Skörungur | LUF auglýsir eftir tilnefningum til íslensku ungmennaverðlaunanna 2025
Skörungur – íslensku ungmennaverðlaunin verða veitt á degi sjálfboðaliðans þann 5. desember, kl. 17:00 í Mannréttindahúsinu að Sigtúni 42. Um er að ræða þakkar- og hvatningarviðburð ungs fólks sem haldinn er í þriðja sinn og tók við af „Félaga ársins” sem LUF stóð fyrir í 5 ár. Facebook viðburð má finna hér.
LUF auglýsir hér með eftir tilnefningum frá aðildarfélögunum til Skörungsins fyrir sjálfboðaliða ársins (áður „Félagi ársins“). Hvert aðildarfélag getur tilnefnt einn einstakling til verðlaunanna og hvetur LUF öll aðildarfélög sín til þess að senda inn tilnefningu ásamt rökstuðningi hér. Öll sem hljóta tilnefningu til Skörungsins frá aðildarfélagi í flokki sjálfboðaliða ársins verða beiðnir um að veita viðurkenningu þess efnis móttöku á degi sjálfboðaliðans. Þá er öllum frjálst að tilnefna í aðra flokka. Frestur til þess að tilnefna sjálfboðaliða ársins er eigi síðar en mánudaginn 24. nóvember 2025.

Skörungur – íslensku ungmennaverðlaunin eru veitt í fimm flokkum:
1.) Sjálfboðaliði ársins
Verðlaunin Sjálfboðaliði ársins eru veitt meðlimi aðildarfélags LUF fyrir eftirtektaverða framtakssemi og dugnað í sjálfboðaliðavinnu í þágu síns félags. Tilnefna aðildarfélög LUF einn sjálfboðaliða úr sínu félagi til verðlaunanna. Hægt er að tilnefna til verðlaunanna hér.
2.) Verkefni ársins
Verðlaunin eru veitt fyrir verkefni sem skilað hefur árangri eða leitt af sér nýsköpun í hagsmuna- og réttindabaráttu ungs fólks. Hægt er að tilnefna til verðlaunanna hér.
3.) Vonarstjarna ársins
Verðlaunin eru veitt meðlimi aðildarfélags LUF sem hefur í fyrsta sinn gegnt trúnaðarstörfum fyrir sitt aðildarfélag það ár sem viðkomandi er tilnefndur til verðlaunanna og hefur með því lagt lóð sín á vogarskálarnar svo verulega um munar í starfi félagsins. Hægt er að tilnefna til verðlaunanna hér.
4.) Framlag til mannréttinda
Verðlaunin eru veitt einstaklingi fyrir verðugt framlag til mannréttinda og baráttu ungs fólks fyrir réttindum sínum. Hægt er að tilnefna til verðlaunanna hér.
5.) Framtak í þágu ungs fólks
Verðlaunin eru veitt einstaklingum, hópum, félögum, stofnunum eða fyrirtækjum fyrir eftirtektarvert framtak í þágu hagsmuna og réttinda ungs fólks. Hægt er að tilnefna til verðlaunanna hér.

Skörungur – íslensku ungmennaverðlaunin er uppskeruhátíð LUF, þar sem aðildarfélög fá tækifæri til þess að velja framúrskarandi meðlimi sem þau vilja umbuna og þakka fyrir dugnað og vel unnin störf.
Tilgangur viðburðarins er að vekja athygli á degi sjálfboðaliðans og fyrir hvað hann stendur, en fyrst og fremst að hvetja ungt fólk í sjálfboðastarfi til dáða sem og varpa ljósi á vel unnin störf innan ungmennafélaga á Íslandi og framlag til réttindabaráttu ungs fólks.
Viðburðurinn er liður í mannréttindavikunni og fer fram í höfuðstöðvum LUF, Mannréttindahúsinu að Sigtúni 42.
