Skörungur – íslensku ungmennaverðlaunin fóru fram í annað sinn þriðjudaginn 5. desember á alþjóðlegum degi sjálfboðaliðans. Um er að ræða þakkar- og hvatningarviðburð ungs fólks þar sem sjálfboðaliðastörf og framtök í þágu hagsmuna og réttinda ungs fólks eru heiðruð. Byggja verðlaunin á Félagi ársins sem voru viðburður sem LUF stóð fyrir á árunum 2018-2022.

Fór verðlaunaafhending fram með hátíðlegum hætti í Mannréttindahúsinu, Sigtúni 42, sem sameinar fjölbreytt samtök sem berjast fyrir mannréttindum hvert á sínum forsendum. Þá var Skörungurinn 2024 liður í mannréttindaviku hússins.

Veitt voru verðlaun í sex flokkum:

Verkefni ársins, framlag til mannréttinda, framtak í þágu ungs fólks, sjálfboðaliði ársins, vonastjarna ársins, heiðursverðlaun LUF.

1. Verkefni ársins: Verðlaunin eru veitt fyrir verkefni sem fram hefur farið á árinu sem skilað hefur árangri í hagsmuna- og réttindabaráttu ungs fólks. Skörunginn 2024 í flokknum verkefni ársins hlutu Ungir umhverfissinnar fyrir verkefni sitt, Sólina, einkunnagjöf fyrir alþingiskosningar 2024. Sólin metur umhverfisstefnur stjórnmálaflokkanna fyrir alþingiskosningar og byggir á áherslum ungs fólks, meðlima Ungra umhverfissinna og er mótuð af sérfræðingum á hverju sviði. Sólin fjallar um loftslagsmál, náttúruverndarmál og hringrásarsamfélagsmál, sem saman telja hundrað afmörkuð atriði sem stuðla að gegnsæi
kvarðans. Markmið sólarinnar er að efla almenna umræðu, gagnsæi og skilning á umhverfismálum í aðdraganda kosninga. Sólin er öflugt tól fyrir ungt fólk til að skila betur hvað liggur að baki stefnum flokka, til að mynda sér skoðun og til að efla lýðræðislega umræðu. Sólin varpar einnig ljósi á umhverfismál sem málaflokk sem gleymist of í almennri umræðu þrátt fyrir að hann varði öll og sé afar mikilvægur, einkum fyrir ungt fólk.

2. Framlag til mannréttinda: Verðlaunin eru veitt einstaklingi fyrir verðugt framlag til mannréttinda og baráttu ungs fólks fyrir réttindum sínum. Skörunginn árið 2024 fyrir framlag til mannréttinda hlaut Eiður Welding. Eiður er formaður UngÖBÍ, varaformaður CP félagsins á Íslandi og yngsti stjórnarmeðlimur sem tekið hefur sæti í stjórn ÖBÍ. Í embættum sínum hefur Eiður verið ötull málsvari ungs fatlaðs fólks, bæði innan sem og utan landsteinanna. Hann hefur sett mikla áherslu á vitundarvakningu og fræðslu til ófatlaðs fólks sem miðar að því að auka inngildingu ungs fatlaðs fólks á öllum vettvöngum samfélagsins. Eiður
hefur komið víðsvegar fram fyrir hönd UngÖBÍ, komið að fjölbreyttum verkefnum og talað máli síns hagsmunahóps af mikilli festu og áræðni. Vann hann meðal annars ötullega að Fjólublátt ljós við barinn, nýju verkefni UngÖBí sem er aðgengishvatning til fyrirtækja í skemmtanalífinu og miðar að því jafna aðgengi fatlaðs fólks og draga úr félagslegri einangrun. Hefur hann m.a. sótt CoSP 16 (Conference of States Parties to the Convention on the Rights of Persons with Disabilities) fyrir hönd ungs fatlaðs fólks á Íslandi og tekið sæti í Norræna fötlunarráðinu. Má framlag Eiðs til baráttu ungs fatlaðs fólks á Íslandi teljast sem verðugt framlag til mannréttinda og baráttu ungs fólks fyrir réttindum sínum.

Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ tók við verðlaununum fyrir hönd Eiðs Welding.

Hopp

Fulltrúar Hopp Reykjavík taka á móti Skörungnum.

