Þann 14. ágúst fór fram vinnustofa um öryggis- og varnarmál í Mannréttindahúsinu. Ragnheiður Geirsdóttir, málefnafulltrúi LUF, opnaði fundinn og hélt tölu um Youth, Peace and Security ályktun Sameinuðu þjóðanna. í kjölfarið kynnti Stefanía Reynisdóttir, formaður Skjaldar – YATA Iceland, félagið og fór yfir hvernig ungt fólk getur tekið þátt í samtalinu um öryggis- og varnarmál. Að lokum hlýddum við á erindi frá Guðbjörgu Ríkey Th. Hauksdóttir, verkefnastjóri við Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands. Guðbjörg fór yfir sín störf ásamt því yfirferð um sögu varnarmála á Íslandi, þjóðaröryggisstefnu Íslands, NATO, Landhelgisgæsluna og fleira. Hún endaði erindi sitt á því að velta upp spurningu um framtíðar áskoranir í þessum málaflokki.

Eftir að hafa hlustað á þessi áhugverðu erindi þá hófst málefnastarf þar sem þátttakendur í vinnustofunni ræddu saman og komu hugsunum og skoðunum á blað varðandi hver stefna LUF gæti verið í þessum málum.

Seinni hluti vinnustofunnar fer svo fram þann 15. október n.k. í utanríkisráðuneytinu þar sem þátttakendur munu hlýða á erindi sérfræðinga og í beinu framhaldið af því fer vinnustofan fram.