Stjórn LUF hefur samþykkt aðildarumsókn UngRIFF að sambandinu. UngRIFF er þekkingarmiðstöð ungs Kvikmyndaáhugafólks á Íslandi. Markmið þess er að vera leiðandi í kennslu í gegnum kvikmyndir og kvikmyndagerð. Frá stofnun RIFF hefur eitt af meginmarkmiðunum hátíðarinnar verið að veita ungu fólki tækifæri til að tjá sjálfsmynd sína í gegnum kvikmyndagerð. Undanfarin ár hefur barnahátíðin UngRIFF vaxið og dafnað, og er nú glæsileg hátíð fyrir Íslensk ungmenni. Með því að bjóða upp á fjölbreytta og metnaðarfulla dagskrá kvikmynda fyrir börn og unglinga, skipuleggja vinnustofur og fjölda fræðsluverkefna, vonumst við til að kveikja áhuga hjá ungmennunum sem mun fylgja þeim inn í fullorðinsárin. Við vonumst til að sjá marga framtíðar kvikmyndagerðarmenn spretta upp úr þessum öfluga hópi.

Ungmennaráð UngRIFF skipa þau Ísadóra Ísfeld Finnsdóttir, Sara Mist Sigurðardóttir, Matthías Páll Atlason, Þorkell Þorri Thorlacius Þrastarson og Katla Líf Drífa-Louisdóttir Kotze. Stjórn LUF biður þau hjartanlega velkomin í starfið og hlakkar okkur til samstarfsins.

Á myndina af ráði UngRIFF vantar Söru Mist Sigurðardóttur.