Landssamband ungmennafélaga (LUF) í samstarfi við Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og menningar- og viðskiptaráðuneytið óskar hér með eftir framboðum til ungmennafulltrúa Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði mennta, vísinda og menningar. Ungmennafulltrúinn er skipaður til tveggja ára og kemur til með að taka þátt í störfum Íslensku UNESCO nefndarinnar auk þess að sækja aðalráðstefnu UNESCO og norræna samstarfsfundi, í umboði ungs fólks á Íslandi.
Hvernig býð ég mig fram?
Öll aðildarfélög LUF (með fulla aðild og áheyrnaraðild) geta boðið fram einn fulltrúa. Áhugasamir félagsmenn aðildarfélaga LUF þurfa því að óska eftir umboði frá stjórn viðkomandi félags. Stjórnin tilkynnir framboð með því að fylla út skráningarform, sem öll aðildarfélög fá sent í fundarboði. Með umboði staðfestir stjórn að frambjóðandinn uppfylli eftirfarandi hæfniskröfur.
Hæfniskröfur:
- Umboð frá aðildarfélagi LUF.
- Vera á aldrinum 18 – 27 ára.
- Hafa þekkingu á Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
- Hafa reynslu af hagsmunastarfi ungmennafélaga.
- Búa yfir leiðtogahæfni og frumkvæði.
- Hafa vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
- Viðeigandi menntun sem nýtist í embætti / þekking á UNESCO er kostur.
Ungmennafulltrúi Íslands á sviði mennta, vísinda og menningar er skipaður til tveggja ára og mun þurfa sækja aðalráðstefnu UNESCO ásamt norrænum samstarfsfundum. Sömuleiðis situr ungmennafulltrúinn í Íslensku UNESCO nefndinni, sem fundar 4-6 sinnum á ári og er nefndarseta launuð. Þurfa frambjóðendur að geta skulbundið sig til tveggja ára auk þess að sækja alla viðburði sem af þeim er krafist. Þá er búist við að ungmennafulltrúar á vegum LUF sæki Leiðtogaskóla Íslands.
Frestur til tilnefningar rennur út á 4. leiðtogaráðsfundi LUF, 24. janúar 2023.
Sendinefnd LUF
Kjör ungmennafulltrúa Íslands hjá SÞ á sviði mennta, vísinda og menningar skipar sæti í sendinefnd LUF hjá Sameinuðu þjóðunum. Nefndin er hluti af alþjóðaráði LUF og er jafnframt starfshópur LUF um málefni ungs fólks hjá Sameinuðu þjóðunum. Hún starfar sem vinnuhópur, ráðgjafaráð, upplýsingaveita og brú á milli LUF, Félags SÞ á Íslandi og sendandi ráðuneyta. Fulltrúinn mun gegna embættinu þar til nýr tekur við. Sendinefndin skipar nú fimm fulltrúa; á sviði mannréttinda, loftslagsmála, sjálfbærar þróunar, kynjajafnréttis, og barna og ungmenna.
Embættið er sjálfboðastarf, að dagpeningum erlendis og nefndarsetu í Íslensku UNESCO nefndinni undanskildum.
