Skörungur – íslensku ungmennaverðlaunin fóru fram í þriðja sinn föstudaginn 5. desember á alþjóðlegum degi sjálfboðaliðans. Um er að ræða þakkar- og hvatningarviðburð ungs fólks þar sem sjálfboðaliðastörf og framtök í þágu hagsmuna og réttinda ungs fólks eru heiðruð. Verðlaunin tóku við af viðburðnum Félagi ársins sem LUF stóð fyrir á árunum 2018-2022. Verðlaunin vekja athygli á degi sjálfboðaliðans og fyrir hvað hann stendur en hvetja fyrst og fremst ungt fólk í sjálfboðastarfi til dáða sem og varpa ljósi á vel unnin störf innan ungmennafélaga á Íslandi og framlag til réttindabaráttu ungs fólks.

Fór verðlaunaafhending fram með hátíðlegum hætti í Mannréttindahúsinu, Sigtúni 42, sem sameinar fjölbreytt samtök sem berjast fyrir mannréttindum hvert á sínum forsendum. Þá var Skörungurinn 2024 liður í mannréttindaviku hússins.

Verðlaun voru veitt í eftirfarandi fimm flokkum, 

  • Sjálfboðaliði ársins – veitt meðlimi aðildarfélags LUF fyrir eftirtektaverða framtakssemi og dugnað í sjálfboðaliðavinnu í þágu síns félags.
  • Verkefni ársins – veitt fyrir verkefni sem skilað hefur árangri eða leitt af sér nýsköpun í hagsmuna- og réttindabaráttu ungs fólks.
  • Vonarstjarna ársins – veitt meðlimi aðildarfélags LUF sem hefur í fyrsta sinn gegnt trúnaðarstörfum fyrir sitt aðildarfélag það ár sem viðkomandi er tilnefndur til verðlaunanna og hefur með því lagt lóð sín á vogarskálarnar svo verulega um munar í starfi félagsins.
  • Framlag til mannréttinda – veitt einstaklingi fyrir verðugt framlag til mannréttinda og baráttu ungs fólks fyrir réttindum sínum.
  • Framtak í þágu ungs fólks – veitt einstaklingum, hópum, félögum, stofnunum eða fyrirtækjum fyrir eftirtektarvert framtak í þágu hagsmuna og réttinda ungs fólks.

Verkefni ársins

Verkefni ársins 2025 hlaut Sambands ungra sjálfstæðismanna fyrir stuttskífuna Heimdallarplatan. Verkefnið var gefið út í febrúar 2025 af Heimdalli, félagi ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík og er fyrst sinnar tegundar sem listrænn gjörningur á vegum ungliðahreyfingar stjórnmálaflokks. Stuttskífan er nýstárleg leið í að koma stjórnmálabaráttu ungs fólks á framfæri á nýjum vettvangi og hefur vakið mikla lukku innan sem utan raða Sjálfstæðisflokksins. Engin önnur ungliðahreyfing stjórnmálaflokks á Íslandi hefur ráðist í viðlíka verkefni nema mögulega SUS sjálft árið 1990 með útgáfu Skattalagsins.

Vonarstjarna ársins

Vonarstjarna ársins 2025 var Jóhanna Malen Skúladóttir fyrir starf sitt í ungum umhverfissinnum. Jóhanna Malen tók fyrst sæti í stjórn Ungra umhverfissinna fyrr á sama ári og hefur með sanni komið inn eins og stormsveipur. Hún stýrði verkefninu Hafið á hundavaði sem hlaut styrk upp á 7,2 milljónir króna frá Erasmus+ og var stýrt til hlýtar. Innan þess verkefnis hélt Jóhanna Malen vinnustofur í öllum landsfjórðungum fyrir ungt fólk um málefni hafsins og ritstýrði bókverki en niðurstöður verkefnisins verða svo kynntar fyrir ráðherra. Samhliða verkefninu sótti Jóhanna Malen styrkfé að fjárhæð 700 þúsund króna til að halda og skipuleggja vinnustofu á vegum Ungra umhverfissinna um orkulausnir þar sem ungt fólk vann sameiginlega að lausnum í betri nýtingu orku á Íslandi. Elja, vinnusemo og kraftur Jóhönnu Malenar er með helstu driffjöðrum í starfi Ungra umhverfissinna.

