem nýtist í embætti / þekking á Sameinuðu þjóðunum er kostur.
Framboðsfrestur rennur út á 3. leiðtogaráðsfundi LUF, 24. Nnóvember.
Sendinefnd LUF
Kjör ungmennafulltrúa Íslands hjá SÞ á sviði barna og ungmenna skipar sæti í sendinefnd LUF hjá Sameinuðu þjóðunum. Nefndin er hluti af alþjóðanefnd LUF og er jafnframt starfshópur LUF um málefni ungs fólks hjá Sameinuðu þjóðunum. Hún starfar sem vinnuhópur, ráðgjafaráð, upplýsingaveita og brú á milli LUF, Félags SÞ á Íslandi og sendandi ráðuneyta. Fulltrúinn mun gegna embættinu þar til nýr tekur við. Sendinefndin skipar nú fimm fulltrúa; á sviði mannréttinda, loftslagsmála, sjálfbærar þróunar, kynjajafnréttis, og barna og ungmenna.
Embættið er sjálfboðastarf, að dagpeningum erlendis undanskildum.