Landssamband ungmennafélaga (LUF), í samstarfi við forsætisráðuneytið og Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi óskar hér með eftir framboðum til ungmennafulltrúa Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum (SÞ) á sviði kynjajafnréttis.
Skipun fulltrúa er liður í forystuhlutverki Íslands í aðgerðarbandalagi um kynbundið ofbeldi í verkefni UN Women, Kynslóð jafnréttis (e. Generation Equality Forum). Áhersla er lögð á þátttöku ungmenna og samtal á milli kynslóða um framtíðaráherslur í jafnréttismálum.
Kjörinn ungmennafulltrúi kemur til með að sækja viðburði tengda verkefninu Kynslóð jafnréttis. Auk þess að skipa sæti áheyrnarfulltrúa í stýrihóp utanríkisráðuneytisins og forsætisráðuneytisins um verkefnið.
Ungmennafulltrúinn verður lýðræðislega kjörinn á 3. leiðtogaráðsfundi LUF þann 4. nóvember nk.
Hvernig býð ég mig fram?
Öll aðildarfélög LUF (með fulla aðild og áheyrnaraðild) geta boðið fram einn fulltrúa. Áhugasamir félagsmenn aðildarfélaga LUF þurfa því að óska eftir umboði frá stjórn viðkomandi félags. Stjórnin tilkynnir framboð með því að fylla út skráningarform, sem öll aðildarfélög koma til með að fá sent í fundarboði. Með umboði staðfestir stjórn að frambjóðandinn uppfylli eftirfarandi hæfniskröfur.
Hæfniskröfur:
- Umboð frá aðildarfélagi LUF.
- Vera á aldrinum 18 – 25 ára.
- Hafa þekkingu á Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
- Hafa reynslu af hagsmunastarfi ungmennafélaga.
- Búa yfir leiðtogahæfni og frumkvæði.
- Hafa vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
- Viðeigandi menntun sem nýtist í embætti / þekking á Sameinuðu þjóðunum er kostur.
Framboðsfrestur rennur út á 3. leiðtogaráðsfundi LUF, 4. nóvember 2020.
Sendinefnd LUF
Kjör ungmennafulltrúa Íslands hjá SÞ á sviði barna og ungmenna skipar sæti í sendinefnd LUF hjá Sameinuðu þjóðunum. Nefndin er hluti af alþjóðanefnd LUF og er jafnframt starfshópur LUF um málefni ungs fólks hjá Sameinuðu þjóðunum. Hún starfar sem vinnuhópur, ráðgjafaráð, upplýsingaveita og brú á milli LUF, Félags SÞ á Íslandi og sendandi ráðuneyta. Fulltrúinn mun gegna embættinu þar til nýr tekur við. Sendinefndin skipar nú fjóra fulltrúa; á sviði mannréttinda, loftslagsmála, sjálfbærar þróunar og barna og ungmenna.
Embættið er sjálfboðastarf, að dagpeningum erlendis undanskildum.