Þá hlutu eftirfarandi aðilar einnig viðurkenningu í flokknum vonarstjarna ársins.

Pétur Orri Pétursson, stjórnarmaður í SUS fyrir áberandi þátttöku í þjóðfélagsumræðunni um menntamál. Hann hefur verið óttalaus talsmaður fyrir skoðunum hægri ungmenna og hefur vakið athygli fyrir greinaskrif sín.

Árdís Lilja Gísladóttir, stjórnarmaður í Sambandi ungra Framsóknarmanna (SUF) fyrir öflugt starf sitt í þágu sambandsins. Sem kynningarstjóri hefur hún unnið hörðum höndum að því að gjörbylta samfélagsmiðlum SUF og stafrænni ásýnd þess.

Heiðrún Vala Hilmarsdóttir, stjórnarmaður í ungliðahreyfingu Íslandsdeildar Amnesty International fyrir eftirtektarvert starf í ungliðaráði norrænu deilda Amnesty. Hún tók þar sæti í upphafi árs 2025 og var þar yngst meðlima en var fljót að tileinka sér leiðtogastöðu þegar kom að upplýsingagjöf og utanumhaldi. Framlag hennar til norræna ungliðaráðsins hefur hlotið mikið hylli frá starfsfólki innan sem utan landsteina. Hún tileinkaði sér ábyrg vinnubrögð og skilning á ólíkum sjónarhornum samferðafólks hennar sem og eldra starfsfólks. 

Framlag til mannréttinda

Verðlaun fyrir framlag til mannréttinda á árinu 2025 hlaut Mahdya Malika fyrir óeigingjarnt starf í þágu innflytjenda og hælisleitenda á Íslandi. Mahdya hefur verið öflugur sjálfboðaliði í verkefninu Student Refugees frá árinu 2021 og hefur þar aðstoðað fjöldann allan af einstaklingum sem vilja sækja sér æðri menntun á Íslandi eða vilja fá erlenda menntun sína metna hérlendis. Mahdya hefur veitt dýrmæta þekkingu á málaflokknum og eytt ótal klukkustundum í að aðstoða fólk af erlendum uppruna við að fóta sig í íslensku samfélagi og sækja sér menntun.

Framtak í þágu ungs fólks

Verðlaun fyrir framtak í þágu ungs fólks árið 2025 hlutu félagasamtökin Bergið  Headspace fyrir framtak þeirra í að stuðla að bættri geðheilsu ungs fólks á Íslandi. Bergið veitir frían stuðning og ráðgjöf til ungs fólks í öruggu umhverfi á forsendum þeirra sem þjónustuna sækja. Á tímum þar sem vanlíðan og félagsleg einangrun ungs fólks fer aukandi er starf Bergsins ómetanlegt.

Sjálfboðaliði ársins

Sjálfboðaliði ársins 2025 hlaut Gunnlaug Helga Ásgeirsdóttir fyrir störf sín í þágu Sambands ungra sjálfstæðismanna (SUS). Gunnlaug Helga hefur sinnt ötulu starfi innan raða SUS um áraraðir og starfaði á þeim vettvangi sem annar varaformaður í stjór sambandsins 2023-2025. Enn í dag sinnir hún margvíslegum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn og tók sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi fyrir alþingiskosningar 2021. Starf Gunnlaugar til margra ára er ómetanlegt og SUS er henni gríðarlega þakklátt.

Þá hlutu eftirfarandi aðilar einnig viðurkenningu í flokknum sjálfboðaliði ársins.

Cynthia Anne Namugambe fyrir störf sín í þágu ungliðadeildar Amnesty. Cynthia var valinn ungmennafulltrúi fyrir heimsþing Amnesty International og hefur framlag hennar einkennst einna helst af djúpu innsæi, sterkri réttlætiskennd og dugnaði sem hefur verið til fyrirmyndar.

Stefán Atli Rúnarsson fyrir störf sín í þágu SUF. Hann hefur aðstoðað sambandið mikið við sölu varnings og kynningarmál þess auk sem hann hefur haldið námskeið í gervigreind fyrir flokksmenn. Stefán hefur sýnt frumkvæði, ábyrgð og mikinn dugnað í starfi SUF.