Landssamband ungmennafélaga (LUF) í samstarfi við Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og forsætisráðyneytið óskar hér með eftir framboðum til ungmennafulltrúa Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði sjálfbærrar þróunar (e. United Nations Youth Delegate of Iceland on Sustainable Development). Ungmennafulltrúinn kemur til með að taka þátt í störfum ráðherrafundar Sameiðuðu þjóðanna (e. United Nations High-Level Political Forum (HLPF 2023), sem fram fer í New York 10. – 19. júlí, í umboði ungs fólks á Íslandi.

Hvernig býð ég mig fram? 

Öll aðildarfélög LUF (með fulla aðild og áheyrnaraðild) geta boðið fram einn fulltrúa. Áhugasamir félagsmenn aðildarfélaga LUF þurfa því að óska eftir umboði frá stjórn viðkomandi félags. Stjórnin tilkynnir framboð með því að fylla út skráningarform, sem öll aðildarfélög fá sent í fundarboði. Með umboði staðfestir stjórn að frambjóðandinn uppfylli eftirfarandi hæfniskröfur.

Hæfniskröfur:

  1. Umboð frá aðildarfélagi LUF.
  2. Vera á aldrinum 18 – 25 ára.
  3. Hafa þekkingu á Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
  4. Hafa reynslu af hagsmunastarfi ungmennafélaga.
  5. Búa yfir leiðtogahæfni og frumkvæði.
  6. Hafa vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
  7. Viðeigandi menntun sem nýtist í embætti / þekking á Sameinuðu þjóðunum er kostur.

Framboðsfrestur rennur út á 3. leiðtogaráðsfundi LUF, 29. nóvember 2022. 

Sendinefnd LUF

Kjör ungmennafulltrúa Íslands hjá SÞ á sviði sjálfbærrar þróunar skipar sæti í sendinefnd LUF hjá Sameinuðu þjóðunum. Nefndin er hluti af alþjóðaráði LUF og er jafnframt starfshópur LUF um málefni ungs fólks hjá Sameinuðu þjóðunum. Hún starfar sem vinnuhópur, ráðgjafaráð, upplýsingaveita og brú á milli LUF, Félags SÞ á Íslandi og sendandi ráðuneyta. Fulltrúinn mun gegna embættinu þar til nýr tekur við. Sendinefndin skipar nú fimm fulltrúa; á sviði mannréttinda, loftslagsmála, sjálfbærar þróunar, kynjajafnréttis, og barna og ungmenna. 

Embættið er sjálfboðastarf, að dagpeningum erlendis undanskildum.