Landssamband ungmennafélaga (LUF), í samstarfi við utanríkisráðuneytið og Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, óskar hér með eftir framboðum til ungmennafulltrúa Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum (SÞ) á sviði mannréttinda (e. United Nations Youth Delegate of Iceland on Human Rights).
Kjörin ungmennafulltrúi mun taka þátt í allsherjarþingi SÞ (UNGA 76) sem fer fram dagana 14.-30. september, en tilkynnt verður síðar hvort það fari fram í New York eða rafrænt. Fulltrúinn mun taka við af Esther Hallsdóttir, sem var fyrsti kjörni Ungmennafulltrúi Íslands hjá SÞ. Á allsherjarþinginu 2019 tók Esther þátt í nefndarstörfum þingsins og flutti ræðu á fundi félags-, mannúðar- og menningarnefndar. Esther mun þó áfram gegna stöðu fráfarandi ungmennafulltrúa á sviðinu innan Alþjóðanefndar LUF og aðstoða nýkjörinn fulltrúa eftir þörfum.
Ungmennafulltrúinn verður lýðræðislega kjörinn á Sambandsþingi LUF þann 27. febrúar nk.
Hvernig býð ég mig fram?
Öll aðildarfélög LUF (með fulla aðild og áheyrnaraðild) geta boðið fram einn fulltrúa. Áhugasamir félagsmenn aðildarfélaga LUF þurfa því að óska eftir umboði frá stjórn viðkomandi félags. Stjórnin tilkynnir framboð með því að fylla út skráningu á þingið eða senda tilnefninguna á kjorstjorn@youth.is þar sem fram kemur fullt nafn og tölvupóstfang frambjóðandans ásamt upplýsingum um að viðkomandi sækist eftir þessu embætti. Með umboði staðfestir stjórn að frambjóðandinn uppfylli eftirfarandi hæfniskröfur:
Hæfniskröfur:
- Umboð frá aðildarfélagi LUF.
- Vera á aldrinum 18 – 25 ára.
- Hafa þekkingu á Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
- Hafa reynslu af hagsmunastarfi ungmennafélaga.
- Búa yfir leiðtogahæfni og frumkvæði.
- Hafa vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
- Viðeigandi menntun sem nýtist í embætti / þekking á Sameinuðu þjóðunum er kostur.
Framboðsfrestur rennur út á Sambandsþingi LUF, 27. Febrúar 2021.
Sendinefnd LUF
Kjör ungmennafulltrúa Íslands hjá SÞ á sviði mannréttinda skipar sæti í Sendinefnd LUF. Nefndin er hluti af alþjóðanefnd LUF og er jafnframt starfshópur LUF um málefni ungs fólks hjá SÞ. Hún starfar sem vinnuhópur, ráðgjafaráð, upplýsingaveita og brú á milli LUF, Félags SÞ á Íslandi og sendandi ráðuneyta. Fulltrúinn mun gegna embættinu þar til nýr tekur við. Sendinefndin skipar nú fimm fulltrúa; á sviði mannréttinda, loftslagsmála, sjálfbærar þróunar, barna og ungmenna og kynjajafnréttis.
Embættið er sjálfboðastarf, að dagpeningum erlendis undanskildum.