Þann 15. október fóru félagsmenn LUF í heimsókn í utanríkisráðuneytið til þess að fræðast um öryggis- og varnarmál.

Þar tóku á móti okkur Andri Júlíusson og Steingrímur Sigurgeirsson af varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins. Andri byrjaði á að fara yfir helstu verkefni varnarmálaskrifstofu og svo fór Steingrímur yfir inntak og áherslur stefnu í varnar- og öryggismálum. Eftir erindin svöruðu þeir hinum ýmsu spurningum sem brunnu á fundargestum.

Í kjölfarið var farið í málefnastarf þar sem aðildarfélögin komu sínum sjónarmiðum á framfæri.

Við þökkum utanríkisráðuneytinu, Andra og Steingrími fyrir hlýjar móttökur.