3. Framtak í þágu ungs fólks: Verðlaunin eru veitt einstaklingum, hópum, félögum, stofnunum eða fyrirtækjum fyrir eftirtektarvert framtak í þágu hagsmuna og réttinda ungs fólks. Skörunginn árið 2024 fyrir framtak í þágu ungs fólks hlaut Hopp Reykjavík fyrir að hafa með virkum hætti hvatt ungt fólk til að nýta kosningaréttinn sinn fyrir alþingiskosningar 2024. Bauð fyrirtækið ungu fólki að nýta rafskútur sínar frítt á leið á kjörstaði í samstarfi við lýðræðisherferðina Égkýs.

4. Sjálfboðaliði ársins: Verðlaunin eru veitt meðlimi aðildarfélags LUF fyrir eftirtektaverða framtakssemi og dugnað í sjálfboðaliðavinnu í þágu síns félags. Skörunginn 2024 fyrir sjálfboðaliða ársins hlaut Nína Sólveig Svavarsdóttir fyrir mikinn metnað og öfluga hagsmunabaráttu í störfum sínum fyrir Ungheill – ungmennaráð Barnaheilla. Hefur hún tekið þátt í að hrinda mörgum verkefnum í framkvæmd á þeim vettvangi, má þar nefna ,,Undir fjögur augu” sem og samstarfsverkefnið ,,Höfn í Hafnarfirði”. Nína Sólveig hefur verið fulltrúi Barnaheilla á Barnaþingi og Menntaþingi og komið þar málefnum ungs fólks á framfæri með áherslu á ungar konur. Hefur hún einnig setið í ungmennaráði Hafnarfjarðar og unnið þar að bættum hagi barna og unglinga í Hafnarfirði. Hefur Nína Sólveig meðal annars barist fyrir niðurgreiðslu á skólamat í grunnskólum og innleiðingu kynfræðslu á unglingastigi.

Viðurkenningu í flokknum sjálfboðaliði ársins hlutu einnig:

Ísadóra Ísfeld Finnsdóttir fyrir dugnað, ábyrgð og hugrekki í störfum sínum fyrir Unga umhverfissinna. Ísadóra setti á fót mótmæli gegn opnum laxeldum á árinu og hefur komið fram fyrir hönd Ungra umhverfissinna við ýmis tækifæri.

Embla María Möller Atladóttir fyrir framtakssemi sína sem leiðtogi Sambands íslenskra framhaldsskólanema (SÍF). Embla er formaður SÍF og hefur á liðnu ári sýnt mikla leiðtogahæfni og tekist að mynda þétta og öfluga stjórn. Var hún í leiðtogahlutverki meðal annars við framkvæmd Söngkeppni framhaldsskólannaog skuggakosninga í framhaldsskólum í tengslum við lýðræðisherferðina Égkýs.

Franklín Ernir Kristjánsson fyrir mikinn dugnað sem sjálfboðaliði hjá Sambandi ungra sjálfstæðismanna (SUS). Framlag hans til SUS hefur farið langt fram úr því sem ætlast var til af honum. Franklín er ötull talsmaður Sjálfstæðisstefnunnar og óhræddur við að tjá skoðanir sínar.

Urður Björg Gísladóttir fyrir að hafa lyft grettistaki í störfum sínum sem gjaldkeri Sambands ungra framsóknarmanna (SUF). Hefur hún haldið vel utan um fjárhag félagsins og staðið fyrir fjáröflunum meðal annars með framleiðslu og sölu á varningi sem og happdrætti. Tryggðu störf hennar að hægt var að halda sambandsþing SUF 2024 fyrir félagsmenn gegn hóflegu gjaldi.

DSC00172

Embla, Franklín, Nína Sólveig, Gunnar Ásgrímsson sem tók við viðurkenningu fyrir hönd Urðar, og Ísadóra

Ragnhildur, Atli Dagur, Tóbías, Hrefna, Einar, og Sigurður

5. Vonarstjarna ársins: Verðlaunin eru veitt meðlimi aðildarfélags LUF sem hefur í fyrsta gegnt trúnaðarstörfum fyrir sitt aðildarfélag og hefur
með því lagt lóð sín á vogarskálarnar svo verulega um munar í starfi félagsins.

Skörunginn 2024 fyrir vonarstjörnu ársins hlaut París Anna Bergmann fyrir leiðtogahæfni, sterka framtíðarsýn og fyrir að vera öflugur málsvari ungs fólks í störfum sínum hjá Ungum athafnakonum. París hélt áhrifamikið erindi með yfirskriftinni „Kveðja frá næstu kynslóð“ á ráðstefnunni UAK í 10 ár – drifkraftur breytinga, í maí 2024. París hefur einnig lagt sitt af mörkum til ýmissa verkefna sem stuðla að betri framtíð, meðal annars með því að hvetja ungt fólk til að taka þátt í nýsköpun og þróun samfélagslegra úrræða. Hún hefur sýnt mikla getu til að nýta rödd sína og áhrif til að vekja athygli á mikilvægum málefnum, svo sem sjálfbærni, jafnrétti og lýðræðislegri þátttöku ungs fólks.

