Um miðjan júní fóru félagsmenn LUF í heimsókn í Mennta- og barnamálaráðuneytið. Þar tóku á móti okkur sérfræðingar ráðuneytisins í æskulýðsmálum. Dagskráin hófst á stuttri tölu frá mennta- og barnamálaráðherra, Guðmundi Inga Kristinssyni þar sem hann sagði okkur frá sínum störfum og spurði félagsmenn LUF út í þeirra störf og hvernig staða ungs fólks í samfélaginu horfir við þeim. Í kjölfar þess héldu sérfræðingar tölu um helstu verkefni ráðuneytisins um þessar mundir. Við þökkum mennta- og barnamálaráðuneytinu fyrir góðar móttökur.
Eftir heimsóknina í ráðuneytið var förinni heitið í Valhöll, höfuðstöðvar Sjálfstæðisflokksins. Þar tók á móti okkur formaður SUS sem byrjaði á að sýna okkur Valhöll og fór í leiðinni létt yfir starfið hjá SUS. Eftir það þá kom Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og hélt erindi um menntamál og mynduðust líflegar umræður í kjölfarið. Við þökkum þeim góðar móttökur!


