Þann 23. nóvember síðast liðinn hlaut Sara Þöll Finnbogadóttir kjör í stjórn Evrópska ungmennavettvangsins (e. European Youth Forum – YFJ), fyrst Íslendinga. YFJ eru stærstu regnhlífasamtök alþjóðlegra frjálsra félagasamtaka og landssambanda ungmennafélaga í Evrópu sem vinna að hagsmunum og réttindum ungs fólks. Sara var kjörin á aðalþingi samtakanna í Gent í Belgíu þann 22. nóvember. Sylvía Martinsdóttir, forseti LUF og Bjarki Fjalar Guðjónsson, verkefnastjóri alþjóðamála hjá LUF voru þingfulltrúar LUF á þinginu.

„Þetta er stór áfangi fyrir ungt fólk á Íslandi, að geta tekið þátt og haft veruleg áhrif á réttinda- og hagsmunabaráttu ungs fólks í Evrópu og í öllum heiminum. Ég er þakklát aðildarfélögum YFJ fyrir að veita mér umboð og hlakka til að taka sæti í stjórn samtakanna, þar sem ég mun vinna að hagsmunamálum ungs fólks með öðrum stjórnarmeðlimum, sem öll eru í fremstu röð á sínu sviði í Evrópu.,“ segir Sara Þöll varðandi kjörið.

Sara Þöll er tilvonandi doktorsnemi í stjórnmálafræði og lauk nýverið meistaragráðu frá University of Michigan í Ann Arbor í Bandaríkjunum í kannana- og gagnavísindum, þar sem hún hlaut Fulbright styrk. Áður starfaði hún sem aðstoðarmaður við rannsóknir fyrir Íslensku kosningarannsóknina og sem varaforseti og lánasjóðsfulltrúi Stúdentaráðs Háskóla Íslands 2020-2022, í umboði Röskvu. Sara situr í stjórn félags íslenskra stjórnmálafræðinga.

„Ég hef tileinkað mörgum árum af lífi mínu hagsmunabaráttu ungs fólks og þá sérstaklega stúdentabaráttunni heima á Íslandi fyrir Stúdentaráð Háskóla Íslands og Samband íslenskra framhaldsskólanema. Í störfum mínum á þessum vettvangi hef ég lagt mesta áherslu á þátttöku ungs fólks í stjórnmálum og stefnumótun, sem og lýðræðislegri þátttöku. Mér þykir einkar mikilvægt að stuðla að alþjóðlegu samstarfi milli ungs fólks og ég hlakka því mikið til að láta til mín taka á alþjóðlegum vettvangi.“

Landssamband ungmennafélaga á Íslandi (LUF), sem Sara var tilnefnd af, er eitt af yfir hundrað aðildarfélögum Evrópska ungmennavettvangsins. LUF er regnhlífarsamtök fyrir félagasamtök ungs fólks á Íslandi og er þverpólitískur samstarfs- og samráðsvettvangur. Þá er LUF málsvari ungs fólks gagnvart íslenskum stjórnvöldum og hinum ýmsu alþjóðastofnunum. Sara gegndi embætti alþjóðafulltrúa í stjórn LUF á árunum 2019-2022. Framboð Söru var einnig stutt af landssamböndum ungmennafélaga á Norðurlöndum og í Eystrarsaltsríkjunum. 

“Sara Þöll hefur í hvívetna beitt sér fyrir hagsmuna- og réttindabaráttu ungs fólks. Hún hefur meðal annars fjallað um lýðræðisþátttöku ungs fólks á Íslandi í nýútgefnum Lýðræðisvita og skrifað um skuggakosningar í framhaldsskólum á Íslandi sem fara fram undir merkjum #égkýs. Stjórn LUF er stolt af því að eiga svona öflugan fulltrúa í stjórn YFJ og hlakkar til að fylgjast með störfum hennar í þágu ungs fólks á komandi árum.” – Sylvía Martinsdóttir, forseti LUF.