Viðurkenningu í flokknum vonarstjarna ársins hlutu einnig:

Tóbías Dagur Úlfsson fyrir elju, eldmóð og frumkvæði í störfum sínum fyrir AFS á Íslandi. Þrátt fyrir stuttan tíma í AFS hefur Tóbías þegar sýnt framúrskarandi leiðtogahæfileika og verið tilbúinn að taka að sér fjölbreytt verkefni. Hann hefur ótal sinnum bjargað félaginu þegar vantaði mannskap, oft með stuttum fyrirvara. Slíkur áreiðanleiki og dugnaður er ómetanlegur fyrir sjálfboðaliðastarf. Tóbías hvetur aðra í kringum sig til að taka þátt og leggja sitt af mörkum og er frábært dæmi um þann anda sem AFS stendur fyrir.

Ragnhildur Katla Jónsdóttir fyrir að hafa látið til sín taka af elju og metnaði í störfum sínum sem fræðslufulltrúi Ungra umhverfissinna (UU). Ragnhildur setti saman og hefur leitt fræðslunefnd UU af mikilli alúð, stóðu þau m.a. Fyrir ritlistarkeppni fyrir alla grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu. Sat hún í verkstjórn Sólarinnar, einkunnagjöf Ungra umhverfissinna fyrir alþingiskosningar og hefur verið sýnileg fyrir hönd félagsins bæði á samfélagsmiðlum sem og í fjölmiðlum.

Einar Jónsson fyrir að hafa sýnt drifkraft og dugnað í störfum sínum fyrir Samband íslenskra framhaldsskólanema (SÍF). Einar tók meðal annars virkan þátt í lýðræðisherferðinni Égkýs. Er hann þekktur fyrir jákvætt hugarfar og framtakssemi. Hefur hann verið lykilmanneskja í starfi SÍF á nýju tímabili þeirra og leggur sig ávallt allan fram við verkefnin.

Atli Dagur Guðmundsson fyrir að hafa lagt sig allan fram í starfi sínu sem formaður í Hersi – félagi ungra sjálfstæðismanna í Árborg. Hefur hann margfaldað fjölda ungra sem eru virkir í starfinu og virkti ungt fólk til að taka þátt í nýliðnum alþingiskosningum. Framlag Atla Dags hefur eflt starfsemi Sambands ungra
sjálfstæðismann svo eftir því var tekið.

Sigurður Eyjólfur Sigurðsson fyrir eftirtektarverða innkomu í starf Sambands ungra framsóknarmanna. Hann tók sæti í stjórn á sínu fyrsta sambandsþingi og var stuttu seinna valinn til að verma fimmta sæti Framsóknar í Suðurkjördæmi, var hann þar efsti fulltrúi ungra framsóknarmanna. Í kosningabaráttunni lagði Sigurður mikla áherslu á málefni barna og ungmenna og hefur sýnt á stuttum tíma að hann hefur mikið til málanna að leggja.

6. Heiðursverðlaun LUF: Verðlaunin eru veitt meðlimi aðildarfélags LUF fyrir langvarandi óeigingjörn störf í þágu félags, eða baráttu ungs fólks fyrir réttindum sínum. Um er að ræða æðsta heiður sem aðildarfélag LUF getur sæmt meðlimi innan sinna raða. Eftirfarandi 4 einstaklingar hlutu heiðursverðlaun LUF árið 2024:

Finnur Ricart Andrason fyrir störf sín í þágu Ungra umhverfissinna. Finnur hefur verið virkur loftslags- og umhverfisaktívisti um árabil þrátt fyrir ungan aldur.
Hann hefur unnið ótrúlega óeigingjarnt og ötult starf í þágu Ungra umhverfissinna og umhverfisverndarmála almennt, bæði sem loftslagsfulltrúi UU og síðar sem forseti félagsins. Þá hefur Finnur verið einn dyggasti talsmaður náttúrunnar og fyrir mikilvægi loftslags- og umhverfisaðgerða innan sem og utan Íslands. Hann gegndi hlutverki ungmennafulltrúa Íslands hjá SÞ á sviði loftslagsmála, þar sem hann sinnti hagsmunagæslu og barðist kröftulega fyrir auknum metnaði stjórnvalda í loftslagsmálum og aukinni þátttöku ungs fólks í ákvarðanatöku á sviðinu. Finnur er sterkur leiðtogi, drífandi og kemur alltaf fram af heiðarleika. Það hefur verið
Ungum umhverfissinnum mikill heiður að vera þess aðnjótandi að fá að vinna með Finni og eru þau ævinlega þakklát fyrir allt það sem hann hefur lagt í samtökin og til umhverfsmála.

