Kjörinn fulltrúi sækir fund ungmennavettvangs efnahags- og félagamálaráð Sameinuðu þjóðanna ( e. The Economic and Social Council (ECOSOC) Youth Forum).

Landssamband ungmennafélaga (LUF), í samstarfi við Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og félagsmálaráðuneytið, óskar hér með eftir framboðum til Ungmennafulltrúa Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði barna og ungmenna

Ungmennafulltrúinn verður lýðræðislega kjörinn á 2. leiðtogaráðsfundi LUF þann 3. september nk. Hann kemur til með að taka þátt á ungmennavettvangi efnahags- og félagsmálaráðs Sameinuðu þjóðanna, í umboði ungs fólks á Íslandi. Tímasetning fundar ungmennavettvangisns verður auglýst síðar.

Hvernig býð ég mig fram? 

Öll aðildarfélög LUF (með fulla aðild og áheyrnaraðild) geta boðið fram einn fulltrúa. Áhugasamir félagsmenn aðildarfélaga LUF þurfa því að óska eftir umboði frá stjórn viðkomandi félags. Stjórnin tilkynnir framboð með því að fylla út skráningarform, sem öll aðildarfélög koma til með að fá sent í fundarboði. Með umboði staðfestir stjórn að frambjóðandinn uppfylli eftirfarandi hæfniskröfur.

Hæfniskröfur:

  1. Umboð frá aðildarfélagi LUF.
  2. Vera á aldrinum 18 – 25 ára.
  3. Hafa þekkingu á Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
  4. Hafa reynslu af hagsmunastarfi ungmennafélaga.
  5. Búa yfir leiðtogahæfni og frumkvæði.
  6. Hafa vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
  7. Viðeigandi menntun sem nýtist í embætti / þekking á Sameinuðu þjóðunum er kostur.

Framboðsfrestur rennur út á 2. leiðtogaráðsfundi LUF, 3. september 2020. 

Sendinefnd LUF

Kjör ungmennafulltrúa Íslands hjá SÞ á sviði barna og ungmenna skipar sæti í sendinefnd LUF hjá Sameinuðu þjóðunum. Nefndin er starfshópur LUF um málefni ungs fólks hjá Sameinuðu þjóðunum. Hún starfar sem vinnuhópur, ráðgjafaráð, upplýsingaveita og brú á milli LUF, Félags SÞ á Íslandi og sendandi ráðuneyta. Fulltrúinn mun gegna embættinu þar til nýr tekur við. Sendinefndin skipar nú þrjá fulltrúa; á sviði mannréttinda, loftslagsmála og sjálfbærar þróunar.

Fyrirkomulag

Fulltrúinn kemur til með að sækja fund ungmennavettvangs efnahags- og félagamálaráðs Sammeinuðu þjóðanna. Vettvangurinn er framlag forseta ráðsins til að efla þátttöku ungs fólks í ákvörðunum og stefnumótun innan Sameinuðu þjóðanna. 

Í ljósi aðstæðna hefur fundarhaldi árið 2020 verið frestað og verða dagsetningar fundarins auglýstar þegar þær liggja fyrir.

Skipun ungmennafulltrúi á sviði barna og ungmenna er kostað af félagsmálaráðuneytinu. 

Ráðuneytið greiðir bæði flugfargjöld og dagpeninga og skipulag dvalar verður ákveðið í samstarfi við samstarfsaðila. Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi veitir fulltrúanum ráðgjöf eftir þörfum. LUF heldur utan um efnislegan undirbúning og samstarf fulltrúans við aðra ungmennafulltrúa innan Norðurlanda- og Eistrasaltsríkjabandalagsins (Nordic Baltic Cooperation – NBC) og Evrópska ungmennavettvangsins (European Youth Forum – YFJ).

Embættið er sjálfboðastarf, að dagpeningum erlendis undanskildum.