Skip to content
  • Um LUF
    • Aðildarfélög
    • Stjórn og starfsfólk
    • Samþykktir og útgáfa
    • Fréttir
    • Fundargerðir
  • Leiðtogaskóli Íslands
    • Um skólann
    • Námskeið
    • Þjálfarateymi LUF
    • Verkfærakistan
    • Sækja um
  • Lýðræðisverkefni
    • #ÉGKÝS
    • Völd Óskast
    • Tilmæli til stjórnvalda
  • Alþjóðamál
    • Sameinuðu þjóðirnar
    • Evrópa
    • Norðurlönd
  • Hafa samband
  • Viltu gerast bakhjarl?
  • EN/

Sambandsþing LUF 2025

Sambandsþing LUF 2025

Sambandsþing LUF 2025

21. Sambandsþing LUF var haldið með hátíðlegum hætti í Ráðhúsi Reykjavíkur þann 22. febrúar. Yfirskrift þingsins var Völd óskast, sem er vísun í herferð LUF. Geir Finnsson, fyrrum forseti LUF stýrði fundinum. Þingið var vel sótt og ásamt almennum fundarsköpum fóru fram líflegar umræður um tilmæli til stjórnvalda og voru að endingu 17 tilmæli samþykkt. Ungheill – ungmennaráð Barnaheilla hlaut fulla aðild að LUF en ráðið hefur verið með áheyrnaraðild að sambandinu frá árinu 2020.

Stjórn LUF 2025/2026

Kusu fulltrúar aðildarfélaga nýja stjórn og var Sylvía Martinsdóttir, fulltrúi Ungra athafnakvenna, kjörin forseti. Auk Sylvíu voru í stjórn kjörin Starri Reynisson, fulltrúi Ungra Evrópusinna, varaforseti, Geir Zoega, fulltrúi Ung Norræn, gjaldkeri, Lilja Hrönn Önnudóttir Hrannarsdóttir, fulltrúi Ung jöfn, ritari, Snæfríður Blær Tindsdóttir, fulltrúi Sambands ungra sjálfstæðismanna, alþjóðafulltrúi, Embla María Möller Atladóttir, fulltrúi Sambands íslenskra framhaldsskólanema, meðstjórnandi og Ragnheiður Geirsdóttir, fulltrúi Stúdentaráðs Háskóla Íslands, meðstjórnandi. Til varamanna voru Ármann Leifsson, fulltrúi Ungra umhverfissinna og Fannar Logi Waldorff Sigurðsson, fulltrúi Samfés kjörnir.

Frá vinstri: Fannar Logi Waldorff Sigurðsson, Embla María Möller Atladóttir, Starri Reynisson, Sylvía Martinsdóttir, Geir Zoega, Lilja Hrönn Önnudóttir Hrannarsdóttir, Ármann Leifsson.

Þórhildur Davíðsdóttir Söebech, nýr ungmennafulltrúi Íslands á sviði mannréttinda

Á þinginu fór fram pallborð frambjóðenda til stöðu ungmennafulltrúa Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum á sviði mannréttinda. Kjörin var Þórhildur Davíðsdóttir Söebech, fulltrúi Sambands íslenskra námsmanna erlendis.

Þórdís Dröfn Andrésdóttir kjörin aðalfulltrúi íslenskra ungmenna í NORDBUK


Lýðræðislegt kjör til aðalfulltrúa íslenskra ungmenna í NORDBUK fór í fyrsta sinn fram á sambandsþingi LUF 2025. Rafrænar kynningar á frambjóðendum höfðu farið fram fyrir þingið með kynningarbréfum og á myndbandsformi. Frambjóðendur tóku þátt í pallborði fyrir kjör og hlaut Þórdís Dröfn Andrésdóttir umboðið.

Ársskýrslu ársins 2024 er aðgengileg hér

LUF2025-08-11T19:58:03+00:00

Opnunartími

mán-fös: 9:00-17:00

© Landssamband ungmennafélaga   |   kt: 541004-4750   |   Allur réttur áskilinn   |   Sigtún 42, 105 Reykjavík    |    youth@youth.is   |   +(354) 561 1100
FacebookInstagramRss
Page load link
Go to Top