Jón Birgir Eiríksson fyrir störf sín í þágu Sambands ungra sjálfstæðismanna. Jón Birgir hefur starfað innan Sambands ungra sjálfstæðismanna í um áratug og er enn þann dag í dag manna duglegastur í starfi stjórnar sambandsins. Í áraraðir hefur hann unnið ósérhlífið og gjöfult starf, t.a.m. með því að styðja við og efla ungt fólk sem sækist til áhrifa og hvetja þau til góðra verka með þrotlausri vinnu og stuðningi. Í stöðu sinni sem framkvæmdastjóri Varðar hefur hann m.a. lagt sitt af mörkum við að lyfta upp ungliðastarfi flokksins í nýjar hæðir og gætir hann hagsmuna ungliðanna í hvívetna. Hann er bakbeinið í breiðara samhengi ungliðastarfsins og ómissandi meðlimur í félaginu, það eru ófáir einstaklingar sem eiga Jóni Birgi mikið að þakka og má félagið að sama skapi hrósa happi yfir hans óeigingjörnu störfum. Framlagið er ómetanlegt.

Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir fyrir störf sín í þágu Sambands ungra framsóknarmanna. Lilja Rannveig var formaður Sambands ungra Framsóknarmanna á árunum 2018-2021, og stjórnarmaður þar áður og hefur setið í varastjórn frá 2021-2024. Í sínu starfi innan SUF kom hún að því að móta öflugt ungliðastarf auk þess sem hún stuðlaði að öruggu og aðgengilegu umhverfi fyrir ungt fólk til að taka sín fyrstu skref í ungliðahreyfingu. Árið 2021 var hún kjörin á Alþingi og var yngsti kjörni þingmaður þess þings. Í starfi sínu sem þingmaður hefur hún lagt áherslu á málefni ungs fólks, þar á meðal má nefna baráttu fyrir stofnun heimavistar á höfuðborgarsvæðinu fyrir framhaldsskólanema, gjaldfrjálsar getnaðarvarnir fyrir einstaklinga yngri en 25 ára, og loks því grundvallar baráttumáli að við 18 ára aldur
fái einstaklingur öll þau réttindi sem að fullorðin einstaklingur jafnan hefur. Má þar nefna rétt til að bjóða sig fram til forseta lýðveldisins. Svo við vitnum í Lilju Rannveigu sjálfa: “Aldur er ekki hæfniviðmið”. SUF tilnefndi hana til heiðursverðlauna LUF sem þakkarvott fyrir óeigingjarnt starf yfir langan tíma sem þau telja að sé þó ekki á enda, Lilja mun alltaf berjast fyrir því að hlustað sé á rödd ungmenna.

Hrefna Ósk Maríudóttir fyrir störf sín í þágu Q -félag hinsegin stúdenta. Hrefna hefur setið í stjórn Q-félagsins í 5 ár, frá 2018 með eins árs pásu. Hún gegndi starfi alþjóðafulltrúa félagsins þar sem félagið tók m.a. þátt í alþjóðlegum sumarbúðum, mætti á aðalfundi erlendis hjá IGLYO og nú situr hún í
stjórn IGLYO. Sitt síðasta ár í stjórn Q-félagsins sat hún sem forseti og leiddi starfið af mikilli prýði og reynslu. Auk óeigingjarnar þátttöku sinnar í Q-félaginu hefur hún líka sinnt sjálfboðaliðastarfi og lagt sitt af mörkum innan Samfés, Sambands íslenskra framhaldsskólanema, Landssamtaka íslenskra stúdenta og Landssambands ungmennafélaga. Hrefna á að baki langan og óeigingjarnan feril í félagsstörfum í þágu samfélagsins og á svo sannarlega skilið viðurkenningu fyrir sitt framlag til borgarasamfélags ungs fólks á Íslandi og á alþjóðavísu.

DSC00163

Júlíus Viggó sem tók við viðurkenningu fyrir hönd Jóns Birgis, Finnur Ricart, Lilja Rannveig og Hrefna Ósk